Færsluflokkur: Enski boltinn
lau. 6.12.2008
Djöfull var þetta erfið fæðing
en hafðist að lokum 3 - 1 sigur og í rauninni gefa þessar tölur ekki alveg rétta mynd af leiknum. Liverpool liðinu skortir sjálfstraust og leikgleði, hvernig sem þetta tvennt gat fokið út um gluggann er ekki gott að segja, ekki liggur ástæðan í einhverjum hroðalegum töpum það er alveg kristalskýrt...
En hvað um það afmælisgjöfin sem ég bað um fékk ég frá mínu frábæra liði og hvað sem á eftir að gerast í dag eða morgun skiptir ekki nokkru máli helginni er reddað....
Góðar stundir.
![]() |
Arsenal, Liverpool og Chelsea unnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 1.12.2008
Þvílíkt klúður
Það verður að segjast eins og er, mínir menn voru drullu heppnir að tapa ekki. Ég stend við það sem ég sagði í fyrri færslu, helvítis kúlan er farin í ruslið og ég 193 evrum fátækari...
Fótboltapælingar og spár fyrirfram verða aflagðar og tímanum eitt í eitthvað annað.
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool á toppinn þrátt fyrir markalaust jafntefli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 1.12.2008
Það verður engin breyting á þessu í kvöld
West Ham verðu einfaldlega að bíta í það súra að þeir taka engin stig á Anfield í kvöld. Kristalkúlan góða er með það á hreinu að Liverpool vinnur með tveggja marka mun....
Ég er það líka...
Og toppsætið verður okkar eftir tap Chelsea í gær...
Sjáum til hvort eitthvað er að marka kúluna góðu, ef þetta reynist algjört bull þá flýgur kúlan í ruslið og allar fyrirfram útgefnar spár verða aflagðar á þessari síðu.
Góðar stundir.
![]() |
West Ham vann síðast á Anfield 1963 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 30.11.2008
Konunni fært súkkulaði í rúmið
fös. 28.11.2008
Ekki byrjar það fallega
hjá þessum einstaklega hæfileikaríka dreng, Við skulum rétt vona að hann verði snöggur að rífa sig upp úr þessu, komist í eðlilegt leikform og fari að gera það sem til hans er ætlast.
Góðar stundir.
![]() |
Torres frá næstu vikurnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 26.11.2008
Gerðu það sem gera þurfti
og það er bara andskotans nóg. Það er engin ástæða til að niðurlægja andstæðinginn meira en nauðsynlegt er...
Ég held ég hafi sagt þetta áður....
Góðar stundir.
![]() |
Barcelona, Liverpool og Atletico Madrid áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 23.11.2008
Þetta var góður dagur
hjá mér. Ég sleppti algjörlega að horfa á þennan leik og gerði hlut sem var mikið skemmtilegri. Ég fór á bloggarahitting á Kaffi Karólínu í gær. Það segir sig að sjálfsögðu sjálft að þarna kom saman hópur stórsnillinga sem eru með hjartað á réttum stað og réttlætiskenndina á hreinu.
Einhver sagði að þessi hefði ekki hugmynd um hvað mikið kynlíf væri stundað heima hjá honum...
Flottar mæðgur...
Hress hópur...
Víðir að fræða mig á því hvernig UTD kjöldregur andstæðinga sína, það fór öðruvísi...
Allir vinir...
Takk fyrir góðan og skemmtilegan dag kæru vinir....
Góðar stundir.
![]() |
Benítez: Slæmur dagur hjá okkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 18:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
mið. 19.11.2008
Ágætt gengi United byggt á misskilningi og
óhóflegu ofáti á ruslfæði. Er nema von að Ferguson sé búinn að vera svona lengi hjá UTD það skilur hann ekki nokkur kjaftur, svo hafa menn engan tíma til að hlusta á rausið í honum það tekur tíma frá matarveislunum.
Góðar stundir.
![]() |
Éta óhóflega og skilja ekki Ferguson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 15.11.2008
Leikmenn Liverpool sýndu gestgjöfum sínum
fulla tillitsemi og létu tvö mörk duga í öruggum sigri. Það telst almenn kurteisi að niðurlægja ekki gestgjafa sinn, það hefur þetta einstaka lið ætíð að leiðarljósi og meðhöndlar mótherja sína af nærgætni og virðingu.
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool í efsta sætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 12.11.2008
Grútþunnar útriðnar Guggur
á Sunnudagsmorgni eins og ég lýsti ákveðnu liði fyrir nokkru eru hreint ekki svo slæmar, já svei mér þá ef þær eru ekki hreinlega heillandi miða við þetta andskotans fúsk Liverpool á White Hart Lane í kvöld.
Í rauninni mætti halda að einungis búningar Liverpool hafi mætt til leiks. Arfaslakt og steinsofandi lið Liverpool var tekið duglega í ósmurðan afturendann og átti það svo sannarlega skilið.
Bara svo það sé á hreinu þá er ég alveg góður, sama hvernig á það er litið...
Góðar stundir.
![]() |
Tottenham sló Liverpool út úr deildabikarnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)