fim. 1.1.2009
Nýárs kveðjunum byrjað að rigna inn
Það er frekar kaldhæðnislegt að nýja árið byrji með svona kveðju frá apparati í eigu ríkisins, eða réttara sagt (allra landsmanna)
Á meðan veruleikafyrt ríkisstjórn situr sem fastast og skilur ekki þegna sína byrjar árið með boðskap um auknar álögur til handa heimilunum í landinu. Já góðir Íslendingar í gær máttum við horfa upp á í beinni útsendingu á Stöð 2 þá ólguna sem er undirliggjandi í þjóðfélaginu.
Í dag fáum við síðan skilaboð um að við skulum borga meira eftir stjórnlaust sukk ríkisins með almannafé. Eftir þetta svo kallaða góðæri og uppgangstíma sem messaðir hafa verið ofan í lýðinn á tyllidögum kemur í ljós að öll stjórn ríkisins í fjármálum er undir sama hattinum, hatti óstjórnar með framtíðarsýn upp á heilan hálftíma.
Við megum borga og borga endalaust fyrir gæluverkefni og hálfvitagang ráðamanna sem sjá ekkert annað en ál sem framtíðarsýn samfélagsins. Mín krafa er einfaldlega sú að þessi orkufreki iðnaður sem öllu á að redda í landinu borgi það orkuverð sem dugar til að borga niður fjárfestingabrjálæðið sem fór í gang til að skaffa þeim orku til framleiðslunnar.
Getum við almenningur í landinu gert samninga við RARIK að orkuverð til heimilanna tengist afkomutölum heimilanna svona almennt og horft sé til kaupmátt hvers og eins sem orkuna kaupa? Ég hef það einhvern veginn á tilfinningunni að Páfinn afneiti trúnni og það frjósi í helvíti áður en svoleiðis lúxus verði í boði fyrir þegna þessa lands.
Ef hlutirnir eiga eitthvað að breytast í þessu landi þá þarf að bera stjórnvöld með valdi frá stólunum og taka til á víðum grundvelli eftir spillingarstefnu undangenginna ára.
Við eigum ekki að láta örfá gjörspillta og veruleikafyrta pólitíkusa hrekja okkur á vergang og í versta falli úr landinu okkar, við kusum þá ekki til þeirra verka. Ef okkur þessum venjulegu þegnum mistekst í okkar vinnu þá þurfum við að axla ábyrgð á því, pólitíkusar eru ekkert öðruvísi og ber skilyrðislaust að axla ábyrgð á sínum axarsköftum. Það er hin eðlilega krafa í virku lýðræði, eða höfum við það ekki?
Góðar stundir.
![]() |
Orkuverð RARIK hækkar um 7-14% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 31.12.2008
Kæru vinir Gleðilegt ár.
Ég óska öllum bloggvinum mínum og þeim sem kíkja hér inn Gleðilegs árs með óskum um farsælt nýtt ár og þakka fyrir samskiptin á árinu sem er að líða.
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.1.2009 kl. 09:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 31.12.2008
Það sem koma skal
Eitthvað segir mér að þetta sé bara byrjunin á því sem koma skal því miður. Almenningur krefst þess að þeir sem ábyrgð bera á því hvernig komið er fyrir þessu annars ágæta þjóðfélagi axli ábyrgðina og segi af sér.
Að yppa öxlum og hunsa kröfu samfélagsins getur ekki endað nema á hroðalega hátt. Sjálfsumglaðir stjórnarliðar verða að gjöra svo vel að vakna til lífsins og gera sér grein fyrir því hvaða áhrif þetta hefur á almenna borgara þessa lands.
Það hafa ekki allir milljón á mánuði í laun eða þaðan af meira, fólk sem minna má sín og er orðið atvinnulaust eða við það að missa vinnuna þarf líka að standa við skuldbindingar sína. Það er einfaldlega ekki hægt og þá blasir gjaldþrot við.
Er það fólkinu að kenna, fólkinu sem gerði ekkert rangt, fólkið sem gerði öll sín framtíðarplön af mikilli samvisku og bestu vitund? Var það fólkinu að kenna að sjálfsumglaðir útrásarvíkingar fóru hamförum með gæða og meðmælastimpil stjórnvalda á afturendanum um heimsbyggðina og á endanum kollvörpuðu öllum framtíðarplönum fólksins?
Það er í besta falli sverasta hræsni að halda því fram. Þögul mótmæli virka ekki, það þarf að taka til hendinni það er deginum ljósara. En ekki skilja það þannig að ég sé að réttlæta árásir á starfsmenn stöðvar 2 Þeir bera ekki ábyrgðina.
Góðar stundir.
![]() |
Gas Gas Gas á gamlársdag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 31.12.2008
Þetta er alvöru
Ekki dettur mönnum til hugar að slá af þó svo allt sé komið á annan endann í þessu þjóðfélagi og ekkert blasir við annað en stórfelldur niðurskurður á öllum sviðum.
Nei kofinn skal upp sama hvað það kostar og ekkert helvítis röfl, ef ekki vil betur til þá skal tekið lán til að klára verkið með veði í væntanlegum framlögum frá ríki og borg þetta er tær snilld.
Er í alvörunni hægt að halda dellunni áfram án þess að eiga fyrir hlutunum? Eru menn búnir að sýna fram á það að þetta kofaskrifli geti rekið sig hjálparlaust eftir að búið er að koma þessu gæluverkefni þotuhyskisins upp?
Góðar stundir.
![]() |
Húsið bíður óklárað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
þri. 30.12.2008
Ég er giftur pig ugly woman og ég get þakkað
stjórnendum moggabloggsins fyrir þessa óvæntu uppljóstrun....
Þetta er engin venjuleg freigáta sem ég bý með....
Þeir sem trúa þessu ekki geta fengið staðfestingu á hjónabandinu hér....
Góðar stundir.
![]() |
Ýmislegt breytist um áramót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 30.12.2008
Nú er það svart maður
Þessi dagfarsprúði og frábæri leikmaður hefur látið hlutina fara duglega í skapið á sér sem gæti kostað hann fangelsi. Auðvitað á hann að sæta refsingu eins og aðrir ef hann er sekur um ofbeldi gagnvart öðrum einstaklingi.
Hvort maðurinn heitir Gerrard eða eitthvað annað á ekki að skipta nokkru máli, lög eru lög og þeim eiga allir að fara eftir. En sem aðdáandi Liverpool þá skal ég alveg viðurkenna það að mér líst ekkert á þetta ef drengaulinn verður dæmdur í djeilið.
Loksins þegar maður var að verða hæfilega bjartsýnn á að raunverulegur möguleiki væri fyrir því að dollan yrði okkar í vor þá þarf einn af okkar albestu mönnum að skandilisera svona líka duglega ef rétt er. Fer formúlan ekki að byrja?
Góðar stundir.
![]() |
Gerrard gæti átt fimm ára fangelsi yfir höfði sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 30.12.2008
Um þetta þarf ekki að deila.
Það á að sjálfsögðu að fara eftir lögum þessa lands og innkalla allar aflaheimildir. Sjávarútvegurinn er meira og minna gjaldþrota og það er algjörlega út úr korti að skuldirnar séu afskrifaðar og handhafar kvótans haldi honum áfram eins og ekkert hafi í skorist.
Ef menn eru á öðru máli þá væri ágætt að þeir kæmu með málefnaleg rök fyrir því að öðruvísi ætti að standa að málum.
Góðar stundir.
![]() |
Deilt um hugsanlegan umframkvóta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 29.12.2008
Björn B. þú er hreint út sagt
æðislegur. Allir sáttir og enginn í sérstöku uppnámi, mig langar að vita á hvað lyfjum þú er kæri Björn B. eða hvað þú lætur ofan í þig áður en þú mætir í vinnu. Það er í það minnsta eitthvað handónýtt sem slær á allt sem heitir raunveruleikaskyn, enda myndir þú varla fara út úr húsi eftir öll þín afglöp og hroka sem þú hefur sýnt samborgurum þínum í gegnum tíðina öðruvísi.
Hverjum af þínum kollegum út í hinum stóra heimi hefði dottið til hugar að hrekja einn afkastamesta starfsmann sinn úr starfi eins og þú gerðir á svo eftirminnilegan hátt? Ég held að enginn hefði gengið fram með þeim hætti sem þú gerðir öðruvísi en þurfa að sæta ábyrgð á því og segja af sér.
En nei það þarft þú náttúrulega ekki að gera frekar en aðrir pésar í þínum flokki, rödd fólksins er nefnilega eitthvað sem skiptir ykkur sjálftökuhyskið ekki neinu máli og áfram skal setið þótt stóllinn sé brunnin upp til agna og allt sjóðandi vitlaust hvert sem litið er.
Hrollur æðir um líkamann við þá tilhugsun hvernig þú og þínir flokksfélaga halda áfram að meðhöndla lýðinn eins og ekkert hafi í skorist, hvað heyrum við næst? Endurtekningu á ræðum ykkar sem fluttar voru af yfirgripsmiklum hroka í sumar að hér ríkti stöðugleiki, góðæri og ekkert væri að óttast. Vandamálin væru bara fjarlæg sem einhverjir útlendingar væru að kljást við og kæmu okkur hreint ekkert við enda með afbrigðum klár og allt draslið byggt upp á massa traustum grunni og ekkert gæti hróflað við meistaraverkunum.
Það er öllum löngu ljóst kæri Björn B. nema ykkur sjálfum að þið hafið akkúrat ekkert umboð lengur frá almenningi til áframhaldandi stjórnarsetu, enda hefur þú og allur þinn flokkur rekið stjórnlaust steinsofandi að feigðarósi sem hefur komið okkur á ískaldan risastóran klaka sem vandséð er að bráðni á næstunni.
Hvernig ykkur dettur það til hugar að þið séuð rétta fólkið til að rétta landið við eftir algjört skipsbrot á almestu uppgangstímum sem þetta þjóðfélag hefur gengið í gegnum er ótrúleg, ég held kæri Björn B. að þú og flokksfélagar þínir mættu setjast niður nú um áramótin og hugleiða vandlega hvert áramótaheitið verði á þessum tímamótum.
Ég hef ákveðna hugmynd fyrir þig kæri Björn B. þar sem ríkisútvarpið er undir ykkar stjórn þá mættuð þið gjarnan koma fram þar og biðjast opinberlega afsökunar á vanhæfni ykkar og segja skilið við pólitíkina og öll opinber störf. Við myndum sennilega fyrirgefa ykkur og sjálfsagt með tímanum fengjuð þið einhverja vinnu á almennum vinnumarkaði þegar búið verður að taka til eftir ykkur og við farin að lifa sómasamlegu lífi aftur.
Þessi þjóð hefur alla burði til að lifa ágætis lífi af þeim auðlindum sem hún á, þið bara einfaldlega kunnið ekkert með þær að fara og þess vegna verðið þið að víkja, það er ekkert skammarlegt við það ykkur einfaldlega mistókst og við því er lítið annað að gera en leita sér að öðru djobbi. Það er hinn venjulegi gangur sjáðu til og kemur fyrir besta fólk í öllum stigum þjóðfélagsins.
Góðar stundir.
![]() |
Nýtt skipurit kynnt í Keflavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 29.12.2008
Auðvitað er Liverpool besta lið
Englands í dag. Það væri stóreinkennilegt ef allir eru ekki sammála því....
Maður fyllist stolti að vera aðdáandi liðs númer eitt....
Góðar stundir.
![]() |
Kinnear: Liverpool er besta liðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
sun. 28.12.2008
Við eigum einn svona sem allir elska dýrka og dá (myndir)
Við er svo sannarlega stolt af honum.
Hann er fjölhæfur foringi maður fyllist lotningu.
Einhverjir kunna ekki að meta hann.
Það er ótrúlegt þar sem hann sem kann líka að keyra.
Og á einnig frábæra vini.
Og þennan hér sem á sér draum.
Hann á líka hóp þræla sem hreinsa upp skítinn eftir hann.
Sem þetta kærustupar stjórnar undir öruggri leiðsögn foringjans.
Guð hjálpi okkur ef hann er þá til.
Góðar stundir.
![]() |
Stalín kjörinn þriðji vinsælasti Rússi allra tíma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
sun. 28.12.2008
Hreinn unaður að horfa
sun. 28.12.2008
Hárrétt, níðumst á gamla fólkinu
lau. 27.12.2008
Rógburður sem á ekki við rök að styðjast
fös. 26.12.2008
Til hamingju með þennan túr
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
fös. 26.12.2008
Ég er sennilega stoltari en
fös. 26.12.2008
Merkileg orð frá framkvæmdastjóra
fim. 25.12.2008
Jólakveðja
mið. 24.12.2008
Já sæll og Gleðileg Jól
mán. 22.12.2008
Skeinipappír sjálfstæðismanna
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 20.12.2008
Hundarnir mínir blogga um mótmælin. (myndir)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)