Stjórn og framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

englarnir.jpghljóta að vera himinlifandi yfir fréttum á borð við ÞETTA og þessa FRÉTT HÉR og meira HÉR. Þetta eru sjálfsagt bara brot af því sem gert hefur verið. Aðrir hugsanlegir lánveitendur hljóta einnig að hugsa sinn gang í framhaldi af þessum fréttum. Hver býst við að trúverðugleiki íslenskra stjórnvalda aukist þegar svona fréttir æða yfir heimsbyggðina? Það eru jú stjórnvöld sem þagað hafa yfir þessu og halda mætti að þeir beinlínis styðji við þessar aðgerðir.

Hvernig í ósköpunum datt ríkisstjórninni og Seðlabankanum í hug að lána Kaupþingi risaupphæð rétt fyrir gjaldþrot bankans? Þetta þarf að rannsaka ásamt fjölmörgum öðrum hlutum.enron_thjofarnir_717992.jpg

Myndin hér til hægri segir eitthvað um það hvar ég vil geyma þetta lið á meðan rannsókn fer fram.

Góðar stundir.


mbl.is Íslandslán rætt á föstudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Víðir Benediktsson

„Vont er þeirra ranglæti en verra er þeirra réttlæti“

Bara svona til öryggis svo ég verði ekki dæmdur eins og Hannes Hólmsteinn þá minnir mig að þessi setning sé úr Íslandsklukku Halldórs Laxness  og eignuð Jóni Hreggviðsyni. Man ekki á hvaða bls. en mér verður örugglega fyrirgefið það.

Víðir Benediktsson, 3.11.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband