lau. 9.5.2009
COMMON PEOPLE
er búið að slökkva á skemmtaranum í ykkur?
Smá grín með pínulítinn platbangsa og samfélagið er komið á hvolf.
Common get a live og lifið því brosandi.
Góðar stundir
Ísbjörninn blekking | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 9.5.2009
Stórkostulegasta lið allra tíma
var ekki lengi að klára verkefnið en sýndi samt mótherjum sínum bæði vorkunn og virðingu í dag. Þrjú mörk alveg hæfilegur skammtur og mótherjarnir ekki niðurlægðir meira en góðu hófi gegnir.
Fyrir ykkur kæru vinir og aðdáendur þessara síðu þá er þetta einstaka lag í boði síðuritara FOR NOTHING.... Þetta er náttúrulega einstakt og á sér enga hliðstæðu...
Góðar stundir.Liverpool í toppsætið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 9.5.2009
Hatrömm barátta gegn eðlilegri atvinnu uppbyggingu
og sjálfsögðum mannréttindum Er hægt að kalla svona yfirlýsingar eitthvað annað?
Hvert sveitarfélagið á eftir öðru lepur nú upp kasúldna þvælu Líú um að mannréttindabrot séu jafn sjálfsögð og móður finnst að gefa barni sínu af brjósti.
Á einhvern áskiljanlegan hátt þá taka bæjar og sveitastjórnir landsins þátt í Þöggun sem er í boði Líú og stjórnvalda um úrskurð mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna.
Eins og allir muna var kveðinn upp áfellisdómur um kvótakerfið og þau mannréttindabrot sem innbyggt er í eitt magnaðasta spillingarkerfi veraldar.
Svínaríið skal verja með öllum ráðum, hvenær fær fólk nóg ég bara spyr?
Góðar stundir.
Bæjarráð Hornafjarðar varar við fyrningarleið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 9.5.2009
Keyptu hangikjöt og með því fyrir 50 milljónir
sjá hér. Var einhver að tala um að það væri gott að búa í Kópavogi?
Ef hangikjötið er svona dýrt í Kópavogi, þá er fjandakornið lítið varið í pleysið...
Góðar stundir.
Ekki í þágu íslenskra hagsmuna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 8.5.2009
Vinstristjórnar viðvörunarhvellur
Sjálfsumglaður og stútfullur af hroka sat sjónvarpsstjóri ÍNN í þætti sínum Hrafnaþing sem sendur var út í kvöld og ropaði þessum orðum út úr sér, vinstristjórnar viðvörunarhvellur.
Að sjálfsögðu var hann að djöflast á þeim sem eru að taka við brunarústum Íhaldsins, hvað annað?
Væri einhver til í að hnippa í kallinn og segja honum að hans hægri hönd (Íhaldið) beri ábyrgð á því hvernig farið var að því að gera heila þjóð nánast ef ekki alveg gjaldþrota. Hann virðist ekki vera alveg með þetta á hreinu karlanginn.
Að vísu fékk hægri hönd sjónvarpstjórans (Íhaldið) dygga aðstoð frá framsókn, það leysir þó aldrei Íhaldið frá ábyrgð sinni.
Eru Bótoxheilkennin í alvörunni svona útbreidd? Sjá hér.
Í alvörunni, hvað kom fyrir þetta fólk eru þeir sem ábyrgðina bera með tæplega 1/4 af gullfiskaminni ég bara spyr?
Góðar stundir.
Búið að opna Holtavörðuheiði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fös. 8.5.2009
Gömul rulla úr ýldukjöftum
Af hverju er sjávarútvegurinn meira og minna á hnjánum?
Hvernig væri að ýldukjaftarnir svari því svona til að byrja með?
Ef ég hef fylgst rétt með þá komu Þeir sjálfum sér á skeljarnar án aðstoðar.
Ég veit ekki af hverju, en nú dettur mér til hugar bara svona í tilefni dagsins, BOTOXHEILAR.
Góðar stundir.
Mun setja bankana aftur í þrot | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 3.5.2009
Heiðaleg vinnubrögð
Þessu starfsfólki var þó sagt upp af stjórnendum fyrirtækisins á eðlilegan hátt. Fólkið vissi líka að barist hafði verið við að halda starfseminni áfram frá síðustu áramótum.
Það er langur vegur frá því að allir vinnuveitendur komi svona fram við starfsfólk sitt. Tveimur dögum fyrir síðustu mánaðamót fékk konan sem ég þekki þó nokkuð vel símhringingu frá vinnuveitenda sínum og henni sagt að rekstrinum verði hætt eftir tvo tíma og hún þurfi ekki að mæta daginn eftir.
Kveðjuorð og þakkir vinnuveitandans voru einföld. Þú getur svo hypjað þig til þíns stéttarfélags og ábyrgðarsjóð launa og fengið launin þín þar, vertu blessuð. Flott framkoma tveimur dögum áður en borga átti út laun. Það er margt annað sem hvarf, þriggja mánaða uppsagnafrestur, launað sumarfrí og orlofsuppbót sem dæmi.
Ábyrgðarsjóður launa borgar ekki krónu ef fyrirtæki er ekki lýst gjaldþrota, og af hverju segi ég þetta? Jú vinnuveitandinn hefur ekki lýst fyrirtækið gjaldþrota og það stendur hreint ekki til af hans hálfu. Starfsfólkið var látið vinna nánast allan mánuðinn út og síðan skellt í lás game over og málið dautt. Borga þarf 200 þúsund kall ef fara á fram á gjaldþrot og það eiga ekki allir þann slatta í afgang í lok mánaðar.
Tveimur mánuðum fyrir lokun var skipt um nafn á félaginu sem rak starfsemina og einni einingu kippt út úr pakkanum og seldur dóttur eigandans að nafninu til, þannig var hægt að halda nafninu á herlegheitunum og hinum sjö tuskubúðunum lokað.
Starfsfólkinu sturtað í ruslið, eigendurnir koma svo og tæma tuskubúðirnar sem þeir ráku enda hreint ekki gjaldþrota á pappírunum. Þessar tuskubúðir eru fullar af fötum og á lagerunum er lítið pláss enda allt fullt af fötum. Á fagmáli heitir þetta ekki rán enda ekkert gjaldþrot á ferðinni, samt var staffinu sturtað í ruslið og eigendurnir bera höfuðið hátt enda að þeirra mati nákvæmlega ekkert athugavert við þetta.
Næsta blað af Séð og Heyrt fjallar væntanlega um dugnað, ríkidæmi, glæsihús og flotta bíla eigenda af herlegheitunum sem starfrækir eina tuskubúð á höfuðborgarsvæðinu undir sama nafni og hinar sjö báru. Þetta blað hefur ekki slegið slöku við að upphefja harðduglega og strangheiðarlega eigendur af herlegheitunum.
Í þessum hópi sem sturtað var í ruslið er til dæmis einstæð móðir sem veit ekkert hvernig hún fer að því að sjá sér og börnum sínum fyrir nauðþurftum, það eru sjálfsagt fleiri sem þetta kemur hroðalega við, konan sem ég þekki og lenti í þessari sturtu situr niðurbrotin með handónýtar áætlanir í höndunum.
Þeir sem lenda í svona skítlegum vinnubrögðum fá engan skilning hjá lánastofnunum, þeir heimta sitt og ekkert helvítis röfl. Svínin sem sáu á einhvern óskiljanlegan hátt ástæðu til að meðhöndla starfsfólk sitt svona röltir roggið með sitt þýfi og telur sig yfir allt og alla hafna. Þar skjátlaðist einhverjum hrapalega trúi ég.
Góðar stundir.
Öllum starfsmönnum sagt upp | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 3.5.2009
Unaðslegur sæluhrollur hríslast um líkamann
þegar maður hlustar á þessa dásemd...
Góðar stundir.
Liverpool fór létt með Newcastle | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
lau. 2.5.2009
Farðúr bænum Friðrik
Ábyrga umgengni um auðlindina, áttu annan betri. Gerðu okkur greiða Friðrik J, taktu stóran svartan ruslapoka röflaðu í hann hnýttu svo fyrir og hentu honum á haugana.
Mengaður boðskapur þinn á best heima þar.
Góðar stundir.
fös. 1.5.2009
Með völdin í klofinu
Hvaða rugl er þetta, hafa þessar konur ekki enn áttað sig á því að það má blása upp eitt stykki dúkku sem er ekkert að velta pólitískum ágreiningi fyrir sér. Auðveldari leið er einfaldlega múffa sem hefur nákvæmlega enga pólitíska skoðun.
Með einni pumpu, dúkku eða múffu má blása völdin og vopnin út í buskann og eftir hanga kynferðislega sveltar og hundpirraðar kerlur.
Þetta er með því magnaðra sem ég lesið, mannkynið kemur stöðugt á óvart...
Góðar stundir.
Konur í Kenýa hóta kynlífsverkfalli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 1.5.2009
Brotið á félagafrelsi einstaklinga
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 30.4.2009
Það þurfa allir sitt
mán. 27.4.2009
Og hvað?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
sun. 26.4.2009
Argasti dónaskapur er þetta
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 26.4.2009
Það er líf eftir kosningar
mið. 22.4.2009
Meðvirkir í ruglinu klappandi
fim. 16.4.2009
Við skulum endilega byggja
þri. 14.4.2009
Þetta var svona fullorðins
mán. 13.4.2009
Viðskiptavild = (ENRON)
sun. 12.4.2009