Færsluflokkur: Enski boltinn
sun. 3.5.2009
Unaðslegur sæluhrollur hríslast um líkamann
þegar maður hlustar á þessa dásemd...
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool fór létt með Newcastle |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
þri. 14.4.2009
Þetta var svona fullorðins
Stórskemmtilegur leikur og spennan var rafmögnuð, hvað er hægt að hafa það betra? Betra hefði jú verið að Liverpool hefði komist áfram en það var því miður ekki í boði þetta árið.
Ég óska aðdáendum Chelsea að sjálfsögðu til hamingju með sigurinn.
Góðar stundir.
![]() |
Chelsea komið í undanúrslit |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 11.4.2009
Var þetta grís eða heppni?
Spyr sá sem ekki veit neitt um leiki dagsins enda var vaktin staðin í búðinni að venju. Það er eitthvað sem segir mér að það séu einhverjir þarna úti stútfullir af fróðleik um gang mála í leikjunum og fræða mig væntanlega eitthvað um þessi mál af alþekktri hógværð....
Að venju þá óska ég aðdáendum United til hamingju með sína menn, ég hef gerst sekur um að sniðganga aðdáendur annarra liða svo sem Arsenal og Chelsea og er bætt úr því hér, til hamingju með ykkar lið...
Góðar stundir.
![]() |
Macheda hetja United annan leikinn í röð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 11.4.2009
Nú erum við að tala saman
Já sæll, það var ekki við öðru að búast frá þessu frábærasta liði allra tíma í sögu enska boltans....
Verið svo góð við hvert annað...
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool burstaði Blackburn og fór á toppinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 9.4.2009
Kennslustund í fótbolta og lærlingarnir
að þessu sinni voru leikmenn og þjálfari (Benni brosmildi) Liverpool. Það þarf ekkert að kenna mér neitt í þessum efnum enda hundvanur öllum fjandanum frá þessu liði og búinn að vera aðdáandi Liverpool síðan, ok látum það liggja milli hluta...
Nú er ekkert annað í stöðunni en girða sig duglega í brók (helst síða) og svara fyrir sig í seinni leiknum. Það væri á móti öllum reglum ef ég sleppti þessu lagi, njótið og verið góð við hvert annað...
![]() |
Frækinn sigur Chelsea á Anfield - Barcelona burstaði Bayern |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 10:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 5.4.2009
Skotatitturinn að rifna úr monti
Að gefnu tilefni þá er hausinn á færslunni vandlega og ofurvarlega valinn... Það leynast ofurviðkvæmar sálir þarna úti sem á einhvern óskiljanlegan hátt hafa skrúfað fyrir þann möguleika að sá sem hér situr og hamrar á lyklaborðið hafi einstaklega gaman að því að hræra í heittrúuðum fótboltabullum sem og öðrum stjörnuljósum...
Ég bregð ekki út af vananum og óska United aðdáendum til hamingju með sigurinn, þrjú stig eru jú þrjú stig hvernig sem þau svo koma, klaufalega eða hálfum öðrum hellingi eftir að venjulegum leiktíma er lokið.
Góðar stundir.
![]() |
Ferguson: Áhættan borgaði sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 5.4.2009
Hvað og hver er að hræra í hausnum á Benna brosmilda?
Mér dettur í hug þriggja fasa 380 volta iðnaðarhrærivél á meiri hraðanum.....
Tveggja stiga forskot á toppnum segir frekar lítið ef litið er til þess að Rauðnefur og klaufarnir hans í áhugamanna klúbbnum UTD eiga tvo leiki til góða...
Það er aldrei að vita nema þeir klaufist til að vinna þessa leiki sína og þá líta þessi orð Benna brosmilda frekar klaufalega út, eða eigum við frekar að segja þau koma í besta falli Spánskt fyrir sjónir...
Góðar stundir.
![]() |
Benítez: Pressan er á United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 3.4.2009
Gerrard barnslega saklaus og Himmi er hálfviti
Hvernig dettur einhverjum í hug að maður með þetta andlit geti gert eitthvað misjafnt af sér, ég bara spyr???
Hvort Himmi sé hálfviti (sjá hér) eða ekki ætla ég ekki að dæma um,,, en ef mig misminnir ekki þá sagði hann þetta sjálfur um sig og reyndar einhverjir fleiri...
Góðar stundir með kveðju úr slorinu....
![]() |
Gerrard lýsir sig saklausan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 30.3.2009
Ekki spurning Pepe Reina er flottastur
spurning hver er svo næst flottastur, tekið er á móti öllum uppástungum án ritskoðunar. Á meðan þið eruð að skrifa niður það sem þið hafið til málanna að leggja þá mæli ég sérstaklega með þessu hugljúfa og geysivinsæla lagi.
Góðar stundir.
![]() |
Gerrard: Pepe líklega sá besti í heimi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 22.3.2009
94 mín kennslustund í fótbolta.
Ég tek við hamingjuóskum fram eftir næstu viku á þessari síðu. Að Tryggvarbraut 22 á Akureyrir sem er mitt annað heimili þessa dagana verður svo tekið á móti blómvöndum og pönnsum 24/7
Góðar stundir.
![]() |
Gerrard með þrennu og eins stigs munur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |