Verkalýðsforustan er ekki fyrir verkafólk

Það undirstrikar Gunnar Páll duglega með gjörðum sínum. Verkalýðsforustan hefur fyrir löngu síðan steingleymt hlutverki sínu og lætur það yfir sig ganga að lámarkslaun á Íslandi séu undir hungurmörkum.

Eina sem gæti komið verkalýðsforustunni aftur inn í raunveruleika almennings er að þeir sæti sömu kjörum og lægstu launataxtar umbjóðendur þeirra segja til um. Hvað réttlætir það að þessi forusta skuli vera stríðalin á velmegunarlaunum þegar þeir standa sig ekki betur og verða síðan uppvísir að svona gjörningum eins og Gunnar Páll.

Ég leyfi mér að efast um heilindi þessara manna/kvenna þegar kemur að kjarasamningum fyrir almúgann sem þeir eiga greinilega ekki í neinum vandræðum með að taka í ósmurðan afturendann í skjóli myrkurs og reykfylltum bakherbergjum í þágu græðgi auðvaldsins.

Árangurstengja launin hjá verkalýðsforustunni og þeir eiga aldrei að hafa meira en þeir lægst launuðu, það er krafa dagsins í dag.

Er hægt að kalla Gunnar Pál þjóf í þágu gráðugra auðmanna? Ef svarið er á einhvern hátt jákvætt þá á að reka hann samstundis úr öllum ábyrgðarstöðum og störfum hjá VR.

Góðar stundir.


mbl.is Nýtur trausts stjórnar VR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Amma íhaldsins er fundin

og ver að sjálfsögðu hjörðina sína með kjafti og klóm sjá hér.

Góðar stundir.


mbl.is Ekki hægt að taka aðra ákvörðun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fálkaorðuna á snillinginn sem

_gimmeakiss_720187.jpgskipti seðlinum og flengja fábjánann sem tók við seðlinum með hálfvitaorðunni.

Góðar stundir.


mbl.is Notaði seðil með mynd af Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég bara einfaldlega

nenni ekki að tjá mig um þennan leik, góða nótt.

Góðar stundir.


mbl.is Liverpool slapp með skrekkinn - Chelsea lá fyrir Roma - Eiður á bekknum allan tímann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hriktir víða, myndband af heimatilbúnum skjálfta

Er nema von að eitt stykki skjálfti skuli ríða yfir þegar allt leikur á reyðaskjálfi í þjóðfélaginu. Svona gengu menn um og komu að stað risavöxnum skjálfta.

Skoðum seinni hlutann líka.

Góðar stundir.


mbl.is Snarpur skjálfti við Grindavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú hafa rúmlega 200 þúsund einstaklingar heimsótt

þessa síðu og færslurnar eru rétt tæplega ellefu hundruð. 10 Apríl á síðasta ári byrjaði ég með þessa síðu og það er ekki úr vegi að setja hlekk á fyrstu færsluna, það kemur kannski ekki á óvart um hvað hún fjallaði en hana má lesa hér. Það er ótrúlegt að skoða þetta á þennan hátt. Að ég þessi hlédrægi og feimni strákur hafi náð þeim áfanga í lífinu að henda mér út í djúpu laugina og byrja að tjá mig opinberlega.

Margt áhugavert er að finna á þessari síðu og margt sem er náttúrulega tóm steypa og grín eins og er hjá flestum sem halda úti svona síðum. Það sem hefur gefið mér hvað mesta ánægju við þetta eru þeir vinir sem ég hef eignast á þessum tíma. Eins og gefur að skilja eru þetta mjög mismunandi einstaklingar staddir á ólíkum stöðum í þjóðfélaginu, en eitt eiga þeir allir það sameiginlegt að vera einstaklega skemmtilegir, jákvæðir og opinskáir.

Ég tel það forréttindi að hafa fengið þetta tækifæri að kynnast ykkur kæru vinir, samheldnin er svo ótrúleg sem ég hefði aldrei trúað því að það gæti gerst með þessum hætti án þessa að upplifa það sjálfur. Á þessum tíma hef ég einungis þurft að loka á einn einstakling, sem er ótrúlega lítið miða við þann fjölda sem hér hefur komið við.

Þótt ég sjálfur hafi byrjað með sorakjaft og skítkast í allar áttir þá hafa umræður og skoðanaskipti á síðunni að mestu farið mjög kurteisilega fram og þakka ég fyrir það. Eitthvað hefur síðuritari lagað málfarið og vil ég kalla það ákveðið þroskaferli í tjáningarsamskiptum við annað fólk.

Ég neita því ekki að stundum á ég það til að missa mig og bregða fyrir mig tungumálinu góða sem ég er alinn upp við og kallast á fagmáli, óhefluð Íslenska að hætti sjóara. Það er svo sem á vissan hátt afar eðlilegt þar sem ég hef verið á sjó frá fjórtán ára aldri og eiginlega aldrei komist í takt við það sem ég kalla stundum, kvenlega snyrt tungumál og notast eingöngu á stórhátíðum.

Ég þakka ykkur öllum fyrir innlitin og athugasemdirnar. Hlustum að lokum á tónlist sem fær mig til að setjast auðmjúklega niður og kela krúttlega við mína ekta frú. Henni verður boðið á tónleika Frostrósa þegar þær koma til Akureyrar.

Góðar stundir.


Brot á Íslenska

brottkast_718733.jpgfiskveiðistjórnunarkerfinu eru framin daglega allt árið og nánast um borð í hverju einasta skipi. Fiskveiðistjórnunarkerfi Færeyinga er sennilega eitt það skilvirkasta kerfi sem fyrir finnst í Norðurhöfum.

Góðar stundir.


mbl.is Endurskoða þarf fiskveiðistjórnunarkerfi ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prinsessan á bauninni fær sérmeðferð að hætti

prinsessan_a_bauninni_718720.jpgíhaldsins. Inga Jóna Þórðardóttir eiginkona Geirs Haarde trónir í hásæti íhaldsins og situr ekki auðum höndum. Íhaldið sér skratti vel um sig og sína, Inga Jóna tók á fimmtudaginn var við stjórnarformennsku Listahátíðar og eitthvað eru menn ekki alveg sáttir við það sjá hér.

Ef ég man rétt þá var Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs H. Haarde, forsætisráðherra, skipuð formaður bygginganefndar hátæknisjúkrahúss - sem tók við verksviði nefndar sem Alfreð Þorsteinsson, guðfaðir vinstrimeirihlutans í Reykjavík stýrði áður með fyrrnefndu Ingu Jónu sem varaformann sjá hér.

Íhaldið hefur alltaf séð sér og sínum fyrir bestu bitunum á kostnað annarra, í þessu tilfelli þá þurfti að gera upp smávægilegan ágreining á milli íhaldsins og Framsókn sjá hér. Það muna væntanlega einhverjir eftir stríðinu á milli Guðlaugs Þórs og Alfreðs Þorsteins í Hitaveitunni.

Íhaldið klikkar ekki á smáatriðunum.

Góðar stundir.


mbl.is Bankamenn fá ekki sérmeðferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hannes Hólmsteinn klappstýra íhaldsins

sér á einhvern undurfurðulegan hátt fulla ástæðu til að uppnefna forseta Íslands og líkja honum við klappstýru SJÁ HÉR. Hvað Hannesi gengur til er ekki gott að segja en sennilega dettur Hannesi það eitt í hug að þetta mætti nota sem útpælda óróðursherferð til að breiða yfir eigin skítverk.

Einnig gæti hugsanlega verið ótti í huga Hannesar, óttinn við að missa tökin á einsleitum boðskapi frjálshyggjunnar um eigið ágæti og meistaralegar fjáruppsprettur lyginnar. Hannes Hólmsteinn boðaði fagnaðarerindi um gjörvalla heimsbyggðina og lýsti því nákvæmlega hvað kvótakerfið væri ævintýralega góð uppspretta fjármagns.

Fjármagn sem tekið var að láni og var í rauninni aldrei nein innistæða fyrir. Hvernig Hannesi og félögum gat dottið það til hugar að veðsetning stjarnfræðilega hátt upp fyrir öll rök á fiski sem enn syndir í sjónum og á enn eftir að klekjast út næstu áratugi ef ekki árhundruð gæti í alvörunni gengið gengið upp er vonlaust að giska á.

Sennilega reiknuðu snillingarnir ekki með því að þeir yrðu berstrípaðir einn daginn og reiknimeistarar frjálshyggjunnar fengju lygina á ofsahraða þráðbeint í hausinn með tilheyrandi brotlendingu. Klappstýran og boðorðapostulinn Hannes Hólmsteinn ber einhvern handónýtan titil við nafn sitt sem hefur nýst honum til margvíslegra skítverka. Misnotkun á veraldarvef æðstu menntastofnunnar landsins, ritstuld, setu í Seðlabankaráði og misnotkun á því sem kallast á lýðræðislegar hugsanir og vinnubrögð svo fátt eitt sé nefnt.

Það er ekkert slor að vera titlaður prófessor undir verndarvæng íhaldsins og geta gengið nánast sjálfala af eigin geðþótta við heilaþvott almúgans í anda Hitlersisma.

Góðar stundir.


Stjórn og framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

englarnir.jpghljóta að vera himinlifandi yfir fréttum á borð við ÞETTA og þessa FRÉTT HÉR og meira HÉR. Þetta eru sjálfsagt bara brot af því sem gert hefur verið. Aðrir hugsanlegir lánveitendur hljóta einnig að hugsa sinn gang í framhaldi af þessum fréttum. Hver býst við að trúverðugleiki íslenskra stjórnvalda aukist þegar svona fréttir æða yfir heimsbyggðina? Það eru jú stjórnvöld sem þagað hafa yfir þessu og halda mætti að þeir beinlínis styðji við þessar aðgerðir.

Hvernig í ósköpunum datt ríkisstjórninni og Seðlabankanum í hug að lána Kaupþingi risaupphæð rétt fyrir gjaldþrot bankans? Þetta þarf að rannsaka ásamt fjölmörgum öðrum hlutum.enron_thjofarnir_717992.jpg

Myndin hér til hægri segir eitthvað um það hvar ég vil geyma þetta lið á meðan rannsókn fer fram.

Góðar stundir.


mbl.is Íslandslán rætt á föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í sögulegu samhengi þá er þetta lán

rétt nóg til að dekka skuldir Samherja og HB Granda. Nojarinn er og hefur alltaf verið rausnarlegur við vini sína, miða við þetta þá erum við tæplega á þeim lista. Góðar stundir.

James Murphy sendur til að rukka skuldir

Íslensku bankanna. Það má þó segja eitt um Skotana, þeir eru kurteisir og koma sjálfir til að rukka útistandandi skuldir. Því erum við ekki vön, á almenning eru sendar heilu hersveitirnar af lögfræðingum og innheimtustofnunum svo sem Intrum, Rein og hvað...

Flakkað um heiminn

ég rakst á þetta á einhverri síðu og forvitnin rak mig að sjálfsögðu áfram. Ég pikkaði inn þau lönd sem ég hef komið til og þetta er útkoman. visited 18 states (8%) Create your own visited map of The World or determine the next president Góðar...

Síðasta beygjan

Síðasta fokking helvítis beygja, hvernig var þetta hægt? Jæja þá er þetta tímabil á enda, ég og Massa verða að bíða eitt ár í viðbót... Mig hefur lengi langað til að breyta um útlit á þessari síðu og læt það eftir mér núna. Þetta útlit verður prufað í...

Að fá 635 kílóa skítahaug í hausinn

er hreint ekki svo slæmt að mati NASA, þeir halda því fram að það sé aldeilis ólíklegt að drullutankurinn valdi nokkru tjóni. Þá er bara spurning hvar lendir drulluhrúgan? Vita þeir það kannski fyrir víst að hann hann dúndrist niður í Seðlabankann, það...

Menn hafa sjálfsagt tekið eftir því

að ég hef ekkert tjáð mig fyrirfram um þennan leik. Ástæðan er einföld, kristalkúlan góða spáði tapi að vísu spáði kúla 3 - 2 fyrir Tottenham. Ég véfengi aldrei spár kúlunnar, halda mætti að ég sé innmúraður íhaldsmaður sem steinheldur kjafti yfir...

Við þurfum fljótlega tvær plánetur

Aðra notum við sem þræla og fanganýlendu, ef fylgi íhaldsins er til dæmis 22% þá segir sig sjálft að 22% íbúa landsins verða sendir strax til nýju plánetunnar í þrælavinnu fyrir okkur hin sem höfum hagað okkur sómasamlega á þessari plánetu. Hugsa mætti...

Þetta er ekki spurning um hvort, það er

nánast öruggt að Massa landar titlinum á morgun. Góðar stundir.

Í Apríl sagði Geir Haarde okkur

að allt væri í þessu fína lagi. Það var gengið svo langt að halda því fram að hvergi á byggðu bóli væri betra að vera en á Íslandi. Ísland er eftirsótt og í rauninni öfundsvert að vera ábúandi í allri dýrðinni. Við höfum verið höfð gróflega að fíflum,...

Álver á Bakka slegið útaf borðinu

Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra sá svo eftirminnilega um það að af framkvæmdum við álver á Bakka yrði ekki á næstu árum með kröfu um heildstætt umhverfismat... Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri Norðurþings tekur þessu sem hverju öðru...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband