Æskilegt að afnema verð og vísitölutryggingu lána

strax á morgun. Æskilegt að sjálftökuliðið gefi eftir af sínum ofurlaunum. Æskilegt að nýleg launahækkun sem kjaradómur kvað upp fyrir þingmenn, ráðherra og aðra ríkisuppa gangi til baka snarlega. Æskilegt að eftirlaunalögin umdeildu verði afnumin ekki seinna en á morgun. Æskilegt að algjör endurskoðun á vaxtaokrinu sem þessi þjóð er beitt fari fram og vextir lækkaðir. Að lokum þá er æskilegt að almenningur verði upplýstur um raunverulega stöðu sem búið er að koma þessari þjóð í án allra fagurgala.

Þegar þetta liggur fyrir skjalfest þá mætti skoða framlengingu kjarasamninga, það væri aðför að almannaheill ef þessum atriðum verður sleppt. Það eiga allir, þá meina ég allir að koma að þessu enginn er undanskilinn punktur.

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Æskilegt að framlengja kjarasamninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband