mán. 1.9.2008
Stórmerkilegar uppgötvanir
vísindaelítunnar ríða ekki við einteyming sjá hér. Skemmst er þess að mynnast þegar vísindaelítan áttaði sig á því að þorskurinn hefði sporð og væri býsna duglegur við að nota hann. Þorskur sem merktur var á Mýrabug vestan Hornafjarðar synti hreinlega Norður fyrir land og hrygndi þar...
Máttur vísindanna er frábær og dásamlegt að það taki elítuna ekki nema rúmlega hálfa öld að átta sig á því að þorskurinn noti sporðinn og teljist því án efa flökkustofn sjá hér.
Ég vil frekar orða það þannig að Íslenskir sjómenn ættu allir að ýta úr vör og veiða úr þessum flökkustofni áður en hann hverfur á vit ævintýranna í öðrum fiskveiðilögsögum. Það stóð ekkert í Líú mafíunni að veiða hver sem betur gat úr því sem þeir kölluðu flökkustofn Makrílinn þótt svo að sá stofn sé kvótasett tegund og Norður- Atlandshafsfiskveiðiráðið ákveður kvótann í samráði við strandríki flest nema Íslendinga.
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 1.9.2008
Er virkilega eitthvað til í þessu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 31.8.2008
Þetta er svo krúttlegt
Þessi var óheppin!!!!!
Ekki var þessi heppnari!!!!
Og þessi toppar það alveg...
Ekki veit ég hvað þetta er með konur og svona rugl, þær eru að mínu mati bestar eins og Guð skapaði þær... Það er ekkert varið í að eiga kellu sem má ekki missa í gólfið án þess að hún skoppi rakleiðis út um gluggann og skoppi í framhaldi af því í gegnum tvö þrjú hverfi....
Það er kallað á mínu tungumáli vörusvik....
Og ekki reyna að fá mig til að útskýra þetta með að missa gripinn í gólfið.....
Góðar stundir.
![]() |
Varað við hættulegum aukaverkunum af Botox |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 31.8.2008
Steindautt jafntefli
og eitthvað verður það langsótt að halda sér í hópi þeirra bestu ef framhaldið verður svona. Hvernig þeir á mbl.is teiknuðu fram þessi tvö mörk er svo annar kapítuli sem þeir verða sjálfsagt ekki í vandræðum með að útskýra. Við Liverpool gæðingar skulum hins vegar rétt vona að meiðsli Torres séu ekki alvarleg. Það er eiginlega alveg nóg að Gerrard sé á sjúkralistanum. Nema Benítez hafi einhver tromp í pokahorninu, sem ég efast reyndar um.
Góðar stundir.
![]() |
Aston Villa og Liverpool skildu jöfn á Villa Park - Torres meiddist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 31.8.2008
Á vef fiskistofu má sjá
hver aflamarksstaða fiskveiðiársins er sem lýkur á miðnætti í kvöld sjá hér. Ef skoðað er hvað mikið af aflaheimildum er ónotað kemur í ljós að það brennur helvítis hellingur inni í þorskígildum talið. Í aflamarkinu eru ónotuð 22.576 þorskígildi. Höfum það í huga að þetta er nánast jafn mikið og HB Grandi fær í úthlutun en það eru 22.700 þorskígildi.
Í krókakerfinu eru ónotuð 3.050 þorskígildi. Samtals eru þetta 25.626 þorskígildi. Hver skyldi vera ástæðan fyrir því að svona mikið magn brennur inni og verður þjóðfélaginu ekki til neins gagns? Eina sem þetta skilar eru afborganir og vextir sem bankarnir taka til sín, því einsog flestir vita þá eru úthlutaðar aflaheimildir að megninu til yfirveðsettar og þeir einu sem hafa sitt eru lánastofnanir, en það á eftir að breytast til hins verra trúi ég, afskriftir í kvótavöndlunum eru óhjákvæmilegar áður en langt um líður.
Þótt þessar tölur liggi fyrir svona þá á væntanlega eitthvað eftir að koma inn af lönduðum afla og fimleikarnir í tegundatilfærslum eftir að einhverju leiti. Hvað sem það á svo skylt við fiskverndun þessir fimleikar við tegundartilfærslur er svo efni í margar bækur. Hvernig til dæmis Ufsi sem er að brenna inni getur orðið að þorski, ýsu og steinbít er svo galið að mig skortir orð. Ég sem hélt að það væri búið að lita nóg af fiski á fiskveiðiárinu, en nei þá er í boði á lokahnykk fiskveiðiársins að fullkomna verkið með ólögum.
Það virðist vera alveg sama hvað er rætt og um hvað í sjávarútvegi, talið beinist alltaf að bönkunum og hvað þeir eru slæmir að lána ekki eins og mönnum þóknast til að ljúga sig áfram í blekkingarvef eigin heimsku. Menn skæla mismikið einsog gerist og gengur í flestum greinum þjóðfélagsins en þegar Formaður samtaka útgerðarmanna lýsa því yfir hvað allir séu lamaðir yfir trega bankanna, meira að segja hann er jafn undrandi og smábarn sem sleikjóinn var hrifsaður af, þá er fokið í flestar ef ekki allar holurnar og ólyktin ein eftir, sjá hér.
Illa er ég hræddur um að brotlendingin verði hörð, óvægi já ef ekki bara komi algjörlega á óvart þeim sem halda áfram að afneita því að þetta gengur hreint alls ekki upp eins og reynt er í dag. Hvernig sem menn tala og fegra hlutina með hjali um hvað þetta sé allt saman hagkvæmt, arðbært, sjálfbært og Guð má vita hvað frasar eru notaðir, þá eru staðreyndirnar einfaldlega þær að skuldir sjávarútvegsins hafa aukist um 350% á tíu árum þó umsetningin sé nánast sú sama. Þarf að hafa fleiri orð um þetta?
Góðar stundir.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
lau. 30.8.2008
Enn syrtir í álinn
Þetta blessað kerfi sem er verið að dröslast með er löngu gjaldþrota. Nánast samstundis og frjálsa framsalið og veðsetning aflaheimilda var leyfð lauk þessu. Eins og staðan er í dag þá er algjörlega vonlaust að verðleggja leigukvóta á þorski hærra en 45 krónur kílóið, allt umfram það skilur eftir sig skuldir þegar allur rekstrarkostnaður hefur verið gerður upp.
Eru menn svo hissa að hlutirnir skulu vera komnir að endalokum. Þeir sem halda því fram að leiga upp á 230 til 260 krónur kílóið gangi upp, reka sig alvarlega á skuldarvegginn sem safnast upp að lokum. Ekki veit ég í hvað veröld Reynir Þorsteinsson er en hann segir meðal annars "Aflaheimildir í þorski hafi verið skertar um 33% og verðið hafi lækkað sem því nemur"
Hvernig hann fær þetta út er mér hulin ráðgáta, leiguverðið hefur verið hækkandi jafnt og þétt og um sölur á varanlegum heimildum er ekki hægt að tala um. Bankarnir búa til eitthvað verð þegar þeir hengja einn upp á löppunum og rétta öðrum skuldarpakkann. Svona gengur þetta fyrir sig því miður og á eftir að versna mikið.
Góðar stundir.
![]() |
Nýtt fiskveiðiár mörgum erfitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 30.8.2008
Þessi sótti um og
það er líklegt að hún komi til með að hafa fulla stjórn á öllu,
maður rífur ekkert kjaft við svona kellu....
Góðar stundir.
![]() |
Börnin mín eru erfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 29.8.2008
Þar flaug fyrsta dollan
og vonandi ekki sú síðasta sem UTD gloprar frá sér. Ef UTD spilar eins og þeir gerðu í þessum leik á móti mínum mönnum þá hef ég akkúrat engar áhyggjur af úrslitunum, það verða auðfengin 3 stig. En ég verð samt að lýsa yfir furðu minni á algjöru getuleysi UTD í leiknum, þeir eru ekki vanir því að leika svona illa og satt best að segja hef ég aldrei séð þá svona slaka... En þetta hlýtur að koma allt saman, eftir áramót....
Elskið friðinn.
Góðar stundir.
![]() |
Zenit vann Stórbikar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 29.8.2008
Hluturinn varð til eftir að hann varð til !!!
Þvílík speki og er þetta ekki lýsandi dæmi um hverslags froðuhnakki þessi gaur er? Tilvitnun í fréttina. "Árni segist ekki vera búinn að eiga hlutinn í Byr mjög lengi, en segir hann þó ekki alveg nýtilkominn. Þessi hlutur er kominn til eftir að Byr verður til," segir hann.
Tilv. lýkur. Þvílíkt rugl, gat hluturinn orðið til áður en hann varð til?
Fréttin er síðan í heild sinni hér. Það er allt í þessu fína hjá þessum gaur og engin ástæða til að hafa nokkrar áhyggjur, allt tal um þrengingar,yfirvofandi kreppu, fjöldauppsagnir og gjaldþrotahrinu einstaklinga og fyrirtækja er bara ímyndunin ein, það staðfesti slæðudrottningin með eftirminnilegum hætti rétt áður en hún flaug á vit ævintýranna með öðrum kengbeygðum slæðudrottningum í Betlehem sjá hér. Restin af hirðinni samþykkir þessi orð svo með algjöru aðgerðarleysi og ferðagleði.
Nú er freistandi að setja mynd af slæðudrottningunni með þessum skrifum en ég ber slíka virðingu fyrir þessari síðu að þannig risamistök verða aldrei gerð aftur... En látum (með trega) mynd af .............. fylgja þessari færslu...
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
fös. 29.8.2008
Selja og kaupa af sjálfum sér, það er
stóra trixið og gera það bara nógu oft í gegnum nógu mörg fyrirtæki, þá verður skyndilega til einsog fyrir galdra aukning á eigið fé... Svona er Ísland í dag.
Góðar stundir.
![]() |
Tap Stoða 59,5 milljarðar króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 29.8.2008
Stórasta ekki frétt síðasta áratugar
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 28.8.2008
Þetta gæti orðið svolítið
mið. 27.8.2008
Erfið fæðing á Anfield
mið. 27.8.2008
Hér sjáum við raunverulega
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 27.8.2008
Allt á réttri leið
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 25.8.2008
Erfiður dagur framundan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 25.8.2008
UTD komið á mígandi siglingu
mán. 25.8.2008
Er STÓRASTA land í heimi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 24.8.2008
Veit einhver af hverju
sun. 24.8.2008