Kjarnakerlingar og óheflað tungumál

Það má með sanni segja að Agnes Bragadóttir fer rakleitt í þennan flokk. Er þetta ekki einfaldlega þaðkjarnakerling.jpg sem vantar?

Tala tæpitungulaust og sleppa öllum helvítis fagurgala og kjaftæði um hluti sem skipta akkúrat engu máli og nefna hlutina réttum nöfnum. Sjá hér.

Góðar stundir.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ég hef átt orðastað við Agnesi vegna skrifa hennar um ónefndan forseta.Orðbragðið var slíkt að mér fannst ég kominn aftur á síðutogara 1961.Þegar ég þakkaði henni fyrir góða ræðu hló hún.En ég skildi hana.

Sigurgeir Jónsson, 26.7.2008 kl. 13:47

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það verður ekki af henni skafið að hún er mjög óhefluð og óforskömmuð einnig á hún afskaplega bágt með að þola það ef einhver er ekki á sama máli og hún, semsagt alveg fullkomið efni í "einræðisherra".

Jóhann Elíasson, 26.7.2008 kl. 14:12

3 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

mig minnir að ég þekki einnig mann sem talar óheflað sjómannamál..... Agnes myndi sennilega hörfa með skottið á milli lappana ef hún lenti í orðaskaki við þann mann  ég nefni nú engin nöfn hér.

Jóhann Kristjánsson, 27.7.2008 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband