mán. 15.9.2008
Þar sem enginn veit
neitt með nákvæmum hætti þá er algjörlega nauðsynlegt að bregðast við með þeim sem hætti sem enginn veit hver er...
Þegar svo brugðist hefur verið við með þeim hætti sem enginn veit hver er enda veit enginn neitt,
þá fyrst er hægt að meta hver áhrifin nákvæmlega eru á óvissuþættinum sem enginn veit nokkuð um og hvort það sé yfir höfuð einhver hætta,
nema þá helst af Alþjóðlega dýraverndunarsjóðnum, IFAW sjálfum og þeim prelátum sem þar eru....
Þvílík vitleysa, er þetta virkilega orðrétt haft eftir þessum blábjánum? Ef svo er þá er rétt að spyrja þá til nafns, ég stórefast um að þeir viti svarið....
Góðar stundir.
![]() |
Of mikill hávaði í hafinu fyrir sjávarspendýr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mán. 15.9.2008
Fullkominn úrgangur
Þetta er táknrænt fyrir það hvernig sjávarútvegurinn er að verða. Fiskverkunarhús sem áður skapaði fjölda manns vinnu og lagði sitt af mörku til þjóðarbúsins með gjaldeyrisskapandi framleiðslu er orðin fullkomin móttökustöð fyrir úrgang.
Reyndar kemur ekkert annað orð en risastór úrgangur upp í mínum huga þegar ég hugsa um þetta blessaða kvótakerfi og hvernig það hefur farið með fjölda staða á landsbyggðinni og skilið eftir sig slóð eyðileggingar og fjöldauppsagnir fólks. Það kemur sá dagur að það verður ekkert fólk til sem kann til verka jafnt í landvinnslu sem á sjó. Það getur (vil) enginn hanga í lausu lofti með það hvað verður kannski á morgun ef einhver önnur vinna býðst.
Það sem átti að byggja svo glæsilega upp atvinnuöryggi á landsbyggðinni og margfalda stofnstærð þorsks (kvótakerfið) hefur snúist svo herfilega upp í andstæðu sína að leitun er að viðlíka viðsnúningi. Á sama tíma og við höfum gjaldeyrinn (fiskinn) syndandi hringinn í kringum landið er ríkisstjórnin og Seðlabankinn að rembast eins og hálfdauð hæna við ennþá meiri skuldasöfnun í formi lántöku svo gjaldeyrisstaða Seðlabankans teljist viðunnandi.
Ekki vænkast fjárhagur minn með meiri yfirdrætti það er ljóst, það gerist heldur ekki hjá Seðlabankanum með aukinni lántöku, þetta eru ekkert flókin fræði við verðum að framleiða meira og það getum við gert strax á morgun. Við eigum ennþá eitthvað eftir að bátum og skipum, eina sem vantar er að leyfa okkur að veiða meira, það er minni áhætta tekin með því að veiða meira frekar en skuldsetja þjóðfélagið enn frekar og finnst mörgum nóg komið í þeim efnum.
Góðar stundir.
![]() |
Fiskverkun verður gámastöðin Enni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 14.9.2008
Fiatinn alveg út á túni
og óhætt að segja að slátturinn hafi gengið brösuglega. Ég hef ekkert um þessa keppni að segja nema til hamingju Vettel.
Ps. Rækjan verður að sætta sig við að vera varadekk hjá Massa það sem eftir er af tímabilinu það er ljóst.
Góðar stundir.
![]() |
Snilldarsigur hjá Vettel í erfiðri Monzabrautinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 14.9.2008
Þenji sig upp í 30 þúsund dB
hávaða er ekkert smotteri en með þrumandi röddu bæjarstjórans sem forsöngvara er
hreint ekki álíklegt að þetta takist. Að sjálfsögðu er sungið, það er gott að búa í Kópavogiiiiiiiiii...
Þessu hljóta að fylgja talsverðir vindverkir.
Verið góð við hvert annað í dag.
Góðar stundir.
![]() |
Kópavogsbúar þenja sig í 30 þúsund |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 13.9.2008
Hafi það einhvern tímann verið sætt að vinna United
þá var það núna, Við félagarnir, ég á við þennan hér sátum eins og saklausir smástrákar í sunnudagaskóla í öllum hávaðanum sem var í biluðum aðdáendum beggja liða sem troðfylltu Allann og drukkum kaffi yfir dýrðinni á skjánum, það var ekki til Egils Appelsín þarna...
Doddi dýrðardindill komst ekki vegna vinnu en hann kemur bara næst strákurinn. Það þarf ekkert að fjölyrða neitt um leikinn, jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Liverpool var síðan betra liðið í þeim seinni og vann verðskuldaðan sigur.
Þessi gaur hafði fulla ástæðu til að halda um hausinn.
Ekki veit ég hvað gerðist með myndavélina en allar myndirnar sem ég tók meðan á leiknum stóð mistókust...
Kveðjuorðin voru einföld hjá félaga Víðir "ég horfi aldrei á fleiri leiki með þér"
ekki vissi ég að ég væri svona djöfull leiðinlegur en þetta flokkast undir persónulegt met hjá mér, að það taki ekki nema einn fótboltaleik og nokkur einföld sárasaklaus fögn að koma sér í ónáð....
Hann jafnar sig í vikulokin strákurinn trúi ég.
Góðar stundir.
![]() |
Babel tryggði Liverpool langþráðan sigur á Manchester United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Að það skuli duga að troða sokk eða einhverju drasli í naríurnar til að slökkva á allri rökrænni og heilbrigðri hugsun kvenna er ótrúlegt.... Svo gera þær óspart grín að okkur þessa elskur þegar við gægjumst aðeins á það sem við vorum vandir á í uppeldinu, það er brjóstin. Á því bera konur alla ábyrgð og ekki við okkur að sakast....
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 13.9.2008
Dómsmálaráðherra er ótrúlega hrokafull skrúfa
Það vekur furðu mína að Björn Bjarnason geti gengið um með yfirlýsingar og dóma um þá sem eru honum lítt þóknanlegir án þess að þurfa að taka afleiðingum þess með afsögn á ráðherradómi sínum. Margir hafa hrökklast frá af minna tilefni.
Varla hlakkar í Birni

Föstudagur 12. september 2008 kl 16:42
Fróðlegt verður að sjá hvort Björn Bjarnason dómsmálaráðherra færir inn viðlíka færslu á heimasíðu sína vegna gjaldþrots XL ferðaþjónustufyrirtækisins í Bretlandi og á dögunum þegar hlakkaði í honum vegna gjaldþrots Nyhedsavisen í Danmörku. Dómsmálaráðherra talaði um Baugsmiðil og var augljóslega skemmt yfir óförum fyrirtækis tengdu feðgunum í Baugi . Hann efaðist um viðskiptavit þeirra sem komið hefðu að útgáfunni og hneykslaðist á milljörðunum sem töpuðust vegna gjaldþrotsins. Sagist Björn undrast hvaðan peningarnir kæmu. Nú neyðast feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor til að hlaupa til og bjarga Landsbankanum frá stórtjóni með því að leysa til sín 25 milljarða lán bankans til hins breska félags. Þar með bjarga þeir hluthöfum Landsbankans frá verulegu áfalli en í þeirra hópi er fyrirferðamikill Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og stórvinur Björns. Sjálfsagt vita kumpánarnir Björn og Kjartan hvaðan peningarnir koma í tilviki Landsbankans og Eimskipa og hljóta að hrósa happi fyrir hönd Kjartans og annarra hluthafa í bankanum. Undir þeim kringumstæðum er ástæðulaust að efast um viðskiptavit bjargvættanna. Hluthafar Eimskipa eru ekki eins heppnir því eigið fé fyrirtækisins hefur skroppið saman eftir gjaldþrot XL og er aðeins 5% samkvæmt nýjustu fréttum því félagið var í bakábyrgð fyrir láni Landsbankans til XL.
Höfundur: ritstjorn@dv.is Grein lýkur.
Eitthvað er minnið að hrjá Björn Bjarnason eða þá að hann treysti því að enginn muni nokkurn skapaðan hlut lengur. Það vil einfaldlega þannig til að Björn er ekkert öðruvísi en margur annar og telst bara venjulegur Jón að vísu full mikill hrokagikkur en sleppum honum með það. Björn Bjarnason á sér fortíð eins og allir aðrir sjá hér það bara muna það ekki allir.
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 12.9.2008
Gerrard og Torres komnir í gírinn
og svo er aldrei að vita nema Pepe Reina laumi inn einu svona marki á meðan Hollenski sláninn í marki United stendur eins og steinrunninn uppvakningur og lætur sig dreyma um að þeir eignist einhvern tímann svona frábæra stuðningsmenn.
Góðar stundir.
![]() |
Torres og Gerrard klárir í slaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 12.9.2008
Var þetta allt saman ýsa?
Eitthvað segir mér það nú að töluvert af þessari svo nefndu ýsu sé í raun allt önnur tegund sem vil þvælast ótrúlega mikið fyrir þegar menn reyna sitt besta að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru með þessu arfabrjálaða kvótakerfi. Tegundin er gul og að mati vísindanna er tegundin orðin frekar sjaldgæf á Íslandsmiðum, já við erum að tala um Þorskinn gott fólk.
111 þúsund tonn er aldeilis frábær árangur og ef sagan er skoðuð þá hefur aldrei verið veitt svona mikið af ýsu af Íslendingum sjálfum. Hvernig menn geta fengið þetta út og trúað því líka er mér gjörsamlega ómögulegt að skilja. Við þurftum hjálp frá öðrum þjóðum á árum áður til að ná þessum árangi og þá voru einnig veidd fleiri hundruð þúsund tonn af þorski með allri ýsunni.
Þetta afrek Íslenskra skipstjóra er alveg einstakt og hlýtur að verða skráð í sögubækurnar, að geta í alvörunni gert lang stærsta botnfiskstofninn við Ísland (Þorskinn) að léttvægum meðafla með öðrum veiðum er og hlýtur að teljast algert heimsmet í hárnákvæmum veiðum í heimsins besta kerfi (kvótakerfinu) sem um getur í fiskveiðum á alþjóðavísu.
Það er greinilega ekki að ástæðulausu sem Íslenskir sjómenn séu taldir með þeim allra bestu í heimi og Íslenska kvótakerfið heimsins besta kerfi sem fundið hefur verðið upp. Þegar það í alvörunni gengur upp að vísindaelítan segir að það megi ekki veiða meira af ákveðinni tegund þá bara einfaldlega veiðist ekki meira af henni en sagt er að megi veiða. Já kvótakerfið lætur ekki að sér hæða, það svín virkar sem heimsins flottasta og afkastamesta flokkunarkerfi sem fundið hefur verið upp, með fullri virðingu fyrir Marel og allri þeirri tækni sem þeir búa yfir.
Ég skammast mín hálfpartinn fyrir að hafa tekið þátt í þessu og látið kvelja mig áfram í gengdarlausu brottkasti sem er og verður alltaf mannskemmandi í óbreyttri mynd, að starfa undir þeim ósköpum að misvitri menn hringi daglega um borð og panti hina og þessa tegund af fyrirfram ákveðinni stærð hefur farið ansi illa með margan góðan manninn og ekkert lát er á þvælunni.
Fyrirskipanir um að koma ekki með þorsk undir ákveðinni stærð í land er ekki alveg fyrir alla og þeim fer fjölgandi sem sem ekki geta sætt sig við og unnið undir þessum kvöðum. Ég spyr og í fúlustu alvöru, hvað var miklu hent af þorski aftur í sjóinn á nýliðnu kvótaári, 50 - 70 þús tonnum eða meira? Það er alveg ljóst að minna var það ekki, það þori ég að fullyrða.
Góðar stundir.
![]() |
Mikill ýsuafli á síðasta fiskveiðiári |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 12.9.2008
Þessar myndir er þokkalega táknrænar fyrir þessa frétt.
Er Íslenska viðskiptamótelið að brenna upp?
Góðar stundir.
![]() |
Forstjóri XL tárvotur í viðtali |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 12.9.2008
Vonandi, það er ekki spurning
fim. 11.9.2008
Mafíuforingi kosinn formaður samtaka!!!!
fim. 11.9.2008
Strangheiðalegt lið Ferrari brosir bara
Formúla 1 | Breytt s.d. kl. 14:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 11.9.2008
Verðum vonandi metnir í sama gæðaflokki og Liverpool
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
mið. 10.9.2008
Ég fékk klukku á kaf í ...........
Bloggar | Breytt 11.9.2008 kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 10.9.2008
Hvar eru náttúruverndarsinnar og allir hvalavinirnir ?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 10.9.2008
Eru engin takmörk á heimskunni ?
mið. 10.9.2008
Það er skítalykt af þessu
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 10.9.2008
Liverpool og Chelsea eru afrekslið í heimsklassa
þri. 9.9.2008