fim. 8.1.2009
Ég skora á íslensk stjórnvöld
að bregðast hið fyrsta við áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna og geri íslensku þjóðinni ekki þá skömm að vera vísvitandi i andstöðu við alþjóðalög. Til að fullnægja megi þeim kröfum sem Mannréttindanefndin hefur sett, þarf að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu á þann hátt að mannréttinda og jafnræðis sé gætt í hvívetna.
Ég skora einnig á bæjarstjórnir, sveitarstjórnir sem og alla verkalýðsforkólfa þessa lands að rísa upp og krefjast þess að stjórnvöld virði úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um kvótakerfið. Hafi einhvern tímann verið nauðsyn þá er hún núna, virkjum landsbyggðina til gjaldeyrisöflunar fyrir samfélagið í heild sinni.
Á árum áður var landsbyggðin virkur aðili í þessu lykilhlutverki samfélagsins en með tilkomu kvótakerfisins var þessum þætti skipulega útrýmt í stórum stíl og uppi sitjum við í dag með samfélag í molum og vandséð hvernig við komumst á rétta braut með áframhaldandi stjórnunarhættir óbreytta.
Góðar stundir.
![]() |
Skora á stjórnvöld að ljúka við Dettifossveg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 7.1.2009
Hvað er að gerast er United að skíta í buxurnar?
Derby er í 18. sæti 1. deildar en heims-, Evrópu- og Englandsmeistarar Manchester United eru í þriðja sæti úrvalsdeildarinnar og Derby yfirspilaði stjörnuprýtt úrvalsdeildarliðið og líklegra til að bæta við fleiri mörkum.
Er felgulyklinum eitthvað farið að förlast?
Góðar stundir.
![]() |
Derby með frækinn sigur á Man.Utd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 7.1.2009
Lofað að standa við bakið á þeim.
Ég bara spyr, þarf að standa við bakið á þeim hvernig má það vera að þess þurfi? Minnumst orða og lofssöngva Friðriks J. Líú forkólfs. það er hefur ekki verið á honum að heyra annað en að sjávarútvegurinn sé vel rekinn, sjálfbær, hagkvæmur og arðsemin einstök. Nú nýlega bættist svo við en einn lofssöngurinn um dýrðina sjá hér það dugar ekkert minna enda dýrðin einstök.
Ég bara spyr aftur, er eitthvað sem Friðrik J. vissi ekki um og vissi Hannes Hólmsteinn ekki betur. Eitthvað eru hlutirnir að þróast öðruvísi en boðskapurinn hefur hljóðað uppá á undanförnum árum. Hvað veldur, hafa menn ekki lengur óheftan aðgang að bönkunum til að ljúga þetta áfram með áframhaldandi skuldasöfnun?
Friðrik J. kennir fallandi gengi um stöðuna, bara svo það sé á hreinu að þá var staðan orðin svona slæm löngu áður en gengið fór að falla. Að kenna því um er aumt yfirklór á margra ára vandræðagangi sem hefur verið bent á en enginn vilja hlusta á. Það er vonandi að fólk opni fyrir skilningarvitin og fari að sjá hvernig í pottinn er búið.
Góðar stundir.
![]() |
Erlendir bankar með veð í kvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 7.1.2009
Það er líf í Framsóknarflokknum
það er ekki endilega það sem við óskum eftir en er þó talsvert mikið meira en hægt er að segja um suma aðra flokka?????....
Góðar stundir.
![]() |
Hiti á fundi framsóknarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
sem eins og allir vita felldi áfellisdóm yfir kvótakerfinu og úrskurðaði það brot á mannréttindum. Það væri gæfuspor ríkisstjórnarinnar að virða úrskurð um eigin mannréttindabrot áður en stjórnin hleypur á stað og sakar aðra um mannréttindabrot.
Það er oft sagt að gott sé að lýta í eigin barm áður en aðrir eru ásakaðir um eitthvað, í þessu tilfelli ásaka tjallann um það sem þeir sjálfir gera, það er að fremja mannréttindabrot á þegnum sínum. Hversu blint getur þetta lið orðið, ég bara spyr?
Að leita á þennan hátt til Mannréttindadómstólsins í Strassburg vil ég meina að sé þvoglukennd della til að kaupa sér frið frá almannarómi um algjöra vanhæfni til að takast á við afhroðið sem þeir sjálfir sköpuðu.
Góðar stundir.
![]() |
Vonlaust dómsmál gegn Bretum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
þri. 6.1.2009
Svo erum við hengd
fyrir að fara þúsund kall fram yfir á reikningnum. Það er ekki sama hvort maður heitir Jón eða Pálmi það er nokkuð ljóst á þessu dæmi.
Hugsum aðeins betur um þetta, auðvitað er sama hvort þeir heita Jón eða Pálmi hvernig læt ég, sami grauturinn í svipaðri skál...
Góðar stundir.
![]() |
Háar kröfur í bú Sterling |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
að vera á bak við lás og slá ásamt þeim sem hann er að mæra í þessu viðtali. Það fer einkennilegur hrollur um líkamann þegar maður horfir á þennan sjálfsumglaða prófessor tjá sig um Íslenska efnahagsundrið og hvað þetta væri nú allt saman djöfull flott.
Lykillinn að sér Íslenska efnahagsundrinu lýsir prófessorinn eins og enginn sé morgundagurinn. Já sjálfsánægjan er bókstaflega að gera útaf við prófessorinn og þarna sat hann og lýsti frábærum árangri eigin hugmyndasmíða, enda hefur gaurinn gengt því starfi fyrir íhaldi lengur en góðu hófi gegnir.
Fyrst var óveiddur fiskur gerður að verslunarvöru, að eign" sem hægt var að veðsetja og braska með, síðan voru bankarnir teknir úr höndum almennings og fengnir í hendur ævintýramönnum og síðan var farið að setja lífeyrissparnað landsmanna inn í þessa hít. Það er laukrétt hjá sjálfsumglaða prófessornum og víti til varnaðar eins og á reyndar við um dæmalaust blaður hans að öðru leyti.
Þetta viðtal ætti að verða skyldu námsefni í hagfræðideildum skólanna næstu árin sem og skylduáhorf allra Íslendinga. Viðtalið er hér fyrir neðan.
Það ætti að vera skylduáhorf allra Íslendinga á þetta viðtal.
sun. 4.1.2009
Auðvitað batnar skuldastaðan
annar boðskapur er ekki mönnum bjóðandi. Þetta minnir óneitanlega á blekkingar og auglýsingadeildir bankanna þegar þeir spáðu 30% hækkun á hlutabréfum í byrjun síðasta árs, það vita allir hvernig það gekk eftir. Þessi spá raunveruleikafirrta vestfirðingsins er byggð upp á svipaðri speki.
Með öðrum orðum, huglegum gagnagrunni og sá gagnagrunnur er höfuðið á veruleikafirrtum vestfirðingnum og ég verð að vera hreinskilinn, ég hef afskaplega takmarkaða trú á þessari framtíðarsýn snillingsins að vestan.
Góðar stundir.
![]() |
Skuldastaðan mun batna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 4.1.2009
Það verður að afskrifa skuldir sjávarútvegsins
að stórum hluta. Það er ætti öllum þokkalega vel hugsandi mönnum og konum að vera það löngu ljóst að skuldir sjávarútvegsins eru komnar langt út fyrir alla þjófabálka og ekkert nema afskriftir skulda í stórum stíl kemur til greina.
Hvernig bankarnir gengu fram og blekktu stálheiðarlega og blásaklausa útvegsmenn er fyrir neðan allar hellur, þeir beinlínis tróðu upp á þá lánum til hlutabréfa og kvótakaupa í stað þess að leyfa þeim þegar þeir komu á vordögum ár hvert til að borga af lánunum sínum að borga af þeim.
Já blásaklausir, grunlausir og hálfheiladofnir útvegsmenn létu sem sagt bankana þvinga sig út í braskið sem var þeim algjörlega framandi heimur og þekkingarleysið algert á töframætti steindauðs fjármagns sem lá í dvala engum til gagns.
Töframátturinn gekk svo langt að mönnum hreinlega datt það til hugar að verðleggja mætti eitt tonn af óveiddum þorski á sama prís og heilt einbýlishús í mörgum sjávarþorpum landsins. Blásaklausir létu útvegsmenn bankana veðsetja allt heila klabbið og höfðu ekki hugmynd um hvað var að gerast og hverjar afleiðingarnar gætu orðið.
Það kom að því að sökudólgarnir væru dregnir fram í dagsljósið og auðvitað kom þá á daginn að útvegsmennirnir eru blásaklausir og bera ekki nokkra ábyrgð á eigin skítverkum.
Það þurfti svo sem ekki að koma á óvart hver og í hvað flokki hann er, sá sem vann þessa að þessari rannsókn og fékk þessa dásamlegu niðurstöðu út úr öllu saman. Þú lesandi góður getur fræðst um það hér og mæli ég sérstaklega með þessari lesningu.
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
sun. 4.1.2009
Auðvitað á að rífa kofann
Yfirgangur borgarstjórnar og skipulagsyfirvalda verður að linna og nú er bara að standa í lappirnar og fara að lögum.
Það á að krefjast þess að kofinn verði rifinn niður og stjórn borgarinnar gerð grein fyrir því að þau fari að lögum eins og hver annar.
Ég velti því í leiðinn fyrir mér hvað voru menn að hugsa allan þann tíma sem tekið hefur að koma þessu kofa upp? Ekki spratt hann upp í gær og fyrradag, eða var Róm í alvörunni byggð á einni nóttu?
Góðar stundir.
lau. 3.1.2009
Vil einhver útskýra þetta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
lau. 3.1.2009
Gerrard er frábær leiðtogi í frábæru liði
lau. 3.1.2009
Alveg er þetta makalaus vitleysa
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 3.1.2009
Rekstrarfé deCode uppurið?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 3.1.2009
Hrokagikkirnir klikka ekki á smáatriðunum
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 2.1.2009
Auðvitað á að reka liðið út
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 2.1.2009
Ég væri til í að splæsa one way ticket á ákveðna aðila
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
fös. 2.1.2009
Þetta eru huguð fífl
fös. 2.1.2009
Hvað er Styrmir Gunnarsson að vilja
fim. 1.1.2009