Færsluflokkur: Íþróttir

Svíar eru allsstaðar til vandræða (mynd)

vandrae_agemsar.jpg

þá meina ég allsstaðar í handbolta líka....Shocking

Góðar stundir.


mbl.is Aukin harka í deilu Ísraela við Svía
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og nú missa allir þvagið

ei_ur_smari_681404.jpgaf hrifningu þegar bekkjavermirinn og miðlungs gaurinn frá Fróni grísar inn einu andskotans marki þá loksins hann nennir að vera með...Halo

Þið þarna úti, verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Eiður tryggði Barcelona sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormur í vatnsglasi

ferrari_666814.jpgÞetta er eitthvað sem við Ferrari aðdáendur þurfum ekki að óttast.Cool Hvernig dettur einhverjum í hug að það sé eitthvað annað í gangi, það er strangheiðarlega staðið að hlutunum og öllum lögum og reglum fylgt til hins ýtrasta hjá Ferrari???Shocking

Góðar stundir.


mbl.is Mótor Massa rannsakaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útúrdópaðir hasshausar í íþróttum !!!

sumo.jpgÞað þarf enga sérfræðinga til að sjá að þessir gaurar eru að dunda með einhver einkennileg efni...Wizard Hvaða heilvita manni dytti til hugar að koma fram á opinberum vettvangi sýlspikaður íklæddur risastórri bleyju og halda það í alvörunni að hann sé sá flottasti á ballinu....W00t

Góðar stundir.


mbl.is Hneyksli í súmóglímuheiminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíti gott að stela stigi

af Norðmönnum á heimavelli. Þeir stálu Keikó af okkur með lævísum lúðabrögðum og steindrápu hann svo úr leiðindum....Devil Um leikinn hef ég akkúrat ekkert að segja enda horfði ég ekki á hann, ég eyddi seinni hluta þessa dags í bloggarahitting á kaffi Karólínu. Þar var ekkert steindautt jafntefli, nei öðru nær það var mikið fjör á fólkinu og enginn að spá í einhvern hundómerkilegan fótboltaleik, ég þakka fyrir frábæran dag.

Góðar stundir.


mbl.is Frábær úrslit í Osló
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvar er þotuhyskið núna?

fatla_ur.jpgFyrir mína parta þá er þetta sú aumasta vanvirðing sem hægt er að sýna þessum frábæru einstaklingur sem eru á og taka þátt í Ólympíuleikum fatlaðra sem nú stendur yfir. Það vantaði ekkert upp á flottheitin hjá þotuhyskinu fyrir örfáum dögum, þá var öllu tjalda til sem hægt var og réttlætt á alla mögulega og ómögulega vegu.Devil

Nú er ég loksins hneykslaður...Shocking Ég er farinn á bloggarahitting....WizardWizardWizard

Á meðan góðar stundir.


mbl.is Fatlaðir ósáttir við konungborna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað var hann og er enn barnalegur !!!

barnalegur_gaur.jpgbarnalegur_662344.jpgÁn efa það gáfulegasta sem gaurinn hefur sagt á undanförnum árum.Wink  Sjá allt um það hér.

 

 

Góðar stundir.                                                                                                           


Ulrik Wilbek landsliðsþjálfari Dana hlýtur

ulrik_wilbek_landsli_sthjalfari_dana.jpgað hafa fengið sér aðeins of marga bjóra og skot með áður en hann fór í þetta viðtal. Ekki trúi ég því að það standi og falli með einum baunatitt hvort stórmót á borð við Ólimpíuleika vinnist eða ekki...Woundering

Ef svo er þá er ekki bjart framundan í Dönskum handbolta....Shocking sem er reyndar aldeilis fínt fyrir okkur Íslendinga....Wizard

Góðar stundir.


mbl.is Wilbek hefur fundið skýringuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær árangur

silfur.jpgþað geta allir verið stoltir af strákunum þótt úrslitaleikurinn hafi ekki unnist. Það kemur bara næst.

Góðar stundir.


mbl.is Íslendingar taka við silfrinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvaða helvítis væl er þetta !!!

Strákarnir hafa staðið sig með sóma og verið landi og þjóð til fyrirmyndar. Í þessum riðli er ekkertstrakarnir_flottir.jpg sjálfgefið og bara það eitt að komast í 8 liða úrslit er frábær árangur. Við skulum ekki gleyma því að það tekst einungis átta liðum á þessari plánetu.

Að litla Ísland sé í þeim hópi er stórkostulegt, á móti hverjum liðið lendir eða hverjum liðið hefði lent ef þeir hefðu verið í hinu eða þessu sæti í riðlinum skiptir akkúrat engu máli, það eru engin aumingjalið sem komast áfram í þessari keppni. Nú er bara að styðja við bakið á strákunum við getum verið rígmontin og stolt af þeim, ÁFRAM ÍSLAND.

Góðar stundir.


mbl.is Aftur gerði Ísland jafntefli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband