þri. 10.3.2009
Þetta er kallað að snýta andstæðingnum
Real Madrid leit út eins og pínulítill áhugamanna klúbbur í höndunum á ógnarsterku liði Liverpool í kvöld. Niðurlægir og vel snýttir halda niðurlútir Spánverjarnir heim og vilja sjálfsagt gleyma þessari viðureign við eitt besta fótboltalið allra tíma eins og skot.
Við skulum rétt vona að Liverpool spili svona á móti United um helgina þá þarf ekki að spyrja neins að leikslokum, bara fagna og njóta sigurvímunnar...
Þessi mynd er við hæfi með færslunni, það þarf væntanlega ekki að fræða ykkur neitt um þessa snillinga...
Góðar stundir.
Liverpool burstaði Real Madrid 4:0 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 9.3.2009
Þetta er ógeðslegt
aðgerðarleysi og furðu sætir að ekkert sé að gert þrátt fyrir að fjölmargt bendi til saknæms athæfis.
Góðar stundir.
Rökrétt að Jóhanna taki við | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 8.3.2009
Heimsmeistaramótið í hálfvitagangi er hafið (myndbönd)
Um titilinn keppa tveir sem eru af svipuðu kalíberi, það er þessi Siggi E. sem sér sérstaka þörf á því að senda frá sér þessa tilkynningu og svo aftur þessi froðusnakkari sem myndböndin eru af.
Svo heldur hann áfram.
Holdgerfingur hrokans gæti komið sterkur inn í úrslitakeppnina.
Góðar stundir.
Segir frétt um lán Kaupþings ranga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 8.3.2009
Og hvað er svona merkilegt við það?
Það er í raun furðulegt að hún skuli ekki vera hætt fyrir löngu sem lýsir dómgreindarskorti á frekar háu stigi. Þar sem það liggur óvenjulega vel á mér í dag þá virði ég það henni til vorkunnar að hún hefur ekki gengið heil til skógar að undaförnu.
Góðar stundir.
Ingibjörg Sólrún hættir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 8.3.2009
Nýtt andlit Katrínar
Spurning hvort innrætið hafi lagast með þessari dásamlegu endurnýjun.
Það er ekki langt síðan Katrín tók sig til og sólundaði nokkrum milljörðum af almannafé í eitt sorglegasta gæluverkefni seinni tíma sem ég vil kalla magnaðast listaspírurugl allra tíma, sem svo almenningur er beinlínis píndur til að taka þátt í.
Sumir vilja kalla þetta menningarhús í hjarta Reykjavíkur, sorrý en svoleiðis punt í tungumálinu er ekki í boði hjá síðuritara þegar kemur að léttu hjali um þetta mál.
Á sama tíma er verðið að bera gamla fólkið okkar nauðugt út af stofnunum og stafla þeim í geymslur vítt og breitt um landið, niðurskurður og lokanir í heilbrigðisgeiranum er nauðsynlegur að mati stjórnvalda, á meðan hefur þetta menningarhúsabrjálæði forgang, er forgangsröðunin ekki aðeins á villigötum?
Góðar stundir.
Sterkur endurnýjaður hópur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 8.3.2009
Við skulum vona að þeim verði ekki kalt
Hugljómun Björgvins ríður ekki við einteyming í vitleysunni, nú skal halað inn atkvæðum með bryggjurölti og bölsóttast út í kvótakerfið og hverslags ranglæti það er og hefur verið frá upphafi.
Björgvin G. Sigurðsson, þingmaður Samfylkingarinnar, átti í gær fund í Sandgerði með Ásmundi Jóhannssyni, sjósóknara, um kvótakerfið. Fóru þeir að lokum um borð í frægan bát Ásmundar sem nú er innsiglaður af yfirvöldum vegna sjósóknar Ásmundar utan kvóta.
"Fundurinn var mjög góður. Ég tel að eitt stærsta verkefni næstu ríkisstjórnar sé að vinda ofan af kvótakerfinu. Nú er til þess einstakt tækifæri. Við þurfum að festa eignahald þjóðarinnar á auðlindum í stjórnarskrá og innkalla gjafakvótann.
Málið snýst um mannréttindi og Ásmundur rakti með sannfærandi hætti á fundi okkar hvernig kvótakerfið er í upphafi byggt á lögleysu og mismunun.
Framsalið og leigan á kvótanum er eitt mesta ranglæti Íslandssögunnar. Við jafnaðarmenn verðum að standa okkur í þessu réttlætismáli og breyta þessu kerfi," segir Björgvin eftir fundinn með Ásmundi í Sandgerði í gær, já innköllum gjafakvótann...
Næstur til að stíga á stall er svo presturinn og manngæðingurinn Kalli Matt, standandi upp á fiskikörum vítt og breytt um Norðvesturkjördæmi horfandi dreymandi augum til hafs og blessa lýðinn með þeim orðum að eina vonin sé að byggðirnar fái notið auðlindanna sem eru við bæjardyrnar, með öðrum orðum innkalla gjafakvótann.
Í Norðausturkjördæmi er stórskáldið og sjónvarpsstjarnan Sigmundur Ernir eina von kjördæmisins um að krefjast þess að kvótinn verði innkallaður, spurning hvort hann notar sömu tækni og Kalli Matt. Það er að segja leggi líf og limi í stórhættu með karakröngli og þrumi nokkrar frumsamdar vísur yfir lýðinn um mikilvægi þess að kvótinn skuli innkallaður byggðunum til heilla.
Ekki er nokkur hætta á því að Siglufjarðarundri komi nálægt umræðunni um slor og salt, nei með verkamannahjálm á hausnum og einkadræver geysist Siglufjarðarundri um kjördæmið með eldgamlan boðskap um mikilvægi gjaldfrjálsra jarðgangna og útreikninga um svívirðilega oftöku ríkisins á olíu og bensíni í formi olíugjalds. Ég set reyndar spurningarmerki við þennan lið um oftöku ríkisins á orkugjöfunum, þetta hefur einfaldlega legið í höndunum á honum sjálfum að leiðrétta og svo merkilega sem það kann að hljóma þá hefur ekkert verið gert í þeim efnum.
Pjakkurinn frá Siglufirði er um margt hreint ólíkindatól, Vaðlaheiðargöng er farið að hljóma eins og enginn sér morgundagurinn og fortíðinni hafi verið eytt með einu pennastriki. Nú skal grafið til austurs úr Eyjafirði sem aldrei fyrr og aldeilis óvíst hvar stoppað verður að grafa, af nógu er að taka austan Eyjafjarðar um það geta flestir verið sammála.
Við skulum vona að þeim verði ekki kalt á þessu brölti sínu, í hreinskilni sagt þá væri mér svo nákvæmlega sama þótt þeir myndu þjáðst af naglakuli í smá tíma...
Eina sem ég get sagt þegar þessi veruleiki blasir við okkur, um mig fer kjánahrollur.
Góðar stundir.
Næsta skref að flytja norður | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
lau. 7.3.2009
Íslendingar eru fífl
Það mætti líkja þessu við lúbarða kerlingu, hún sækist stöðugt eftir meiri barsmíðum með því að búa áfram með aumingjanum sem lemur hana. Ég sem hélt að krafan væri um endurnýjun og þeir sem sátu við stjórn öxluðu ábyrg og hættu. Nú eða ef þeir hættu ekki sjálfviljugir þá tækju kjósendur til sinna ráða og veittu þeim ekki brautargengi.
Þið bara fyrirgefið mér, samfylkingarfólk er greinilega ekki á vetur setjandi og þið eruð öðrum samborgurum ykkar til skammar.
Góðar stundir.
Afsögnin skipti miklu máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 6.3.2009
Og hvað svo?
Hvenær verða þessir fjárglæframenn dregnir í yfirheyrslu?
Góðar stundir.
Lánuðu sjálfum sér milljarða | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 6.3.2009
Sjávarplássin krefjist réttar síns
og fá að gera það sem þau gerðu (veiða og vinna fisk) áður en stjórnlaus staurblind öfgafrjálshyggja tók völdin í landinu og steikti nánast í heild sinni hvert sjávarplássið á eftir öðru með því að ræna þau lífsviðurværi sínu. Með öðrum orðum rændu samborgara sína réttinum til að stunda fiskveiðar.
Svo mikill var ákafinn, blindnin og afneitunin í útrýmingarstefnu öfgafrjálshyggjunnar að hún endað með hruni heillar þjóðar, þjóðar sem nú berst í bökkum við að forða sér frá þjóðargjaldþroti og algerri niðurlægingu gagnvart alþjóðasamfélaginu.
Góðar stundir.
Vilja fiskinn heim | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvótakerfið er kostnaðarsamt mannréttindabrot. Landsbyggðin er meira og minna flakandi sár, rústir sem og hreppaflutningar á fólki er ein afleiðan af herlegheitunum.
Skuldir sjávarútvegsins eru margfaldar miðað við ársframleiðslu er önnur afleiða af herlegheitunum.
Svo fara nokkrar millur í að verja herlegheitin, sem að vísu stjórnvöld töpuðu enda hefði það verið með einkennilegri uppákomum aldarinnar ef stjórnvöld hefðu unnið málið.
Hér fyrir neðan er smá samantekt á kostnaði stjórnvalda við að verja mannréttindabrot á sjómönnum og beita þegna sjávarplássanna ofbeldisfullum aðgerðum sem svo aftur leiðir þegnana nauðuga í hreppaflutninga þar sem heimabyggðir þeirra hafa verið steiktar nánast í heild sinn með aðstoð besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi.
Lesningin hér fyrir neðan er tekin á dv.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið greiddi lögfræðingum 21,6 milljón króna í tíð síðustu ríkisstjórnar. Lögfræðingarnir sinntu meðal annars undirbúningi svara til mannréttindadómstólsins í Strasbourg og Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna.
Mannréttindanefndin komst að þeirri niðurstöðu að kvótakerfið væri brot á mannréttindum og lofaði Einar K. Guðfinnsson að bregðast við því. Kvótakerfið er hins vegar enn óbreytt.
Sundurliðaður kostnaður er sem hér segir:
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneyti, aðalskrifstofa og ýmis verkefni
Lögfræðingar
Undirbúningur svara til Mannréttindadómstólsins í Strassborg og Mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna. Vinna við frumvörp um stjórn fiskveiða, búfjárlög, matvælalög og önnur verkefni
Kr. 21.618.699
Viðskipta- og hagfræðingar, lögg. endurskoðendur, tölfræðingar.
Vinna við útreikninga vegna verðlagsmála landbúnaðarins, vigtunar sjávarafla og önnur smærri verkefni
Kr. 2.196.778
Þýðendur
Þýðingar á lögum, frumvörpum, ræðum og ýmsum skýrslum
Kr. 1.946.393
Önnur sérfræðiþjónusta
Skýrslur um fiskeldi, umsjón með fisheries.is og önnur verkefni
Kr. 2.239.508
Samtals kr. 28.001.378
Góðar stundir.
Hrunin frjálshyggjutilraun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fim. 5.3.2009
Eru menn loksins að vakna?
mið. 4.3.2009
Þeir sjá vel um sína
mið. 4.3.2009
Algjör tilviljun og ómeðvitað, ég gæti ælt
þri. 3.3.2009
Skyldusigur Liverpool á Sunderland
þri. 3.3.2009
Þvílíkur hálfvitagangur !!!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
þri. 3.3.2009
Var gasið svona dýrt?
mán. 2.3.2009
Hetjur hafsins og stríðsmenn þjóðarinnar
sun. 1.3.2009
Síhaldsfylkingarflokkurinn ber enga ábyrgð á neinu.
sun. 1.3.2009
Vitrænn hópur sem treystandi er fyrir fjármunum !!!
lau. 28.2.2009
En er til lækning við þessum kvilla?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)