Færsluflokkur: Formúla 1

Robert Kubica, ertu galinn?

Það gleymir enginn Ferrari, ég endurtek ENGINN.

Góðar stundir.


mbl.is Kubica: „Fólk mun fljótt gleyma Ferrari"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasta beygjan

Síðasta fokking helvítis beygja, hvernig var þetta hægt? Jæja þá er þetta tímabil á enda, ég og Massa verða að bíða eitt ár í viðbót...Wink

Mig hefur lengi langað til að breyta um útlit á þessari síðu og læt það eftir mér núna. Þetta útlit verður prufað í óákveðinn tíma og sjálfsagt prufa ég eitthvað annað líka, það kemur í ljós.

Þar sem ég er ritstjóri og ábyrgðarmaður þessara síðu þá tók ég mér þann rétt að ritskoða og breyta þessari færslu frá upprunalegu útfærslu og henda henni í ruslið.

Þeir sem halda með Hamilton, til hamingju með titilinn þetta var spennandi allan tímann og ég er aumur í hausnum eftir að hafa hoppa aðeins og hátt miða við lofthæðina hjá mér í algleymi fagnaðar í örfáar sekúndur eftir að Massa kom í mark.

Núna sit ég með heilahristing og blaðra tóma dellu hér og liturinn í andlitinu á mér er svipaður og útlit síðunnar.

Góðar stundir.


mbl.is Hamilton heimsmeistari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki spurning um hvort, það er

massa_fagna_i_raspolnum_i_heimabae_sinum.jpgnánast öruggt að Massa landar titlinum á morgun.

Góðar stundir.


mbl.is Massa á ráspól í Sao Paulo og Hamilton fjórði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Felipe Massa verður

massa_fagnar_sigri.jpgheimsmeistari ökuþóra í Formúlu 1 eru menn ekki almennt sammála því?

Góðar stundir.


mbl.is Alonso fljótastur í Sao Paulo
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spanjólinn hljómar eins og Ingibjörg Sólrún

spanjolinn_i_fyrsta_gir.jpgÞetta er sjálfsagt túlkað sem varnarsigur. Svei mér þá og ég sem hélt að spanjólinn væri sæmilega viti borinn, þar fauk það...Woundering

Góðar stundir.


mbl.is Jafnar fjórða sæti við sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er svo augljóst

hamilton_vann_lotu_i_rimmunni_gegn_massa.jpgMassa er með meira bensín og keyrir þar af leiðandi lengra inn í keppnina en Hamilton hans skæðasti keppinautur...Wink Ég hef enn staðfasta og tröllvaxna trú á því að Massa verði heimsmeistari. Sjáum hvað setur, ég er að verða svolítið spenntur eins og sjálfsagt margir aðrir.

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Hamilton og McLaren með undirtökin í Fuji
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg minn dagur í Formúlunni

r_ikkonen_i_singapur.jpgÞvílíkt klúður sem Massa lenti í og það verður að segjast alveg eins og er, svona á ekki að geta komið fyrir lið í þessum gæðaflokki. En hvað um það þá er þetta að ég held þriðja skiptið sem svona uppákoma verður hjá Ferrari. Að ekki hafi orðið stórslys þarna er ekki einhverju fagvinnubrögðum að þakka, æðri máttarvöl héldu verndarhendi yfir þessari atburðarrás.

Kimi Räikkönen hélt uppteknum hætti og fátt sem kom þar á óvart, enn einn veggurinn kysstur og árangurinn einungis fjáraustur í að mér finnst ofmetnasta ökumann formúlunnar frá upphafi staðreynd.hamilton_t_h_laumar_einhverju_a_alonso.jpg

Ég náði ekki að horfa á keppnina til enda, ég þurfti frá að hverfa vegna fundar sem var töluvert mikilvægari en sjónvarpsgláp (segi frá því fljótlega) þannig að ég missti af síðustu 13 hringjunum. Ég held mig enn við það að Massa verði heimsmeistari.

Ég óska þeim til hamingju með sína menn sem komust á verðlaunapallinn. Það verður ekki annað sagt en þetta hafi verið ansi skrautlegt í það minnsta það sem ég sá.

Þetta gerist ekki oft, mynd af spanjólanum er á síðunni minni, ég er að mýkjast með árunum...Wink

Verið góð hvert við annað, og mig líka ég þarf á því að halda...Whistling

Góðar stundir.


mbl.is Räikkönen segir titilinn runninn sér úr greipum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Massa verður heimsmeistari

keppinautar_oska_massa_til_hamingju_i_vigtunarklefanum_i_singapur.jpgÞað er ekki spurning að drengurinn klárar þetta með stæl og landar titlinum. Árangurinn í tímatökunni er að ég held forsmekkurinn að því sem koma skal.

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Massa vann ráspól eftir spennandi keppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá liggur það ljóst fyrir

refurinn.jpgHamilton var brotlegur og því réttilega sviptur sigrinum sem hann þvingaði fram með óíþróttalegri framkomu.

Verið góð við hvert annað. 

Góðar stundir.


mbl.is Hamilton tapaði áfrýjuninni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fiatinn alveg út á túni

fiat.jpgog óhætt að segja að slátturinn hafi gengið brösuglega. Ég hef ekkert um þessa keppni að segja nema til hamingju Vettel.

Ps. Rækjan verður að sætta sig við að vera varadekk hjá Massa það sem eftir er af tímabilinu það er ljóst.

Góðar stundir.


mbl.is Snilldarsigur hjá Vettel í erfiðri Monzabrautinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband