Stórasta ekki frétt síðasta áratugar

Það einfaldlega tekur því ekki að ræða svona smámuni. Heimsins besta fiskveiðistjórnun með sínu_orskur_i_kassa_654904.jpg himneska kvótakerfi knýr heiðarlegustu menn í margfalt sverari aðgerðir en þetta smotterí sem Svíarnir eru ákærðir fyrir.

 

 

fiskistofa.jpgMeð aðstoð opinbers apparats er síðan blessunin lögð yfir ruglið með gæðastimpli merktum FISKISTOFA. Þar á bæ er forstjórinn í alvarlegri afneitun á meðan margir af eftirlitsmönnunum sem undir honum starfa eru komnir með megnasta viðbjóð á því hvernig hlutirnir eru.forstjoraraefillinn_654903.jpg

Þeir sem eru hvað stórtækastir í fimleikunum við svindlið njóta þess heiðurs að horft er framhjá þeim með blinda auganu, hinir sem eru í því að fixa til örfá kíló eru hengdir upp og Forstjóraræfillinn lemur á brjóst sér hamlaus af gleði yfir árangrinum.

Það er einfaldlega ekki liðið að sannleikurinn komi í ljós, þá yrðu stjórnvöld og varðhundar kvótakerfisins að viðurkenna hverslags glapræði þessi stefna í sjávarútvegsmálum Íslendinga er.

Góðar stundir.


mbl.is Sænskir sjómenn ákærðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband