Færsluflokkur: Enski boltinn
lau. 13.9.2008
Hafi það einhvern tímann verið sætt að vinna United
þá var það núna, Við félagarnir, ég á við þennan hér sátum eins og saklausir smástrákar í sunnudagaskóla í öllum hávaðanum sem var í biluðum aðdáendum beggja liða sem troðfylltu Allann og drukkum kaffi yfir dýrðinni á skjánum, það var ekki til Egils Appelsín þarna...
Doddi dýrðardindill komst ekki vegna vinnu en hann kemur bara næst strákurinn. Það þarf ekkert að fjölyrða neitt um leikinn, jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Liverpool var síðan betra liðið í þeim seinni og vann verðskuldaðan sigur.
Þessi gaur hafði fulla ástæðu til að halda um hausinn.
Ekki veit ég hvað gerðist með myndavélina en allar myndirnar sem ég tók meðan á leiknum stóð mistókust...
Kveðjuorðin voru einföld hjá félaga Víðir "ég horfi aldrei á fleiri leiki með þér"
ekki vissi ég að ég væri svona djöfull leiðinlegur en þetta flokkast undir persónulegt met hjá mér, að það taki ekki nema einn fótboltaleik og nokkur einföld sárasaklaus fögn að koma sér í ónáð....
Hann jafnar sig í vikulokin strákurinn trúi ég.
Góðar stundir.
![]() |
Babel tryggði Liverpool langþráðan sigur á Manchester United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 21:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
fös. 12.9.2008
Gerrard og Torres komnir í gírinn
og svo er aldrei að vita nema Pepe Reina laumi inn einu svona marki á meðan Hollenski sláninn í marki United stendur eins og steinrunninn uppvakningur og lætur sig dreyma um að þeir eignist einhvern tímann svona frábæra stuðningsmenn.
Góðar stundir.
![]() |
Torres og Gerrard klárir í slaginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
fös. 12.9.2008
Vonandi, það er ekki spurning
að þessi leikur verður hörku barátta tveggja frábærra liða frá upphafi til enda. Ég bind miklar vonir við að heilladísirnar séu mættar á Anfield og við löndum sigri á United. Mín spá er 2-1 eftir æsispennandi lokamínútur og tvö rauð spjöld fari á loft, eitt á hvort lið.
Svo skemmir það ekki fyrir að ég og Víðir bloggvinur ætlum að heiðra alla viðstadda á veitingastaðnum Allinn með nærveru okkar, ég skora á Dodda að mæta líka. Það verður stuð á strákunum og myndavélin verður höfð með og bestu augnablikin nást vonandi á mynd...
Góðar stundir.
![]() |
Carragher: Náum vonandi þremur stigum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 11.9.2008
Verðum vonandi metnir í sama gæðaflokki og Liverpool
einhvern tímann í framtíðinni. Þetta sagði Alex Ferguson á blaðamannafundi, ekki kemur það mér svo sem á óvart að Ferguson vonist eftir því að ná þessum árangri...
En hverjar eru líkurnar á því að þessi ósk Ferguson verði að veruleika? Mér er til efa að halda því fram að það gerist meðan hann heldur um stjórnartaumana hjá UTD ef þá það gerist nokkurn tímann, sennilega og mjög líklega verður þetta bara draumur sem aldrei rætist...
Og þið þarna UTD gapuxar og stórstrigakjaftar sparið stóru orðin, á þessari síðu er vandlega farið með og mikil virðing borin fyrir Íslensku tungumáli, sem og gagnkvæm virðing og almenn kurteisi í hávegum höfð...
Góðar stundir.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 13:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
mið. 10.9.2008
Liverpool og Chelsea eru afrekslið í heimsklassa
Ef við lesum fréttina þá segir að viðureign Liverpool og United sé stórleikur 3. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Þá eru sem fyrr segir Liverpool og Chelsea hreint út sagt frábær lið með einstaka hæfileika. 7 stig á hvort lið úr tveimur fyrstu umferðunum er heimsmet sem verður aldrei slegið.
Ég gæti vel skilið að Liverpool fengi aukastig fyrir einstaklega fallegan og faglega spilaðan fótbolta, en fyrir hvað Chelsea fékk sitt aukastig veldur mér þó nokkrum heilabrotum... Spilling er það eina sem mér dettur í hug....
Djö.......Það er engu hægt að treysta lengur....
Nú ligg ég á bæn og vona svo sannarlega að Gerrard og Torres verði klárir fyrir leikinn...
Góðar stundir.
![]() |
Benítez heldur í von um að Gerrard og Torres verði með gegn United |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 9.9.2008
Ég er ekki sáttur við þessa þjófa
Hvers vegna í helvítinu gátu þeir ekki rænt Keane í leiðinni??
Góðar stundir.
![]() |
Keane fyrir barðinu á innbrotsþjófum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 8.9.2008
Er Finnska varnartröllið komið út
í kuldann hjá Benítez? Frekar eru þetta kaldar kveðjur frá Benítez,
Hyypia er búinn að vera einn af bestu varnarmönnum Liverpool frá upphafi og lagt sig 120% fram fyrir félagið. Mér hefur alltaf fundist Hyypia vera sá maður sem kom og fyllti í skarðið sem Alan Hansen skildi eftir þegar hann hætti hjá Liverpool á sínum tíma.
Ég verð að vera algjörlega hreinskilinn, mér er alveg hætt að lítast á aðferðir Benítez. Nú er bara að vona það að Benítez viti hvað hann er að gera.
Og ekki lítur það björgulega út Gerrard og Torres verða ekki með á móti United á laugardaginn sjá hér. Djö.... helvítis rússíbanaferðin byrjar snemma þetta árið...
Góðar stundir.
![]() |
Hyypia ekki í Meistaradeildarhópnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 5.9.2008
Er Alex Ferguson að hætta hjá UTD ?
Ef Ferguson hefur engar áhyggjur þá er ekkert annað hægt að
lesa út úr þessu orðum en að karlinn sé að hætta. Ekki nema þá að ellihrum sé farið að hrjá kappann og hann sé ekki alveg í eðlilegu jarðsambandi Ég varð að láta þessa mynd til hægri fylgja með.
Sá gamli á góðri stundu.
Góðar stundir.
![]() |
Ferguson hefur engar áhyggjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 20:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 5.9.2008
Eru dagar Benítez taldir hjá Liverpool?
Svona yfirlýsing getur ekki verið annað algjör uppgjöf og ekki yrði ég hissa ef karlinn yrði látinn taka pokann sinn.
Uppgjöf eftir aðeins þrjá leiki er aðeins fyrr en ég reiknaði með, ég átti von á því að það yrði líf í karlinum fram yfir áramót.
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool á litla möguleika |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 4.9.2008
Ég er farinn að fylgjast með Færeyska boltanum.
Mín skoðun er einfaldlega sú að það er endanlega verið að rústa Enska boltanum. Þetta er ekki lengur farið að snúast um fótbolta, einhverjir andskotans olíufurstar frá Rússlandi og Arabíu eitthvað eru farnir að leika sér með þetta eins og smástrákar í tindátaleik.
Nei nú fer ég að fylgjast með vinum og frændum okkar í Færeyjum það er örugglega skemmtilegra en þessi andskotans vitleysa.
Nú verður EB/Streymur mitt lið og mun ég færa reglulega fréttir af gangi mála hjá mínum mönnum, hér er hlekkur á heimasíðu minna manna.
Unnið verður að stórkostulegum breytingum á þessari síðu næstu daga.
Góðar stundir.
![]() |
Fleiri stjörnur orðaðar við City |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)