Desperat snarklikkuð einstæð einmanna

desperat.jpgkanadrusla á karlaveiðum.W00t Við strákarnir viljum nú hafa þær aðeins dannaðri en þetta, ekki satt?Whistling

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Fótboltamamma missti byssuleyfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mér líður eins og fífli

hjor_in.jpgHér er allt í brunandi báli og eignir fólks brenndar upp með gerræðislegri stefnu stjórnvalda og yfirbjálfans í Seðlabankanum. Hvar er hjörðin sem á að stjórna, en ekki hvar á Wall Street? Við erum höfð að fiflum, mér líður eins og bjána við að sjá þetta rugl.

Geir að loka á Wall Street, eru þá einhverjar líkur á því að Wall Steet opni nokkurn tímann aftur? Margar eru þær eitraðar framkvæmdirnar sem íhaldið hefur afgreitt frá sér, ekki brygði mér þótt tilkynnt yrði fljótlega að Wall Street væri ónýtt fyrirbrigði eftir heimsókn Geirs ogkossinn_681440.jpg fylgihjarðarinnar.

Hvað er til dæmis langt síðan Geir kyssti Ingibjörgu slæðudrottningu? Síðan þá hefur kerlan ruglað út úr sér hverri dellunni á fætur annarri, já bara hreint eins og óstöðvandi færibandaþvæla sé í spilunum. Ég talaði einhvern tímann um eitraðan koss eða koss dauðans þegar Geir slummaði Slæðudrottninguna á bak við handónýtt kofaskrifli út í sveit. 

Ekki datt mér þá í hug að ég væri svona sannspár, sjáið til hvernig komið er fyrir kerlunni nú. Ég skil núna að sumu leiti þó ekki öllu ruglið sem hefur hrjáð Slæðudrottninguna, svo sem ríkisrekið kvótabraskkerfi svo eitthvað sé nefnt. Geir er eitraðri en ég hélt og hann ber að varast, látið ekki þetta saklausa nojara baby feis blekkja ykkur.

slatrarinn.jpgHver man ekki eftir saklausa baby feisinu frá Norge sem spilaði með United lengi vel, hann var á endanum kallað SLÁTRARINN með baby feisið? Eru virkilega allir sem ættaðir eru frá Norge svona?

Verið góð hvert við annað og Ingibjörgu.

Góðar stundir.


mbl.is Forsætisráðherra á Nasdaq
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nú missa allir þvagið

ei_ur_smari_681404.jpgaf hrifningu þegar bekkjavermirinn og miðlungs gaurinn frá Fróni grísar inn einu andskotans marki þá loksins hann nennir að vera með...Halo

Þið þarna úti, verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Eiður tryggði Barcelona sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dalglish næsti stjóri Liverpool

kenny_dalglish_go_ur.jpgÞað er eitthvað sem ég gæti vel hugsað mér. Þeir sem muna meira en tvær nætur aftur fyrir sig ættu að skilja þennan áhuga minn á því að fá Dalglish aftur til Liverpool.

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Dalglish tekur ekki við Newcastle
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá liggur það ljóst fyrir

refurinn.jpgHamilton var brotlegur og því réttilega sviptur sigrinum sem hann þvingaði fram með óíþróttalegri framkomu.

Verið góð við hvert annað. 

Góðar stundir.


mbl.is Hamilton tapaði áfrýjuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá er það staðfest ég er

rembusvin.jpgakkúrat engin helvítis karlremba, það staðfestist á launaumslaginu sem er afspyrnuþunnt...Woundering

Smellið á myndina....Wink

Verið góð við hvert annað.

Góðar stundir.


mbl.is Karlrembur fá hærri laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svo mikilvæg keppni

diego_cavalieri_asamt_rafael_benitez.jpgað það er hreint enginn ástæða til að tefla fram sínu sterkasta liði. Úff það kemur að stóra skellinum með svona áframhaldi, vanmat í síðasta leik og nú á að prufa hvernig til tókst í leikmannakaupunum.

Verið góð við hvert annað.

Góðar stundir.


mbl.is Cavalieri stendur á milli stanganna hjá Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú var vitleysan toppuð og það

duglega. Hvernig hægt var að sjá mark út úr þessu er öllum óskiljanlegt nema aðstoðardómaranum, ef karlræfillinn hefur eitthvað sofið eftir þetta þá er ég hissa...Shocking

Haldið áfram að vera góð við hvert annað.

Góðar stundir.


Flokkast það undir brot á friðhelgi einkalífsins

að upplýst sé um ofbeldi sem beitt er gagnvart öðrum aðila? Ég veit ekki um ykkur en mér persónulega finnst það skylda hvort heldur einstaklingar eða fjölmiðlar upplýsi um svona mál.

Úr fréttinni "Lögmaður Benjamíns segir birtingu myndbands, sem sýnir Benjamín ráðast með grófu ofbeldi á umdeildan athafnamann, fela í sér brot á friðhelgi einkalífs sem njóti verndar stjórnarskrár og mannréttindasáttmála Evrópu"

Nú spyr ég, hvað með þann sem beittur var ofbeldinu, á hann engan rétt, má bara labba um og berja fólk í stöppu og hóta síðan málarekstri og heimta skaðabætur frá þeim sem upplýsir um málið?

Hvað er að þessum lögfræðingi sem ofbeldismaðurinn hefur, er honum hótað líka ég bara spyr? Er þetta ekki bara spurning um að finna sér vinnu sem gefur nóg í aðra hönd, þá þarf ekki að stunda svona iðju sem aukavinnu?

Eða er bara búið að éta of mikið af viðbjóði sem gengið hefur frá allri heilbrigðri skinsemi sem við jú fæðumst flest með og ræktum svo með okkur á lífsleiðinni okkur til heilla? Um þetta má svo lesa hér.

Verið góð við hvert annað. 

Góðar stundir.


Ég óska United aðdáendum til

hamingju að sleppa með jafntefli. Jafntefli var einfaldlega dauðagrís og ekkert annað, Chelsea átti að vinna þennan leik en þar sem þeir eru lítið betri en arfaslakt eða eigum við að segja úthaldlaust UTD liðið þá varð niðurstaðan jafntefli tveggja miðlungs lélegra liða. Sá sem lýsti leiknum (nenni ekki að muna hver það var) er í alvarlegri afneitun, STÓRMEISTARAJAFNTEFLI kallaði hann þetta hvernig sem það er svo hægt, ég sá bara einfaldlega ekkert stórmeistaralegt við þessa. Þarna voru 22 meðalskussar að eltast við bolta og vægt til orða tekið þá tókst skussunum ekki að gera þetta að spennandi sjónvarpsefni....LoL

Nú sem aldrei fyrr er full ástæða til að vera góð við hvert annað, munið við eigum ekki morgundaginn..Wink

Góðar stundir.


mbl.is Stamford Bridge virðist óvinnandi vígi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bílasalar með lausnina á handónýtri krónu !!!

Hvernig má það vera að þetta fyrirkomulag tryggi viðskiptavini? Sjá nánar um þetta hér . Hvað er það sem ég er ekki að skilja í þessu? Í fréttinni segir meðal annars "„Krónan er handónýtur gjaldmiðill eins og staðan er í dag," segir Leifur Örn....

Hugmyndasnauður sóknarleikur Liverpool

á móti arfaslöku liði Stoke. Eina jákvæða í leiknum var ótrúlega góð vörn Stoke. Ég hef sagt það og segi það bara aftur, það er ekki nóg að fá hálft hundrað af hornspyrnum og marktækifæri sem telur marga tugi, helvítið boltinn verður að fara í markið það...

Illa líst mér á hvernig að málum er staðið

Landhelgisgæslan lömuð og skipin bundin við bryggju. Nú er það einu sinni svo að Gæslan sér ekki eingöngu um eftirlit á hafinu, hlutverk hennar er einnig gríðarlega mikilvægur í björgun hverskonar. Sjómenn hafa alltaf búið við ágætt öryggi og vitað að í...

Ronaldo hvað?

Steven Gerrard er einfaldlega frábær, það eru allir þá meina ég allir sammála því, er það ekki? Svo er hægt að sjá fleiri snilldarmörk með drengnum hér . Þarf að ræða þetta eitthvað frekar? Er Ronaldo ekki frekar eins og helíumblaðra í jakkafötum opin...

Þetta er gott dæmi um mann sem vinnur

með rassgatinu, sjá hér . Það er ekki nóg með að hann vinni með afturendanum, hann er opinn ofan í rassgat flesta daga ársins. Hvað kallar þessi maður það sem hans félagsmenn undir hans formensku beita íslenska sjómenn og þá sem leigja sér kvóta, eða...

Auðvitað var það einhver spurning

hvernig þessi leikur færi. Ég var alveg viss í dag að Liverpool myndi landa sigri í þessum leik, en ég verð að viðurkenna það að mér leist ekkert orðið á málin í seinnihálfleik. En að því er ekki spurt hvor gerði hvað og allt það, mörkin telja og...

Að hugsa, tala og hreinlega vinna með rassgatinu

er orðatiltæki sem oft kemur fyrir í tali manna (kvenna) á milli. Það er ótrúlega oft sem þessu orðatiltæki er hent fram og þá oft á tíðum í mjög svo fjörlegum umræðum um hin ýmsu málefni eða hreinlega um einhvern sérstakan einstakling... Ég persónulega...

Um hvað viljið þið tala krúttin mín

Það er ekkert sem getur komið í veg fyrir fjörugar og líflegar umræður. Ykkar er valið og fjörið getur hafist. Þessu er lofað í stjörnuspá dagsins og ekki lýgur hún, svona lýtur spá dagsins út. BOGMAÐUR 22. nóvember - 21. desember Allt verður meira...

Misheppnað uppeldi á dóttir Geirs Haarde

Þegar maður les pistil Helgu Láru Haarde, dóttir Geirs H. Haarde forsætisráðherra á vefnum deiglan.com má alveg eins skilja það sem svo að uppeldið á henni hafi eitthvað misfarist. Í það minnsta kemur hún sjálf inn á það að staða kvenna lagist ekkert...

Liverpool er eins og Duracell kanínan

Eric Gerets, þjálfari franska liðsins Marseille, hrífst mjög af dugnaði leikmanna Liverpool á knattspyrnuvellinum og líkir þeim við Duracell kanínuna. Þessi bleika kanína rafhlöðuframleiðandans er heimsþekkt fyrir óþrjótandi frammistöðu sína í...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband