Geir er með risavaxið tromp upp í erminni

sem á eftir að koma mönnum verulega á óvart. Skynsamlegast sem Geir getur gert að hans mati og mun hann örugglega notfæra sér þetta, það er að gera og segja ekki neitt á meðan hinir tala. Það er alkunn aðferð hjá Geir að gera ekki neitt þangað til að hlutirnir skýrast að sjálfum sér. Mismunandi er svo hvað afleiðingar aðgerðarleysið hefur í för með sér. Nú nýlega hafði aðgerðarleysið þær smávægilegu afleiðingar að Ísland rambar á barmi gjaldþrots.

Já best er að nota sér Íslensku aðferðina og steinhalda kjafti og sjá til, það er aldrei að vita nema hlutirnir hreinlega reddist að sjálfum sér og Geir komi með nokkrar ferðatöskur fullar af seðlum til baka. Ferðatöskurnar eru bráðnauðsynlegar í þessa flutninga því bankarnir eru algjörlega óhæfir í svona smáræði eins og að flytja fjármagna til landsins. Og hvernig skyldi svo standa á því, jú aðgerðarleysið hafði einhver smávægileg áhrif á bankastarfsemi Íslendinga.

Góðar stundir

 


mbl.is Ráðherrar funda um Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var þetta einhver spurning?

xabi_alonso_skora_i_sigurmark_liverpool_gegn_chelsea.jpgEkki að mínu mati en ég bjóst við því að leikurinn færi 2 - 1 fyrir Liverpool. En svona er þetta margt af því sem maður vonar verður ekki alltaf að veruleika en sigur er það sem málið snýst um.

Eitthvað talaði ég um þetta í gær sjá hér, aldrei efaðist ég eitt augnablik um þennan leik og svona til að róa ykkur sem þetta lesa þá verður Liverpool meistari í vor. Kristalkúlan mín er það ábyggileg þessa dagana og samkvæm sjálfum sér að ég slæ þessu föstu hér með.

Góðar stundir.


mbl.is Liverpool lagði Chelsea - Fyrsta tap Chelsea á Brúnni í 4 ár og 8 mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Björn Ingi að koma aftur í pólitíkina og hver borgar þá fyrir jakkafötin?

bingi_709428.jpgÞegar maður les pistil sem Björn Ingi skrifaði og birtist á visir.is mætti halda að hann sé á leiðinni í pólitíkina aftur. Þessi skrif minna meira á framboðsræðu frekar en eitthvað annað. Það má vel vera að svo sé og þá er spurning hvar ber Björn Ingi niður, í borgarmála eða landsmálapólitíkinni?orkuveitan.jpg

Eitt verk er enn óunnið og mætti alveg hugsa sér að það sé eitthvað að trufla Björn Inga, Orkuveituna á enn eftir að gefa vildarvinum og við það geta menn ekki unað. Það er einfaldlega þannig að það sem þessi jakkafatahjörð byrjar á algjörlega óháð því hver borgar fötin, klárar hún á endanum bara spurning um tíma.

bjossi_og_dori.jpgEitt er það sem hefur síðan flogið um toppstykkið á mér og tengist Þættinum Markaðurinn sem er á Stöð 2 og umræddur Björn Ingi stjórnar. Hringir Björn Ingi í vin sinn Halldór Ásgrímsson og fær uppgefið hvaða spurninga má spyrja þegar ákveðnir menn eru við borðið hjá honum?

Íslendingar eru einfaldlega orðnir háðir því að láta jakkafatahjörðina taka sig í ósmurðan afturendann,  í kaupbætir er síðan troðið gróflega á mannréttindum þegnanna. Stofnun sem heitir mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna er hreinlega ekkert að marka enda ekki skipuð af íhaldinu, Framsókn, Samfylkingunni eða mannréttindanefnd Líú.

Góðar stundir. 


mbl.is Baráttan neikvæð og ódrengileg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flott vídíó og brandari í tilefni dagsins.

Þar sem enginn Banki varð gjaldþrota á Íslandi í dag er full ástæða til að gleðjast.Drive Through ATM Accident!

Setjum svo einn nettan með í lokin...Wink

Ung hjón um þrítugt voru búinn að koma börnunum í háttinn og voru að æfa náttúrunnar glímubrögð, þegar konan var komin á rétt rakastig sagði hún , elskan sæktu smokkinn. Smokkarnir voru geymdir í skúffu við endann á rúminu. Maðurinn sat þar og var að setja upp græjurnar þegar að 7 ára gamall sonur þeirra kemur inn í herbergið nývaknaður við vondan draum. Konan var fljót að hugsa og reif sængina upp að höku og þóttist vera sofandi, maðurinn var í vondum málum með flaggað í fulla stöng, en skellti sér á fjóra fætur á gólfinu til að fela dýrðina. Strákurinn spurði pabba sinn undrandi "hvað ertu að gera pabbi". Þá var kall fljótur að hugsa og sagði "ég hélt ég hefði séð mús, og sýndist hún hlaupa undir rúmið" Börn eru ekki eins vitlaus og fullorðið fólk heldur. Strákurinn spurði " pabbi, ef þú nærð henni , ætlarðu þá að ríða henni!!!!

Góðar stundir.

 

 


Ráðuneytisstjórinn í Fjármálaráðuneytinu er flokksdindill og ríkisstjórnin er fífl.

Seðlabankastjórinn er einnig flokksdindill og hlýtur því að teljast fífl með hinum fíflunum þar sem ljóst má vera að hann stjórna fíflahjörðinni...W00t

Ekki er það þannig að þetta sé endilega mín skoðun eða túlkun, en ég get svo sem ekki heldur sagt það að ég sé neitt sérstaklega ósammála þessu, hverju ég er sammála og eða ósammála í þessari grein verður ekki gefið upp hér...Wink 

Góðar stundir.


mbl.is Aðgerðir Breta sköðuðu alla bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er farið að syrta í álinn?

Eru menn loksins að vakna af svefninum góða og átta sig á því að þeir hafa hagað sér eins og algjör fífl? Verðmyndun á svokölluðum varanlegum aflaheimildum sem ég vil reyndar kalla gervieign hefur um árabil verið algjörlega úti á túni. Ekki veit ég hvað ég hef oft sagt það að veðsetningin og þessi arfagalna verðmyndun aflaheimilda geti ekki gengið og sá dagur muni koma að gjaldþrotin verði ekki umflúin.

Er það ekki frekar pínleg staða fyrir Arthur Boga formann LS og félaga hans Friðrik J. hjá Líú að liggja á hnjánum fyrir framan alþjóð betlandi um fyrirgreiðslu á ruglinu sem þeir hafa stutt svo duglega í gegnum árin? Verðmyndun á sameign þjóðarinnar á nefnilega ekkert skylt við framboð og eftirspurn, þarna á verðmyndunin sér alfarið uppruna hjá þeim sem um sameignina halda og hefur verið treyst fyrir henni. Með það traust hafa menn farið svo vægt sé til orða tekið hroðalega, niðurstaðan er einföld sjávarútvegurinn á vonarvöl vegna skuldsetningar. Væri þetta ekki einhversstaðar kallað að bregðast algjörlega því trausti sem mönnum er sýnt?

Einn höfðinginn bætti svo í hópinn fyrir hádegi og blessaði hlutina svo um munaði. Gvendur vinalausi mætti í viðtal hjá Birni Inga Hrafnssyni í þættinum Markaðurinn á Stöð 2. Það vafðist ekki fyrir þeim vinalausa að úttala sig um vel rekinn sjávarútveg og hvað dýrðin væri í rauninni mikil í þessu öllu saman. Þeir lesa sjálfsagt sömu yfirlýsinguna vinalausi Snæfellingurinn og Friðrik J. áður en þeir koma í viðtöl, í það minnsta er rullan sláandi lík sem þeir blaðra út úr sér.

Ekki klikkaði Björn Ingi á því frekar en aðrir fjölmiðlamenn sem ég fer fljótlega að líkja við meðvirka landráðamenn, ekki ein einasta gagnrýnin spurning á vinalausa Snæfellinginn um það hvernig í ósköpunum menn gætu haldið því fram að þetta sé svo vel rekið fyrst skuldsetningin er orðin svo hroðalega að sjávarútvegurinn er tæplega rekstrarhæfur.

Góðar stundir.


mbl.is Sauðargærutogarar fari út fyrir 12 mílur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigum við að tjá okkur eitthvað um þetta?

alex_ferguson.jpgNei sennilega er hyggilegast að vera rólegur um sinn, mínir kappar eiga erfiðan leik á morgun við Chelsea á útivelli. Það væri sannarlega vandræðalegt að vera búinn að hrauna út úr sér einhverri guðdómlegri visku um hrakfarir UTD í þessum leik ef mínir menn drulla síðan upp á bak á morgun...Wink

En líkurnar á því að það gerist eru náttúrulega nánast engar og sigur verður niðurstaðan, við látum allar spár eiga sig að þessu sinni vegna utanaðkomandi aðstæðna...Cool 

Þessi mynd er sett hérna inn að einskærri virðingu við félaga mína sem halda með og styðja þennan gaur...Halo 

Góðar stundir.


mbl.is Ferguson: Áttum ekki meira skilið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er stjörnuvitlaust veður

víða á Norður og NA-landi. Eins og sést á þessu korti þá blæs duglega á harðjaxlana hér norðan heiða.

nal101.gif

Klikkið tvisvar á myndina.

Góðar stundir.


mbl.is Skemmdir á mannvirkjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þar fauk Rússalánið

milljon_krona_se_illinn.jpgtil fjandans.

 

 

 

 

                                                                                                                                                             draumar_707924.jpgOg Ameríski draumurinn farinn yfir veg allra veraldar sjá hér.

Góðar stundir.


mbl.is Áhyggjur af greiðslugetu Rússlands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú hundruð myndir af Davíð

se_labankastjori_707659.jpgÉg veit ekki hvernig í helvítinu stendur á því en ég hef fengið sendar þrjú hundruð myndir af Davíð í tölvupósti núna í dag. Hef ég einhvers staðar sagt það að ég haldi eitthvað sérstaklega upp á karlinn? Ekki mynnist ég þess, kannski þorir fólk ekki að birta þessar myndir hjá sér hver veit? Ég læt eina koma hér.

Góðar stundir.


mbl.is Davíð: Varaði ítrekað við að bankar væru í hættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja er það?

Úr fréttinni "Og gleymum því ekki að þrátt fyrir að ímynd okkar sem þjóðar hafi beðið hnekki, njótum við verðskuldaðs álits sem fiskveiðiþjóð. Það hefur ekki breyst og mun gagnast okkur. Ákvarðanir okkar verða því - án nokkurs afsláttar - að vera í...

Bláklæddir Spánarfarar í ruglinu.

2 - 2 hefði verið samgjarnt en handónýtir baunatittir sáu um það að niðurstaðan var allt önnur. Lélegasti leikur Liverpool síðan Stoke náði jafntefli á Anfield í deildinni staðreynd og eitthvað þurfa menn að hugsa sinn gang eftir þessa Spánarför. Ég...

Er Seðlabankinn gjaldþrota?

Eitthvað hafa menn gengið hratt um gleðinnar dyr í góðærinu sem var aldrei góðæri, í það minnsta ekki fyrir almenning. En merkilegast við þetta allt saman er hvernig forsætisráðherra ver vin sinn í stöðu Seðlabankastjóra svo ekki sé nú talað um...

Einn er sá maður sem veldur meiri skaða

en hann nokkurn tímann gagnast þjóðinni af einhverju viti að mínu mati. Í gær mætti þessi gapuxi í fjölmiðla og boðaði fagnaðarerindið alveg eins og vel innvígt íhaldsnaut gjörsneitt öllum tengslum við raunveruleikann, sjá hér . Ekki er gott að segja...

Spanjólinn hljómar eins og Ingibjörg Sólrún

Þetta er sjálfsagt túlkað sem varnarsigur. Svei mér þá og ég sem hélt að spanjólinn væri sæmilega viti borinn, þar fauk það... Góðar stundir.

Hún er í sjóði 9

í Glitnir... Góðar stundir.

Það verður ekki litið um öxl

eftir þetta. Stefnan er á sigur í deildinni og ekkert röfl, að vísu þá velja mínir menn sér svolítið erfiða leið í síðustu leikjum, ég er orðin hundvanur svona rússíbanaferðum en sigur hefur verið niðurstaðan og það telur. Menn geta sleppt öllu kjaftæði...

Af hverju bara þrjá mánuði?

Guðjón Arnar vil að verðtrygging lána verði stöðvuð í þrjá mánuði, þetta kemur fram í grein hans í mogganum í morgun. Af hverju bara þrjá mánuði spyr ég? Getur maður leitt lýkur að því að í undirbúningi sé að setja verðtryggingu á laun almennings í...

Þjóð sem heldur því fram

að það sé fásinna að virða mannréttindi og dregur það jafnvel í efa að hlusta eða hlíta þurfi úrskurðum mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna þótt klárlegt sé að hlíta þurfi úrskurðum nefndarinnar, hefur akkúrat ekkert í öryggisráð Sameinuðu þjóðanna að...

Staurblankir Íslendingar áhorfendur og fylgja samráðsstefnu

Hafró og Alþjóðahafrannsóknaráðsins, ICES eins og viljalaus sauðahjörð á leið í sláturhús. Á meðan hlutirnir blómstra í Barentshafi þá fylgja íslensk stjórnvöld gerræðislegum tillögum Hafró sem sóttur er stuðningur við hjá Alþjóðahafrannsóknaráðinu,...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband