Þetta er kallað að snýta andstæðingnum

go_in_760661.jpgReal Madrid leit út eins og pínulítill áhugamanna klúbbur í höndunum á ógnarsterku liði Liverpool í kvöld. Niðurlægir og vel snýttir halda niðurlútir Spánverjarnir heim og vilja sjálfsagt gleyma þessari viðureign við eitt besta fótboltalið allra tíma eins og skot.

Við skulum rétt vona að Liverpool spili svona á móti United um helgina þá þarf ekki að spyrja neins að leikslokum, bara fagna og njóta sigurvímunnar...Cool

Þessi mynd er við hæfi með færslunni, það þarf væntanlega ekki að fræða ykkur neitt um þessa snillinga...Whistling

Góðar stundir.

 


mbl.is Liverpool burstaði Real Madrid 4:0
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Páll Geir Bjarnason

þetta var æði

Páll Geir Bjarnason, 10.3.2009 kl. 22:30

2 Smámynd: Jóhannes Guðnason

Þetta var meiri háttar leikur,frábær,skemmtilegt,en nú er að duga eða drepast,Liverpool verður að koma sér niður á jörðina fyrir laugadaginn,þá reynir á þá,við verðum að VINNA þann leik,svo deildinn verði skemmtileg áfram.Skál í botn.

Jóhannes Guðnason, 10.3.2009 kl. 22:35

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Þið verðið nú að spila betur en þetta til að eiga séns í United.  Til hamingju með sigurinn.

Víðir Benediktsson, 11.3.2009 kl. 05:09

4 Smámynd: Sverrir Einarsson

Ég er hættur að horfa á Liverpool leiki í bili.................alltaf þegar ég horfi á Liverpool spila þá tapa þeir en þá leiki sem ég get ekki horft á vinna þeir þannig að ég er bara hættur að horfa á framyfir endursýningu hehe.

Svo er bara að geta strítt vinnufélögunum sem eru UTD fan (forstjórinn og yfirverkstjórinn) eða Arsenal aðdáendunum (vinnufélagar og verkstjóri).............og brosað breitt framyfir helgi.

Eigið svo ánægjulegar Liverpool stundir............Já og Hallgrímur enga kristalkúlu eða lambagarnaspár fyrir leikinn um helgina.

Sverrir Einarsson, 11.3.2009 kl. 09:00

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Til hamingju með ykkar menn púllarar.

Halli! Af hverjum er þessi mynd þadna, eru þetta einhverjir Danskir leikarar að auglýsa bjór? Spyr sá sem ekki veit.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 11.3.2009 kl. 12:39

6 Smámynd: Þórarinn M Friðgeirsson

Nú get ég loksins fest orð á blað eftir gærkvöldið. Ég veit að mótstaðan á Laugardaginn verður önnur en sú sem sást í gær og það er klárt að við förum ekki með fjögur mörk í plús af leikvangi martraðanna en mikið væri nú gaman að taka aðeins á þessum barbídúkkum frá Manshit. Ég mæli eindregið með því að Sverrir horfi ekki á þennan leik. Nú er bara að setjast í góðan stól í kveld og horfa á verðandi stjóra Lifrapúlara Móra Mallakút taka á Rauðnefi og Rónvaldi ??? en maður spyr sig. Kv. Tótinn

Þórarinn M Friðgeirsson, 11.3.2009 kl. 16:07

7 Smámynd: Víðir Benediktsson

Högni, eru þetta ekki sömu Danirnir og þeir sem auglýstu Thule bjórinnum árið? Sýnist það.

Víðir Benediktsson, 11.3.2009 kl. 19:55

8 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Sýnist það, einhverstaðar hef ég séð þá allavega áður - finnst mér.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 11.3.2009 kl. 21:44

9 Smámynd: Sverrir Einarsson

Nei nú er ég hættu við að heimsækja Agureyris um páskana. Allt honum Högna (hrekkvísa) að kenna.
Svo sýnist mér eins og að Hallgrímur hafi verið látinn bíta í sápustykki (alveg hættur að tala Íslensku) Var hann nokkuð á Ástjörn hjá Boga í den? En ég á mörg tannaför í handsápunum þar síðan ég var þar, en það er önnur saga.

Sverrir Einarsson, 12.3.2009 kl. 10:21

10 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Högni Jóhann Sigurjónsson, 12.3.2009 kl. 19:13

11 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Þið eruð ágætir, bjórauglýsing og handónýtir leikarar....

Sverrir það hefur enginn lagt í þá stórhættulegu vegferð að skola á mér þverrifuna, Lux handsápa gerir nákvæmlega ekkert gagn enda er síðuritari með magnaðri orð og sóðakjöftum á meðal góðum degi....

Hallgrímur Guðmundsson, 12.3.2009 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband