Færsluflokkur: Enski boltinn
þri. 2.9.2008
Nú fer um einhverja UTD aðdáendur
Þetta væri það hroðalegasta sem fyrir UTD aðdáendur gæti komið. Ronaldo Man City getur það orðið öllu verra?
Góðar stundir.
![]() |
Ætlar að fá Ronaldo til Man.City og skáka öllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 1.9.2008
Það verður fróðlegt
að sjá hvernig Riera passar inn í lið Liverpool. Ég veit akkúrat ekkert um þennan gaur en vona svo sannarlega að hann eigi eftir að gera góða hluti með liðinu.
Ég sé helvítis helling eftir Finnan og mér finnst ótrúlegt að það skyldi ekki hafa verið not fyrir hann lengur.
Góðar stundir.
![]() |
Riera genginn í raðir Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 1.9.2008
Þetta var drepfyndið
Ég Gúgglaði nafnið á gaurnum og ætlaði að fræðast svolítið um kvikindið. Ein af fyrstu myndunum sem komu upp var af þessu hér. Ég vissi það svo sem að það væri hálfgert hallæri á góðum mönnum á sæmilegu verði, en þessi slær öll fyrri met...
Og hvaða hlutverki hann á að gegna hef ég ekki grun um, en ég leyfi ykkur að koma með tillögur um það.....
Góðar stundir.
![]() |
Ungur Brasilíumaður til Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 31.8.2008
Steindautt jafntefli
og eitthvað verður það langsótt að halda sér í hópi þeirra bestu ef framhaldið verður svona. Hvernig þeir á mbl.is teiknuðu fram þessi tvö mörk er svo annar kapítuli sem þeir verða sjálfsagt ekki í vandræðum með að útskýra. Við Liverpool gæðingar skulum hins vegar rétt vona að meiðsli Torres séu ekki alvarleg. Það er eiginlega alveg nóg að Gerrard sé á sjúkralistanum. Nema Benítez hafi einhver tromp í pokahorninu, sem ég efast reyndar um.
Góðar stundir.
![]() |
Aston Villa og Liverpool skildu jöfn á Villa Park - Torres meiddist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 17:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
fös. 29.8.2008
Þar flaug fyrsta dollan
og vonandi ekki sú síðasta sem UTD gloprar frá sér. Ef UTD spilar eins og þeir gerðu í þessum leik á móti mínum mönnum þá hef ég akkúrat engar áhyggjur af úrslitunum, það verða auðfengin 3 stig. En ég verð samt að lýsa yfir furðu minni á algjöru getuleysi UTD í leiknum, þeir eru ekki vanir því að leika svona illa og satt best að segja hef ég aldrei séð þá svona slaka... En þetta hlýtur að koma allt saman, eftir áramót....
Elskið friðinn.
Góðar stundir.
![]() |
Zenit vann Stórbikar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 28.8.2008
Þetta gæti orðið svolítið
snúið. Ef okkar menn fara ekki að vakna til lífsins og spila af fullri getu þá lýkur þeirra þátttöku í meistaradeildinni eftir þessa leiki.
D-riðill
Liverpool (England)
PSV Eindhoven (Holland)
Marseille (Frakkland)
Atlético Madríd (Spánn)
Góðar stundir.
![]() |
Riðlar Meistaradeildarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 27.8.2008
Erfið fæðing á Anfield
Ekki veit ég hvað er að hrjá mannskapinn en þetta var sannarlega erfið fæðing hjá mínum mönnum. Reyndar sá ég bara framlenginguna og þótti nóg um. Mér dettur einna helst í hug að leikmenn Liverpool séu hreinlega ekki búnir að átta sig á því að sumarfríið er búið. Það er ekki við góðu að búast ef framhaldið verður svona...
En sigur marðist og ég nýt augnabliksins og fagna ógurlega...
Góðar stundir.
![]() |
Kuyt bjargaði Liverpool á örlagastundu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 25.8.2008
UTD komið á mígandi siglingu
og raðar inn mörkunum sem aldrei fyrr. Darren Fletcher er langmarkahæstur þeirra UTD manna og hefur skorað öll mörkin á tímabilinu...
Ég óska UTD aðdáendum til hamingju með daginn....
Góðar stundir.
![]() |
Fletcher tryggði United sigur á Fratton Park |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 23.8.2008
Rauður dagur í dag.
Hvað er hægt að hafa þetta betra? Liverpool vann, ókey, ókey ég veit það það var heppnisstimpill yfir jöfnunarmarkinu sem jafnast svo út með frábæru sigurmarki Gerrard. En djöfull var þetta erfið fæðing ég var eiginlega búinn að afskrifa þetta en svona er boltinn, fúll of sörpræses.....
Nú svo er Massa á ráspól í formúlunni, (rauður að sjálfsögðu) síðan verður þrennan fullkomnuð í fyrramálið, handboltastrákarnir spila í rauðu, ég tek það fram ég er enginn helvítis kommi, rautt er einfaldlega fallegur litur.
Góðar stundir.
![]() |
Gerrard tryggði Liverpool sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 17.8.2008
Deildinni rúllað upp á 350 km hraða !!!!
Eftir fyrsta leikinn í deildinni á móti Sunderland, sem var í raun bara létt æfing þá verður rúllað yfir þetta á um það bil 350 km hraða, eða hefur einhver aðra skoðun á því?
Góðar stundir.
![]() |
Liverpool til liðs við fótboltaformúluna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |