fös. 20.3.2009
Ég á alþingi
Nei ekki í þetta skiptið þar sem 12 þingmenn eru ekki í boði í Norðaustur kjördæmi, ef svo væri þá væri ég klárlega á leiðinni á þing, ekki spurning....
Eina spurningin í þessu er hvort alþingi sé tilbúið fyrir mig, ég hefði svolítið gaman af því að sjá framan í steinrunnin andlitin á þessum pempíum sem þarna sitja þegar jómfrúarræðan mín rynni út úr þverrifunni á mér hugljúf, vönduð en samt hæfilega skreytt með nokkrum af vinsælustu orðtökum íslenskrar tungu...
Ásta Hafberg Sigmundsdóttir er flottur fulltrúi Frjálslynda flokksins í Norðausturkjördæmi, ég hef tröllatrú á henni þarna er á ferðinni ung og víðsýn kona sem vil í alvörunni að þegnar þessa lands búi við heilbrigt lýðræði og réttlæti,þá meina ég fyrir alla ekki bara nokkra útvalda.
Góðar stundir.
Ásta Hafberg í 1. sæti hjá Frjálslynda flokknum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fös. 20.3.2009
Chelsea úr leik í meistaradeildinni
Nú er enginn John Arne Riise til að hjálpa Chelsea og þá segir það sig sjálft að þeir detta út, enda drógust þeir á móti alvöru liði þar sem alvöru menn skipa hverja stöðu...
Góðar stundir.
Liverpool og Chelsea mætast í Meistaradeildinni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 20.3.2009
Þetta er alvöru klúbbur
fyrir alvöru fólk sem stofnaður var af aðdáendum alvöru liðs. Sumir segja besta félagsliði allra tíma ég tek að sjálfsögðu undir það, já góðir gestir við erum að tala um Liverpool.
Góðar stundir.
Buðu Ian Rush á árshátíðina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 18.3.2009
Benni bensínlausi !!!
Nei hvaða helvítis rugl er þetta, auðvitað samdi karlinn við besta klúbb veraldar. Benni brosmildi sýndi af sé ótrúlega fágæta takta eftir leikinn góða við United um liðna helgi (sem sumir vilja gleyma eins og skot,,,) enda hin svakalegasta martröð í hugskotum aðdáenda United, Benni karlinn hreinlega brosti svo mikið að færustu lýtalækna standa frammi fyrir nánast vonlausu djobbi sem er að tjasla saman haugrifnu steingerðu og svipausu andlitinu á hetjunni.
En þar fyrir utan þá sé ég það fyrir mér að United tapar þremur stigum um helgina og allt í uppnámi í deildinni, sem að vísu verður bara smotterí á móti hugaræsingi aðdáenda United.
Góðar stundir.
Benítez samdi við Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 17.3.2009
Skuldir Manchester United seldar á tombóluverði
Jæja KING hvar ertu félagi? Ekki rennur mig minni til að þú hafir komið inn á þetta hér þegar þú gerðir svo rækileg skil á skuldasúpu Liverpool í haust.
Vissir þú ekki betur eða var þetta of viðkvæmt?
Góðar stundir.
Ferguson sniðgengur Sky | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 16.3.2009
Þrátt fyrir þetta áfall þá er Hrói Höttur á Íslandi
þessa dagana. Atburðir liðinnar helgi staðfesta það svo óyggjandi sé að Hrói Höttur er á Íslandi, það sem við vissum ekki er að kappinn er rammíslenskur og góðverkin bókstaflega skvettast í boðaföllum frá hetjunni góðu enda þekkjum við Hróa Hött bara af góðu einu.
Góðar stundir.
Áætlun um endurskipulagningu Kaupthing Bank hafnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 16.3.2009
Í alvöru Bjarni og þú er sjálfsagt kjaftstopp
yfir þessari uppgötun.
Það er nú samt eitthvað sem segir mér að þú hafir haft ansi góða hugmynd um þetta frá upphafi. Maður sem var á bólakafi í sukkinu sjálfur, illa er ég svikinn ef þú hefur ekki lagt þig duglega fram við að skreyta hlutina í þeim eina tilgangi að ljúga upp verðmæti á handónýtum hlutum.
Það er akkúrat formúlan var notuð og skýrir að stórum hluta hversu viðarmikið hrunið varð.
Góðar stundir.
Eignir gömlu bankanna rýrna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 15.3.2009
Nýja Ísland, hvað er framundan í máli og myndum?
Svartur spádómur frá skoskum miðli - væntanlega ekki fjölmiðli þó
Spádómurinn:
Til umhugsunar... Þetta var skrifað og birt í febrúar.
Þetta er opinberun Jóhannesar Georgs, sem réttu nafni heitir Johanes George Lee og er skoskur sjáandi sem hefur séð
marga atburði fyrir, t.d. forsetakjör Obama, skógareldana í Ástralíu, og efnahagshrunið á Íslandi.
Hér á eftir er lausleg þýðing úr ensku á sýn hans á framtíð Íslands á næstu árum.
2009: Forsætisráðherra nýju ríkisstjórnarinnar, Jóhanna, er heiðarleg og dugleg, en
því miður fær ríkistjórn hennar fáu áorkað til góðs. Orsök þess er mikil
ringulreið og óeining í þinginu og stjórnkerfinu. Fátt gengur í haginn. Það
tekst að koma Davíð úr Seðlabankanum og skipa einn Seðlabankastjóra, en það
breytir litlu um efnahagsöngþveitið. Atvinnuleysi eykst, fólk missir eignir
sínar. Þúsundir fólks flytja úr landi á þessu ári, mest til Noregs og Kanada, en
einnig til fleiri landa.
Seinast í Apríl verða kosningar til þings. Nokkur ný framboð taka þátt í kosningum, en ekkert þeirra fær mann á þing, heldur taka þau
fylgi frá Samfylkingu og Vinstri grænum. Framsóknarflokkurinn vinnur góðan kosningasigur og Sjálfstæðisflokkurinn fær frekar slaka útkomu.
Þessir flokkar fá nauman meirihluta saman, og mynda ríkisstjórn að loknum kosningum, við lítinn
fögnuð þjóðarinnar. Verðbólga minnkar á fyrri hluta ársins, en stígur í yfir 30%
í árslok 2009.
2010: Skelfilegt ár. Ríkisstjórn sjálfstæðis/Framsóknar, umsnýr öllu sem fyrri ríkisstjórnin gerði. Allar stöður eru pólitíkst skipaðar
samkv. helmingaskiptareglu flokkanna. Verðbólga nær 50% Eini atvinnuvegurinn sem
blómgast sem aldrei fyrr er dópsala. Atvinnuleysi nálgast 20%. Glæpaalda gengur
yfir höfuðborgarsvæðið. 20.000 manns flytja úr landi, aðallega af
höfuðborgarsvæðinu. Samt er ástandið betra í sumum landshlutum, þar er þokkalegt
atvinnustig, og minni glæpir og eiturlyf. Dæmi um slíka staði eru:
Vestmannaeyjar, Hornafjörður, Dalabyggð. Snæfellsnes, Vopnafjörður. Fólk sækir á
alla þessa staði úr eymdinni og glæpunum á Höfuðborgarsvæðinu. Hjónaskilnaðir
slá öll met.
2011: Miklar óeirðir í landinu. Byggingar og jafnvel heilu hverfin brennd í þessum
óeirðum. Lögreglan ræður ekki við neitt, þótt hún sé nú öll búin skotvopnum.
Útgöngubann í Reykjavík. Atvinnuleysi og þjóðargjaldþrot blasir við.
Ríkisstjórnin er óstarfhæf. Daglegir götubardagar á seinni hluta ársins. Fengin
óeirðalögregla búin vopnum frá Danmörku til að stilla til friðar, en það hjálpar
lítið. 20.000 manns flytja úr landi.
2012: Olíuleit norðaustan við Ísland. Miklar vonir bundnar við hana. Annars flest í
ólesti. Vopnuð átök í Reykjavík. Jarðskjálfti gengur yfir Selfoss og Hveragerði
og veldur miklum skemmdum. 25.000 flytja úr landi.
2013: Niðurstöður olíuleitar valda vonbrigðum. Ekki hagkvæmt að vinna olíu, amk. miðað við nútíma tækni.
Ísland er endanlega lýst gjaldþrota. Evran kostar 2000 krónur. 150% verðbólga. 20.000 flytja úr landi.
2014: Ísland óskar eftir aðild að Evrópusambandinu EU. En þessari umsókn er hafnað í
Brussel. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur við stjórn landsins, ríkisstjórn og
forseti eru rekin úr störfum, og þingið leyst upp. Í lok ársins, taka Bandaríki
Norður Ameríku USA. Við stjórn Íslands í umboði Alþjóðabankans. Obama forseti
USA, er á þessum tíma kominn á kjörtímabil nr. 2. Það gekk vel að komast út ur
kreppunni í USA. Staða Íslands undir stjórn USA, verður svipuð og staða Puerto
Rico. Sem sagt öll stjórn frá Whasington, en bæjar og sveitarstjórnum verður
leyft að starfa, undir ströngu eftirliti.
Á þessum tíma er íbúafjöldi Reykjavíkur um 50.000, og alls landsins um 200.000 í stað 320.000, árið 2008.
Þriðjungur þjóðarinnar er fluttur úr landi.
Mín orð eru einföld, stöndum saman og komum í veg fyrir það að íhaldið og framsókn komist saman í ríkisstjórn.
Góðar stundir.
Birkir Jón sigurvegari | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
sun. 15.3.2009
Er eitthvað annað í stöðunni?
Sumir skilja ekki sinn vitjunnartíma, sjá hér.
Góðar stundir.
Mikilsverð stuðningsyfirlýsing | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 15.3.2009
Hækja kvótagreifanna og maðurinn sem sagðist ekki snerta
pólitík með tveggja metra löngu priki Tryggvi Þór Herbersson sem einnig er ein af birtingamyndum hruns íslenska efnahagskerfisins leiða lista íhaldsins í Norðausturkjördæmi.
Þessu er í sjálfum sér hægt að fagna ógurlega, ef einhver snefill af sjálfsvirðingu og skynsemi er eftir í Íslendingum þá ætti fylgið að hristast duglega af íhaldinu í komandi kosningum.
Krafa fólksins er endurnýjun, getum við kallað þetta endurnýjun?
Svona svarar íhaldið röddum fólksins.
Góðar stundir.
Kristján leiðir í NA-kjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 15.3.2009
Milljarða hagnaður HB Granda og himinháar arðgreiðslur
lau. 14.3.2009
Hvað með forstjórann
lau. 14.3.2009
Rauðnefur fluttur á sjúkrahús !!!
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
lau. 14.3.2009
Liverpool heldur áfram að snýta andstæðingum sínum
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 15:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
lau. 14.3.2009
Guðjón Arnar formaður í stórhættulegum flokki !!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
lau. 14.3.2009
Hjálpi okkur öll góð öfl
fös. 13.3.2009
Hræsni, ósvífni og algjört virðingaleysi
fös. 13.3.2009
Nafnið og lúkkið komið. (Mynd)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
fös. 13.3.2009
Kræst er verið að gera grín í augunum á mér?
mið. 11.3.2009