Óttast að kreppan bíti Liverpool í janúar

eigendur_liverpool.jpgKeith Harris, maðurinn sem tekið hefur þátt í að semja um yfirtöku á fimm félögum í ensku úrvalsdeildinni, segist óttast hið versta fyrir hönd Liverpool á næstu mánuðum.

Harris var einn af mönnunum sem sá um að keyra í gegn yfirtöku á Chelsea, Aston Villa, Hull, West Ham og Manchester City og hann segir að Liverpool gæti þurft að selja leikmenn í janúar til að mæta gríðarlegum skuldum eigenda félagsins.

Sagt er að þeir Tom Hicks og George Gillett hafi tvo mánuði til að greiða allt að 350 milljón punda skuldir tengdar félaginu. Þetta og meira á visir.is.

Jæja nú er bara að bíta á jaxlana sem eftir eru og vona það besta, ég trú því að menn leysi þetta smávandamál fljótlega.

Góðar stundir.


Jæja, vitleysunni verður flest að vopni

Hver var upphaflegi tilgangurinn með kvótakerfinu? Vað tilgangurinn í alvöru sá þjappa aflaheimildunum saman á svo fáa að nauðsynlegt sé að rýmka heimildir til geymslu á milli ára? Var tilgangurinn sá að ræna sjávarbyggðirnar viðurværi sínu? Var tilgangurinn sá að hneppa menn í ævarandi þrældóm kengbeygða í leiguþrælkun græðginnar?

Er ekki einmitt á tímum sem þessum full ástæða til að setja geymsluréttinn á 0 frekar en hækka hann? Það í það minnsta hvetur menn frekar til veiða en sitja heima.

Eitthvað eru menn komnir óravegu frá upphaflega tilganginum, nema það hafi hreinlega alltaf verið tilgangurinn að ganga svona um sameign þjóðarinnar. Það er að segja hneppa íbúana í þrælkun og ræna það lögvarði eign sinni með hjálp mis vandaðra stjórnmálamanna. Bara svo það sé á hreinu þá kemur hér fyrsta grein laga um stjórn fiskveiða, fólk getur svo borið þetta saman við árangurinn af þessu kerfi sem við höfum.

I. kafli. Almenn ákvæði.
1. gr. Nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign íslensku þjóðarinnar. Markmið laga þessara er að stuðla að verndun og hagkvæmri nýtingu þeirra og tryggja með því trausta atvinnu og byggð í landinu. Úthlutun veiðiheimilda samkvæmt lögum þessum myndar ekki eignarrétt eða óafturkallanlegt forræði einstakra aðila yfir veiðiheimildum.

Góðar stundir.


mbl.is Mega geyma þriðjung kvótans milli ára
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafnaði brottkasti og varði málstað

brottkast_724411.jpgsinn með hnífi. Eins og kemur fram í fréttinni þá var maðurinn ölvaður, það er ekkert skrítið það er varla komandi nálægt þessu lengur bláedrú.

Þetta finnst mér mun líklegra en það að karlræfillinn hafi verðið eitthvað ósáttur við brottfaratímann. Brottkast fer illa með alla nema þá sem fyrirskipa það.

Góðar stundir.


mbl.is Ógnaði skipverjum með hnífi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er fásinna að halda því fram

brottkast_723915.jpgað stunda sé brottkast hjá útgerðum sem skráðar eru í samtök Líú. Það sér það hvert mannsbarn að þetta getur ekki staðist. Friðrik J. Arngrímsson talsmaður Líú og flokksfélagi hans, æi þið vitið alveg hvern ég er að tala um, þennan sem setti Bolungarvík nánast á hausinn á sínum tíma halda því fram að það séu bara kvótalausir trillukarlar sem stunda brottkast.brottkast_miki.jpg

Brottkast í besta og fullkomnasta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi, er fólk ekki með öllu mjalla það getur bara alls ekki staðist. Spyrjið bara Friðrik J, gjaldþrota bolvíkinginn og Gestapó foringjann á Fiskistofu. Vitið til svörin verða eitthvað á þá leið að trillukarlarnir séu stórhættulegir og einu ábyrgu aðilarnir í sjávarútvegi eru félagsmenn LÍÚ, ef þeir þá á annað borð svara þessir andsk..... hrokagikkir.

Góðar stundir.


mbl.is Nýta mætti verðmætin mun betur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pjúff þá geta allir andað léttar, Hannes

Smárason gerði akkúrat ekkert af sér. Hann sagði það og mbl.is birti það, þá getur það ekki annað en verið satt...W00t

En hvað er annars að frétta, eru ekki allir glaðir? Chelsea vann í dag eitthvað áhugamannalið sem ég man ekkert hvað heitir enda vil enginn vita hvað sá heitir sem tapar...Whistling Til lukku Chelsea aðdáendur.klart.jpg

Ég var eitthvað að dunda á efri hæðinni í dag, sumir höfðu enga trú á því að þetta kláraðist en ég vissi betur og frúin getur vökvað sundfitin í fyrramálið...Wink

Góðar stundir.


mbl.is Hannes vísar ásökunum á bug
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er kominn Sunnudagur með nýjar væntingar

og góða skapið á skilyrðislaust að taka völdin. Lesið þetta og gleðjist með mér.

Íslensk hjón röltu inn á á  málverkasýningu í Nútímalistasafninu í
Glasgow. Þau staðnæmdust við eitt  málverkanna sem þau botnuðu ekkert í.
Verkið sýndi 3 kolsvarta og kviknakta  karlmenn sitjandi á bekk í
almenningsgarði. Það sem vakti mesta undrun þeirra  var að svarti
maðurinn í miðið var með skærbleikt tippi en hin tvö voru  svört.

Safnvörður veitti hjónunum athygli og gerði sér grein fyrir því að  þau
voru að velta fyrir sér merkingu verksins. Hann hélt  nærri
korters fyrirlestur um hvernig verkið endurspeglaði ofuráherslu á  hinn
kynferðislega þátt í lífi og umhverfi svarta kynstofnsins í  hvítu
samfélagi. Og bætti því við að ,,sá bleiki” væri jafnframt vísbending um
sérstöðu hommans á meðal karlmanna.

Þegar safnvörðurinn hafði lokið  tölunni og snúið sér að  öðrum
sýningargestum gaf sig skoskur  maður á tal við hjónin og spurði hvort
þau vildu vita hvað þetta verk  táknaði? Þau spurðu hvers vegna hann ætti
að geta skýrt það betur en safnvörðurinn?

Vegna þess að ég er höfundur verksins, sagði hann. Í raun og veru eru þetta ekki svertingjar, þetta eru einfaldlega 3 skoskir  kolanámumenn.
Eini munurinn á þeim er sá að þessi í miðjunni skrapp heim
matartímanum!

Hafsteinn bloggvinur minn sendi mér þennan, takk félagi og góða helgi.

Góðar stundir.


mbl.is Segja að eignir hafi verið umfram skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú verða stjórnvöld að gjöra svo vel

me_hausinn_a_kafi_i_rassgatinu.jpgog kippa hausnum út úr rassgatinu og fara að vinna hraðar. Hárnákvæmar upplýsingar til almennings á mannamáli og virkja þingið. Það getur ekki gengið áfram þetta pukur og leynd sem yfir öllu hvílir. Pólitískar hugsanir á að leggja til hliðar, þessi 63 steinhjörtu sem á alþingi eru á skilyrðislaust að virkja til vinnu.

Við búum ekki á einangraðri eyðieyju sambandslaus við umheiminn. Allt sem ráðamenn segja og gera er samstundis komið í fjölmiðla erlendis og þá segir sig sjálft að gáleysislegt gaspur ráðamanna eins og enginn sé morgundagurinn gengur ekki upp sem því miður hefur verði of mikið af. Þessir stressboltar verða að gjöra svo vel að ráða sér fjölmiðlafulltrúa sem talar af yfirvegun og nákvæmni, eitthvað sem ráðamenn því miður ekki kunna.motmaelin.jpg

Landið er á barmi gjaldþrots og borgarastyrjaldar, sorglegt en því miður ekki fjarri lagi. Til að bjarga því sem bjargað verður hér eftir þá verða stjórnvöld að tala af hreinskilni við þegna sína. Það má til dæmis gera eins og áður var sagt. Það spara talsverðan tíma sem nýta má til góðra verka.

Góðar stundir.


mbl.is Greint frá mótmælunum erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áttu aldrei möguleika á móti einstöku liði Liverpool

keane_taeklar_thetta.jpgÍ dag sáum við hvernig æfingar Liverpool fara fram gott fólk. WBA var eins og sunnudagaskólaklúbbur í kurteisisheimsókn hjá páfanum og allir á hnjánum agndofa af aðdáun og undirgefni dásemdanna sem í boði voru.

En svona rétt til að gleðja hörundsára UTD töffarann sem tjáði sig með athugasemd ársins á þessari síðu í dag hágrenjandi yfir tapi grútþunnu útriðnu UTD gugganna kemur hér nett skoðun mín á einum af dýrlingnum Liverpool.

Mér kossbrá þegar Torres kom inn á, hvað kom fyrir hausinn á honum? Í alvörunni þá er hárið og hárgreiðslan á honum líkust því að flóðhestur hafi hóstað framan í gaurinn.

Góðar stundir.


mbl.is Keane með tvö mörk í sigri Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já sæll, eigum við að ræða þetta

samir_nasri_slatra_i_utd.jpgeitthvað meira? Ég sá ekki leikinn er ég geri einfaldlega ráð fyrir því að UTD menn hafi verið eins og grútþunnar útriðnar guggur á Sunnudagsmorgni...W00t

Þetta segir okkur bara eitt kæru félagar, það er ekki nóg að hanga á tuðrunni megnið af leiknum, helvítis mörkin telja ekki tölfræðin...Cool

Til lukku Arsenal aðdáendur...Wizard

Góðar stundir.


mbl.is Wenger: Frábær fótboltaleikur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú vantar bara Stulla og félaga.

motmaeli.jpgÞað væri réttast að slá stoffu utan um kofann og kippa honum ofan í tjörnina. Stulli og félagar eiga tækin sem þarf í það.

Það hlaut að koma að þessu.

Góðar stundir.


mbl.is Eggjum kastað í Alþingishúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað keypti Glitnir?

Gamlar hálfónýtar innkaupakerrur í Bónus og gömlu sætin sem skipt var út í flugflota FL. Ekki hafa þessir snillingar farið að láta einhver raunveruleg verðmæti af hendi í þessum viðskiptum, það væri andstætt viðskipta og siðareglum þessara manna. Góðar...

Auðvitað skilur fólk þetta mæta vel Halldór!

Fólk er nefnilega ekkert fífl, það skilur mæta vel þegar það á að borga meira þótt það skilji ekki nokkurn skapaðan djöf...... hlut þegar það stendur í kjörklefunum og skýs ykkur ónytjungana ár eftir ár eftir vel heppnaðan heilaþvott vikurnar á undan...

Hvað er Steingrímur J. að rífa kjaft?

Sjá hér . Veit Steingrímur J. ekkert af því að menn mega ekkert vera að því að hugsa um svona smotterí? Það þarf að bjarga nokkrum smáatriðum áður en menn fara að hugsa um þetta skitna smáræði sem Steingrímur J. er að reyna að blása upp sem eitthvað...

Hafa þeir ekki efni á

að láta prenta úr uppgjörið? Kreppan fer sannarlega illa með marga, ímeilið mitt er á síðunni og ég á smá blek og nokkur blöð eftir í prentaranum, koma svo sendu mér bara draslið Gummi og ég prenta þetta út for nothing. Þetta er aumasta afsökun sem ég...

Nýjan gjaldmiðil STRAX. Mynd af nýja gjaldmiðlinum

Það er ekkert svo fráleitt að notast við þennan gjaldmiðil þar sem búið er að dúndra okkur út af landakortinu. Allar helvítis áhyggjur af krónu, evru og dollar verða einfaldlega fyrir einhvern annan. Greiningardeildir bankanna verða til dæmis...

Skíturinn heldur áfram að birtast og

það virðist enginn endir vera á þessu. Eru menn svo hissa að Bretar séu brjálaðir SJÁ HÉR ? Mín skoðun er sú að menn séu búnir að drulla djöfull stórt og styggja því miður aðeins fleiri en margan grunar. Góðar stundir.

Klæðnaður stjórnar VR á fundum

er væntanlega svona. Við vitum núna hverjum er fórnað á fundum klansins. Því miður þá hef ég ekki enn fengið mynd af búningi yfir foringjans. Góðar stundir.

Hollendingar ríða eins og vitleysingar

um leið og ljósin slokkna. Ef eitthvað er að marka þetta þá er eins gott að menn vandi sig betur í fluginu þarna. Nokkur svona slys og Kínverjar verða ekki lengur fjölmennasta þjóð heims. Góðar stundir.

Haldið á sjóinn með fullan poka af ljósaperum.

Tækninni fleytir stöðug fram og takmörkin er nánast engin. Nú er verðið að gera tilraunir með áhrif ljóssins á hegðun fisks. Er hægt að smala fiskinum með ljósi eins og sauðahjörð inn í rétt, sjá hér ? Nú vitum við það að fiskurinn bregst við...

Þjóðernishreinsanir á Íslandi

Í mannkynssögunni má lesa um stórfelldar þjóðernishreinsanir og nánast undantekningalaust er þetta gert í baráttu sem rekin er áfram af græðgi og valdafíkn. Heilu þjóðarbrotin og ættbálkar eru settir á listann sem ekki þykir þóknanlegur samfélaginu. Lagt...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband