þri. 5.8.2008
Auðvitað er þetta bara útaf öfund, kjaftæði og
málflutningur án þess að vita nokkur skapaðan hlut í sinn haus um ofurundrin (Íslenska fjármálasnillinga) Í það minnsta ef hlustað er á ofurstórstjörnu bankastjórana og aðra snillinga þeim tengdum, þá eru það þeir sem hafa litla sem enga trú á þeim uppfullir af öfund og vanþekkingu á því hvernig hlutirnir virka raunverulega í fjármálaheiminum.
Já á Íslandi erum við með hæfustu mennina og þeir vita nákvæmlega hvað þeir syngja og hvernig best er að gera hlutina hér, líka í útlöndum.
Þeir vita líka nákvæmlega hvernig best er að níðast á almenningi í þessu stórbrotna undralandi fjármálanna.
Þessi afburðarsnilld er skilgreind hér á frábæran hátt, greiningardeildirnar sem meta lánshæfi bankanna hafa greinilega ekki lesið þetta.
Það skildi þó aldrei vera að eitthvað væri farið að spyrjast út hvernig raunveruleg staða sjávarútvegsins er, einnig upplýsingar um alla kvótavöndlana sem þarf að afskrifa á komandi misserum?
Nú einnig gæti verið að upplýsingar hafi borist um það hvernig ástandið er almennt í þjóðfélaginu, það þarf ekkert að tíunda það hér, það er flestum fullkunnugt um það, ein undantekning er þó á því. Ríkisstjórnin virðist ekki hafa hugmynd um hvernig ástandið er og staðfestir það með aðgerðarleysi sínu.
En eru hlutirnir ekki bara nákvæmlega svona í undralandinu bláa?
Góðar stundir.
![]() |
Álag bankanna hækkar enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 1.8.2008
Er ekki eitthvað sameiginlegt með þessum
gaurum? Þá meina ég forstjórum bankanna og þeim (Enron gaurunum) sem sukkuðu og sviku allt sem hægt var að svíkja þangað til þeir voru settir í steininn eftir risagjaldþrot Enron.
Nú væla gæðingarnir eftir láni frá ríkinu sem á að redda rassgatinu á þeim eftir hömlulausa græðgi og óðráðsíu. Öll varnarorð blásin af og þeir sem gagnrýndu voru jú bara öfundsjúkir heilalausir fábjánar.
Það verða væntanlega einhverjar skúringakerlingar reknar í hagræðingarskini á haustmánuðum enda hagnaðurinn að minnka. Ekki mega þeir við því að minnka launin hjá sjálfum sér þessir gæjar.
Þetta myndband lýsir dásemdinni nokkuð vel.
Góðar stundir.
![]() |
Evra ekki lausnin núna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 1.8.2008
Hvað sem því lýður og hverjir verða
mótherjar hverra verður bara að koma í ljós, ég er alveg slakur yfir þessu (ennþá)... En aftur á móti er ég að verða sæmilega sáttur við síðuna mína eftir krassið hjá moggablogginu. Einhverjar bætur á ég enn eftir að gera og ná í myndböndin mín aftur, sem er furðulega seinvirkt.
Þessi mynd sýnir svo ekki verður um villst að snemma byrja fjörið...
Veit einhver um fljótlega leið við að hlaða niður myndböndum á bloggið?
Góðar stundir.
![]() |
Arsenal og Liverpool bíða mótherjanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 31.7.2008
Vantar einkavininum kvóta?
Við lestur á þessari yfirlýsingu frá Kristjáni Þór Júlíussyni mætti halda að einkavini og fyrrum samstarfsfélaga Kristjáns vantaði meiri kvóta.
Það vita það náttúrulega flestir að hér er ég að tala um Samherjahöfðingjann. En í fréttinni talar Kristján um mikilvægi þess að nýta auðlindir til lands og sjávar.
Hvað á Kristján við? Sjálfstæðismenn halda því fram að við séum að fullnýta sjávarauðlindina þannig að karltuskan röflar þarna staðlausa stafi að hluta til ef tillit er tekið til afstöðu þeirra í sjávarútvegsmálum.
Eitt er þó stórmerkilegt og það er umgengni Líú forkólfanna um nytjastofna og stjórnvöld steinhalda kjafti. Líú gefur sig út fyrir að vera ábyrg samtök og ganga um sjávarauðlindina í sátt við alþjóðasamfélagið. Hvernig stendur þá á því að Líú mokar upp Makríl í stórum stíl í Íslenskri lögsögu? Makríll er kvótasett tegund og kvótinn er ákveðinn af Norður Atlandshafsráðinu (að mig minnir)
Líú stundar gengdarlausar veiðar, segja má í raun stunda gengdarlausar sjóræningjaveiðar á Makríl. Það myndi hvína duglega í ef aðrar þjóðir mokuðu upp loðnunni þegar hún gengur yfir í Grænlensku lögsöguna og langt Norður í haf út úr okkar lögsögu. Nóg gengur á í kringum úthafskarfann á Reykjaneshrygg og er það þó á alþjóðlegu hafssvæði.
Þessi mynd náðist svo af Friðrik J. Líú forkólfi en hann ku hafa verið að koma af fundi samtakanna í kvöld.
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 31.7.2008
Náttúruverndar galgopinn
Árni Finnsson ræður sér vart fyrir kæti yfir þessu útspili frá furðufuglinum sem situr í stóli umhverfisráðherra sjá hér.
Árni Finnsson mætti eyða einhverju af sínum kröftum í rannsóknir á því hver er að skíta Reykjavíkurtjörn fulla af viðbjóði. Ekki þætti mér ólíklegt að hann fyndi eigin úrgang í þeirri herferð, sem aftur hlýtur að vera baneitraður.
En á einhvern óskiljanlegan hátt er honum það meira hjartans mál hvað gert er á landsbyggðinni frekar en skoða eigin skítverk í bakgarðinum hjá sjálfum sér.
Það vil svo einkennilega til að landsbyggðin lifir ekki á því einu að flytja nokkra túrista milli staða eða röfla stöðugt um náttúruna og hvernig hún skuli varin, þótt Árni haldi það.
Ekki megum við veiða fisk, byggjum þá upp stóriðju og notum orkuna sem til er á svæðinu til að keyra stóriðjuna. Eða má bara gera það í bakgarðinum hjá Árna?
Góðar stundir.
![]() |
Undirbúningur skemmra kominn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mið. 30.7.2008
Þetta lofa góðu



![]() |
Keane lék sinn fyrsta leik með Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt 31.7.2008 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 29.7.2008
Það voru framin hryðjuverk á






mán. 28.7.2008
Það verður athyglivert
að sjá hvernig þessir tveir ná saman.
![]() |
Keane búinn í læknisskoðun hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 26.7.2008
Kjarnakerlingar og óheflað tungumál
Það má með sanni segja að Agnes Bragadóttir fer rakleitt í þennan flokk. Er þetta ekki einfaldlega það sem vantar?
Tala tæpitungulaust og sleppa öllum helvítis fagurgala og kjaftæði um hluti sem skipta akkúrat engu máli og nefna hlutina réttum nöfnum. Sjá hér.
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 26.7.2008
Hver gaf leyfi fyrir
![]() |
Borga tuttugu smávirkjanir í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 26.7.2008
Þokuheilarnir á Hafró
fim. 24.7.2008
Hafið gefur og hafið tekur
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 24.7.2008
Ferðamenn í áfallahjálp.
mið. 23.7.2008
Þið skuluð borga og steinhalda kjafti!!!!!!!!!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.7.2008 kl. 21:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 23.7.2008
UTD og Arsenal verða sennilega
þri. 22.7.2008
Það eru margir sem
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fös. 18.7.2008
Blásið í herlúðrana
mið. 16.7.2008
Ofurbloggari Sjálfstæðisflokksins
þri. 15.7.2008
Klöppum fyrir kerfinu,
mán. 14.7.2008
Bókarormurinn og skákheilinn Helgi Áss Grétarsson
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)