Landsbankamenn eru farnir að sýna sitt rétta andlit og okra nú á gjaldeyri sjá hér. Þessir prelátar eru farnir að ganga langt út fyrir alla þjófabálka og ef eitthvað vit væri í stjórnvöldum og fjármálaeftirlitinu þá ætti skilyrðislaus að stöðva þessi viðskipti strax og láta þá leiðrétta það sem búið er að versla með.
Að bera við kerfisvillu er svo aumt að smábarni í sandkassa dytti ekki til hugar að bera svona þvælu á borð, ef kerfisvilla er raunin þá ættu þeir að sjálfsögðu að hætta viðskiptum þangað til villan hefur verið lagfærð.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Skýrist á næstu klukkustundum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
sun. 5.10.2008
Æskilegt að afnema verð og vísitölutryggingu lána
strax á morgun. Æskilegt að sjálftökuliðið gefi eftir af sínum ofurlaunum. Æskilegt að nýleg launahækkun sem kjaradómur kvað upp fyrir þingmenn, ráðherra og aðra ríkisuppa gangi til baka snarlega. Æskilegt að eftirlaunalögin umdeildu verði afnumin ekki seinna en á morgun. Æskilegt að algjör endurskoðun á vaxtaokrinu sem þessi þjóð er beitt fari fram og vextir lækkaðir. Að lokum þá er æskilegt að almenningur verði upplýstur um raunverulega stöðu sem búið er að koma þessari þjóð í án allra fagurgala.
Þegar þetta liggur fyrir skjalfest þá mætti skoða framlengingu kjarasamninga, það væri aðför að almannaheill ef þessum atriðum verður sleppt. Það eiga allir, þá meina ég allir að koma að þessu enginn er undanskilinn punktur.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Æskilegt að framlengja kjarasamninga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 5.10.2008
Eins og æsilegasta spennusaga allra tíma
Hafi einhver efast í stöðunni 2 - 0 fyrir City þá er hinn sami ekki alveg með þetta á hreinu hvernig þetta Liverpool lið virkar. Hugsið ykkur til dæmis ef Liverpool hefði sett þessi þrjú mörk strax í fyrri hálfleik, hefði einhver nennt að horfa eftir það? Ég held ekki, þetta æðisgengna Liverpool lið er einfaldlega ekki þannig, spenna og fjör allt til enda það er aðalsmerkið og heldur áhorfendanum algjörlega í helgreypum spennunnar allt til enda...
Vinsælustu spennusagna rithöfundarnir nota til dæmis þessa aðferð með frábærum árangri, Liverpool hefur greinilega tileinkað sér tæknina einnig og uppskeran er frábær skemmtun í hverjum leik.
Smellið á myndina af Torres og njótið dýrðarinnar...
Hvað vilja menn hafa þetta betra? Ég var ekkert að spá fyrir þennan leik en sjá má hér að strákurinn var aldrei í nokkrum vafa hvernig þetta færi...
Verið góð hver við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Magnaður sigur Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
sun. 5.10.2008
Spá dagsins
Vegna tæknilegra örðugleika þá verður ekki gefin út spá í dag. En það stendur ekkert á því að bjartsýnin er í hámarki og sigur verður niðurstaðan hjá mínum mönnum. Kappinn kemur svo með sína skoðun á hlutunum seinna í dag.
Verið góð hvert við annað, það er mikilvægt.
Góðar stundir.
![]() |
Sex leikir í Englandi í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 5.10.2008
Ekki er það gæfulegt
700 milljarðarnir sem Bandarísk stjórnvöld ætla að moka inn í hagkerfið og á að
redda öllu er ekki nema 25% af því sem þarf til. Ef Ken Rogoff hefur rétt fyrir sér þá er ég farinn á sela og Andanefjuskytterí.
Selurinn er hið mesta góðmeti og hægt að nýta á ýmsa vegu, um hvalaafurðir þar ekki að fræða neinn um, þær eru lostæti, síðan hendi ég mér af fullum þunga í sláturgerð.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Segir 700 milljarða dala hvergi nærri duga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 5.10.2008
Látum Davíð klára málið
Það er ekki úr vegi að láta Davíð klára það sem hann byrjaði á. Nú ef það tekst ekki þá fer Guð faðirinn bara sömu leið og hinir sem ábyrgðina bera, bak við lás og slá og lyklarnir mega mín vegna hvíla á hafsbotni.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Rætt við norræna seðlabanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 4.10.2008
Rætt hefur verið um að auka þorskkvótann
Ég er með tillögur í þeim efnum.
1. Úthluta skuli jafnt á alla sem hafa veiðileyfi þeirri aukningu sem til kemur.
2. Veiðar á ýsu, ufsa og steinbít verði gefnar frjálsar.
3. Ekki verði heimilt að framselja eða leigja þessa úthlutun.
Nú er lag að fara eftir, virða og taka tillit til álits manréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna.
Á dv.is var fjallað um þetta mál.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Fundað um lífeyrissjóði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 4.10.2008
Spáin kolröng og skýringin fundin
Það sem fyrst og fremst varð þess valdandi að spáin var jafn röng og raun bar vitni er að ég sat öfugu megin við kristalkúluna góðu vegna tæknilegra mistaka. Tæknileg mistök af þessu tagi eru að sjálfsögðu fyrirgefin af samfélaginu enda hafa tæknileg mistök af margfalt stærri stærðargráðu verið fyrirgefin...
Svo náttúrulega er annað sem setti þetta allt úr skorðum og er þar stóri sökudólgurinn Wes Brown sem ber þar mikla ábyrgð. Hverjum hefði dottið það fyrirfram í hug að þessi grautfúni varnarmaður hefði krafta til að hlaupa fram yfir miðju og alla leið upp að marki andstæðinganna og aulast síðan álkulega með hnakkann fyrir boltann sem á dularfullan hátt endaði í markinu...
Já niðurlægingin var algjör fyrir milljarða tríó UTD sem á að skora mörkin fyrir klúbbinn. Niðurlægðir milljarðahausarnir áttu bara einn kost í stöðunni og tóku við sér og var allt annað að sjá til þeirra eftir markið sem Wes Brown skoraði...
Til hamingju UTD aðdáendur og Víðir vertu spakur...
Verið góð hvert við annað, og mig líka...
Góðar stundir.
![]() |
Man. Utd sigraði í Blackburn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 4.10.2008
Það vantar einn í hópinn
Hvar er Guðfaðirinn, er hann ekki ómissandi í þessari þjóðstjórn?
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Ráðherrar mæta til fundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Það verður ekki logið upp á þá eyjamenn að nýjungagjarnir eru þeir með afbrygðum. Ef marka má fréttina þá eru þeir byrjaðir að gera að skipunum hjá sér, þetta er síðuritara mjög svo forvitnileg atvinnugrein enda um algjöra nýjung að ræða...
Það er náttúrulega í takt við annað, ef ekki má veiða meira sem skapar náttúrulega fulla vinnu við aðgerð á fiski, þá er fyllt upp í dauða tímann með aðgerð á aðgerðarlausum skipum.
Ég bara spyr, er ekki allt í lagi með þá sem skrifa fréttirnar inn á mbl.is.
Verið góð hvert við annað.
Góðar stundir.
![]() |
Eldur kviknaði í Álsey |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 4.10.2008
Bara svo það sé á hreinu þá fer
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 12:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 3.10.2008
Lífeyrissjóðs forstjórarnir eru óhæfir
Stjórnmál og samfélag | Breytt 6.10.2008 kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fös. 3.10.2008
Búið spil og er hrun framundan?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 2.10.2008
Stórskotaárás á Bessastaði
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mið. 1.10.2008
Létt verk fyrir Liverpool
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
mið. 1.10.2008
Kínverjar hjólgraðar grasætur
þri. 30.9.2008
Braut Seðlabankinn lög?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 30.9.2008
Það eru ansi margir leiðir og hafa farið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mán. 29.9.2008
Jón Magnússon formaður þingsflokks Frjálslynda flokksins
mán. 29.9.2008
ESB hafnar Íslenska kvótakerfinu og því
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)