Rauður dagur í dag.

gerrard_649024.jpgHvað er hægt að hafa þetta betra? Liverpool vann, ókey, ókey ég veit það það var heppnisstimpill yfir jöfnunarmarkinu sem jafnast svo út með frábæru sigurmarki Gerrard. En djöfull var þetta erfið fæðing ég var eiginlega búinn að afskrifa þetta en svona er boltinn, fúll of sörpræses.....Tounge

Nú svo er Massa á ráspól í formúlunni, (rauður að sjálfsögðu)massa_a_leita_649027.jpg síðan verður þrennan fullkomnuð í fyrramálið, handboltastrákarnir spila í rauðu, ég tek það fram ég er enginn helvítis kommi, rautt er einfaldlega fallegur litur.

Góðar stundir.


mbl.is Gerrard tryggði Liverpool sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Þór Guðjónsson

Smmála þér Hallgrímur .Ég vona líka að það verði algengara  að sjá stigatöfluna í ensk úrvaldeildini eins og í dag . Liverpool í 1sæti .Vona að Staðan verð svona í vor.

Ólafur Þór Guðjónsson, 23.8.2008 kl. 21:09

2 Smámynd: Víðir Benediktsson

Hver er þetta sem situr þarna og heldur um l..... á sér og auglýsir SHELL í þokkabót. Halli ertu ekki orðinn fullstór fyrir bílaleiki?

Víðir Benediktsson, 23.8.2008 kl. 21:15

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Auðvitað verður þetta svona í vor Ólafur, eða eru einhverjir með aðrar hugmyndir um það?

Jú ég er orðinn of stór fyrir bílaleiki, enda sjá aðrir um þá ég bara er áhorfandi sjáðu til... Myndin af kappanum er tekin eftir ævintýrið sem hann lenti í í Tyrklandi en eins og frægt varð þá villtist gaurinn og fann ekki mótsstaðinn...

Hallgrímur Guðmundsson, 23.8.2008 kl. 21:42

4 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Þetta er að koma hjá ykkur, til hamingju með þína menn og Massa er góður, mér sýnist að ef að 1. ökumaður fari nú ekki að sýna framfarir verði að finna nýjann bílstjóra á þann bíl.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 23.8.2008 kl. 22:10

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þessi smámælti Brassi er bara að klára hlutina, það er ekki öðruvísi en það. Raikkonen er alveg úti á túni, sumir þola ekki góða daga og mikla peninga.....kannski er hungrið farið?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 24.8.2008 kl. 20:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband