Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Auðvitað á að afskrifa skuldirnar komplett.

Við erum ekki að tala um nema nokkur hundruð milljarða. Það væri náttúrulega algjör hneisa ef skuldir sjávarútvegsins verði ekki afskrifaðar í heil sinni. Hvernig dettur einhverjum heilvita og sæmilega þenkjandi manni það í hug að þessar skuldir verði nokkurn tímann borgaðar?

Hvort við erum að tala um 500 eða 800 milljarða skiptir ekki nokkru máli, það er vonlaust að borga þessar skuldir. Heimsmarkaðsverð á fiski er fallandi og á eftir að falla meira en margan grunar sem aftur gerir skuldarstöðu sjávarútvegsins enn hroðalegri.

Við tökum þetta að sjálfsögðu á okkur í formi aukinna skatta sem er jú alveg eðlilegt enda eigum við ekkert betra skilið. Hverjum munar um að taka svona smotterí á sig í viðbót við öll hin ósköpin sem við þurfum að borga eftir þetta hyski?

Að sjálfsögðu halda handhafar kvótans honum enda væri annað brot á mannréttindum sægreifanna, ekki getum við til þess hugsað hvað þá heldur sofið rólega ef hlutunum yrði háttað á annan veg.

Við megum alls ekki undir neinum kringumstæðum vera vond við sægreifana, þeir eiga mjög bágt þessa dagana enda er það sjálfsagt okkur að kenna líka hvernig komið er fyrir þessu snilldarlega samspili græðgi og skammsýni þeirra sem fengu sameign þjóðarinnar upp í hendurnar og var treyst fyrir henni.

Í stuttu máli þá er það ósköp eðlilegt að þeir sem rændir voru lífsviðurværi sínu borgi svo smá slatta með henni svo vitleysan geti byrjar upp á nýtt frá grunni. Þannig geta allir tekið gleði sína á ný og spilað rúllettuna aftur sallarólegir næstu sex til tíu árin. Þá endurtökum við bara sömu rulluna og dellan heldur áfram.

Það eru mannréttindi sem henta öllum, sumum þó aðeins betur en öðrum en hver er að velta sér upp úr svoleiðis smáatriðum þegar heilsufar sægreifanna er að veði?

Góðar stundir.


mbl.is Kröfur verði felldar niður að hluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að segja eitthvað gáfulegt um þennan gaur?

Er það hægt eftir það sem hann gerði eða var það bara eðlilegt að setja á okkur hryðjuverkalög?

Ekki ætla ég að segja neitt um það hvað þá heldur reyna að segja eitthvað gáfulegt um þennan tjallatitt.

Nei þessa dagana er allt á fullu hjá mér í ákveðnu verkefni sem ég ætla að láta verða að veruleika. Er það ekki slagorðið í kreppunni, kreppan er tækifæri og tækifærin leynast víða?

Ég sá tækifæri og að því er unnið á fullu að gera það að veruleika, ég mun svo fræða ykkur um þetta þegar það er allt klappað og klárt. Sumir sem mig þekkja segja oft að ég sé ofvirkur, ég held að það sé nokkuð til í því sem er bara fínt ef það nýtist mér í því sem ég hef áhuga á og vil vinna við.

Á meðan, farið vel með ykkur og verið góð hvert við annað ég verð lítið á blogginu meðan ég rusla þessu verkefni í gegn.

Góðar stundir.


mbl.is Brown sækir í sig veðrið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kóngurinn yfir Íslandi

 

Góðar stundir.


Rotta í skjóli stjórnvalda og DV

Hvernig má það vera að DV tekur þátt í því að hylma yfir með þessum rottum sem gerðu þjóðina nánast gjaldþrota?

Reynir Trausta hvítþvær sig náttúrulega af þessu en hér fyrir neðan er fréttin sem mátti ekki koma fyrir sjónir almennings.

Greinin sem var stöðvuð

Sigurjón Þ. Árnason fyrrverandi bankastjóri Landsbankans kom sér fyrir á þriðju hæð í skrifstofuhúsnæði Landsbankans á Pósthússtræti fyrir nokkrum dögum. Þetta staðfestir hann við DV. Hann segist ekki vera að vinna fyrir bankann, heldur sjálfan sig. 
Aðspurður um það hvaða starfsemi fari fram á skrifstofunni segist hann vera að koma á fót litlu ráðgjafafyrirtæki. „Sko. Það sem ég er að reyna að sjá er hvort maður eigi möguleika á því að vinna ráðgjöf fyrir hina og þessa. Maður er að reyna að búa sér til vinnu,“ segir Sigurjón og bætir því við að hann vilji helst halda því fyrir sjálfan sig hvað hann ætli sér að gera með fyrirtækið.

Leigir af Landsbanka

Sigurjón leigir skrifstofuna af Landsbankanum. Hann segir þó að Landsbankinn hafi leigt húsnæðið af fyrirtæki sem eigi fasteignir út um alla borg. Hann segir skrifstofuhúsnæðið vera tómt og að verið sé að yfirgefa skrifstofur Landsbankans í húsnæðinu. „Þetta er allt meira og minna tómt núna,“ segir hann.
Blaðamaður DV heimsótti húsnæðið í gær. Á fjórðu hæðinni, fyrir ofan nýja skrifstofu fyrrverandi bankastjórans, voru skrifstofur Landsbankans en þar var ennþá starfsemi í gangi. Þegar Sigurjón var spurður út í þetta sagði hann; „þá er bara ekki búið að færa það. Annars veit ég það ekki nákvæmlega. Ég held að það eigi að leigja þetta út fyrir einhverja nýsköpunarstarfsemi,“ segir hann.

Vonast eftir verkefnum

Sigurjón segir að hinar og þessar deildir Landsbankans hafi verið í húsinu. Hann vill þó ekki fara nánar út í það. Á skilti sem er á veggnum fyrir utan dyr húsnæðisins kemur fram að á þriðju hæðinni, þar sem skrifstofa Sigurjóns er, sé lögfræðisvið bankans staðsett. Þegar hann er spurður hvort að hann sé byrjaður að gefa Landsbankanum ráðgjöf svarar hann; „já ég ætla að vona að ég geti fengið einhver verkefni þar eins og annars staðar. Að sjálfsögðu.“
Hann tekur fram að það geti vel farið svo að að hann komi að einhverjum verkefnum til aðstoðar bankanum. Aðspurður um það hvort að hann hafi átt bréf í bankanum segir hann svo ekki hafa verið. Sigurjón segist undanfarið hafa skráð niður það sem gerðist í aðdraganda hrunsins til þess að það lægi fyrir og til að tryggja að menn hafi réttar upplýsingar. „Ég er auðvitað alltaf boðinn og búinn til að hjálpa Landsbankanum. Ég er alltaf tilbúinn til þess að gera það,“ segir hann að lokum.
Jón Bjarki Magnússon,
fyrrverandi blaðamaður á DV"
 

 Góðar stundir.


mbl.is Frétt DV stöðvuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stærðin skiptir máli !!!

Þetta er nokkuð góð spurning og henni varpaði kvenskörungurinn ógurlegi Sóley Tómasdóttir nýlega fram á bloggi sínu sjá hér. Ég er svo sem ekkert að spá í því hvað Sóley yfir feministab.... er að pæla enda er mér alveg sama og þekktur fyrir ýmislegt annað en femínista dýrkun hverskonar...Winkstaersti_ma_ur_i_heimi_749438.jpg

En mér er það samt sérlega ljúft að fræða Sóley Tómasdóttir á því að það sem skiptir máli er stærðin...W00t Það er til dæmis ekkert grín að spila fótbolta með pínulitlum handbolta, eða öfugt...Woundering Það skiptir gríðarlega miklu máli hvort innistæðan á bankabókinni sé stór eða lítil...Woundering Stærðin skiptir svakalega miklu máli ef maður á til dæmis Trabant og er sjálfur 2,40 m á hæð...Woundering Svo setur maður alls ekki hval í pínulítið gullfiskabúr...Shocking

Ha Ha um hvað hélduð þið að ég væri að fara að skrifa um perrarnir ykkar....LoL Tippi !!!! in jor dríms þetta er ekki klámsíða.....W00t

Góðar stundir.


mbl.is Ríkisstjórnin verður að svara kalli um breytingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það borgar sig að halda kjafti

og ætti maður að biðja alla auðmjúklega afsökunar ef svo óheppilega vildi til að mér hafi orðið það á að segja eitthvað óviðeigandi um einhvern á þessari síðu?

Hvað veit maður hvernig hlutirnir virka? Þessi hér og margir fleiri eru grillaði á sér Íslenskan hátt og eins og venja er fást engi svör hvað þá heldur skýringar.

Ég hef hugsað um það í smástund hvort ég ætti ekki að koma með viðbjóðslega smeðjulega og allt að því hommalega afsökunarbeiðni til, ég veit ekki hverra og loka svo síðunni tveimur dögum seinna.

Það mætti byrja upp á nýtt með nýju nafni og kennitölu. Alveg er ég viss um að sú síða myndi flokkast undir kristileg skrif og góðmennskan ein höfð að leiðarljósi þegar talað yrði um Hafró, Líú, stjórnvöld og fjárglæframenn sem skuldsettu okkur fyrir örfáar evrur.

Já hvítþvotturinn er einfaldari en ég hélt í upphafi og ekki nokkur vandi að skapa sér flott orð og velvild allra enda nýr og betri ritstjóri með sama andlitið á síðunni, sama lyklaborðið og sömu hugmyndirnar.

Á meðan þessar vangaveltur veltast um í kollinum verður haldið sama dampi og áfram reynt gleðja lýðinn með nærgætnum athugasemdum mínum og allt að því kvenlega settlegu orðavali um daginn og veginn. Sem sagt engar breytingar að sinni enda engin kreppa í kolli síðuritara og ef eitthvað er þá spretta hugmyndirnar upp sem aldrei fyrr og orðaforðanum vex ásmegin.

Góðar stundir.


mbl.is Mótmælin breiðast út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er ekki skitið með skraufþurru

rassgatinu á þessum bænum frekar en öðrum stöðum í þessu rotna og illaþefjandi opinbera apparati sem við erum að burðast með. Ráðlegast til að ná árangri í ríkisfjármálum er að ráðast á lítilmagann, öryrkja, aldrað fólk og allar þær stéttir þjóðfélagsins sem eiga ekki fyrir nauðþurftum.

Ingibjörg Sólrún sagðist hreinlega ekki kunna aðrar aðferðir en ráðast á þá sem minna mega sín. Ekki dettur þessu andskotans hyski í hug að líta í eigin barm og skera duglega niður hjá sjálfum sér og sérstakleg þessum dugleysingjum sem eru ekki til nokkra hluta nytsamlegir, nema þá helst til að láta þverríða á sér afturendanum á kostnað þeirra sem eiga tæplega ofan í sig hvað þá heldur fatalarfa utan um sig.

Hugmyndasnauð Ingibjörg og hennar samflokkshjörð + útbrunninn, duglaus galtómur Geir og hans siðferðislega steingeldir meðreiðarsveinar og kerlur eiga skilyrðislaust að segja af sér og hypja sig úr landi. Það er ódýrara fyrir okkur að ráða örfá kunnáttumenn til að stjórna þessu meðalstóra fyrirtæki sem Ísland er og borga flugfarið fyrir hjörðina sem setti okkur í þessa stöðu hvert sem er, bara aðra leiðina. Við höfum ekki efni á því að burðast með ykkur lengur. Skella síða upp öflugu eftirliti á öllum flugvöllum og í höfnum landsins, við höfum ekkert við ykkur að gera lengur.Devil

Góðar stundir.


mbl.is Forstjóri Fjármálaeftirlits með 1,7 milljónir í laun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svo segist hann vera menntaður hagfræðingur.

Er það kannski lygi líka?

Góðar stundir.


Þetta mál má ekki tala um, hvað veldur?

Já samtaka eru þeir, mbl.is, visir.is og dv.is sjá ekki neina ástæðu til að fjalla um þetta mál. Hvað er í gangi, á að láta þetta rúlla í gegn átölulaust? Ég hef áður talað um meðvirkni fjölmiðla, það er kvittað duglega fyrir þau skrif mín með því að sleppa því hreinlega að taka þetta fyrir.

Um hvað skyldi ég svo vera að tala, jú ótrúlegt en satt en þá staðfesti Friðrik J. Arngrímsson Líú forkólfur það sem ég hef margsagt áður í fréttum á Ruv, skuldir sjávarútvegsins er svo tröllvaxnar að vandséð er hvernig þær verða borgaðar ef það er þá nokkurn tímann hægt.

Auðvita er byrjað smátt, 20 til 30 milljarðar er krafan sem Friðrik J. og fylgihjörðin vil láta afskrifa strax, sannið til síðan færir hjörðin sig upp á skaftið og krefst þess að meira verði afskrifað. Við skulum átta okkur á því að Líú með Friðrik J. í farabroddi fylkingar ber ábyrgð á því hvernig komið er, ekki má gleyma þætti litla Líú (landsambandi smábátaeigenda) þeir slógu ekkert af í boðskapnum um hverslags ævintýralegt magn af dauðu fjármagni lægi í þessu kvótasukki.

Halda mætti að Arthur Boga og hans fylgisveinar hafi fengið boðskapinn senda á faxi frá Hannesi Hólmstein svo keimlíkur var boðskapurinn um andvana fjármagn sem algjör nauðsyn var að vekja upp. Skemmst er frá því að segja að uppvakningin tókst svo duglega að í dag liggja menn á hnjánum ofurskuldsettir eftir ævintýrið hágrenjandi um miskunn og niðurfellingu skulda.

Eigum við að vorkenna þessum uppvakningarmeisturum? Ég eftirlæt ykkur lesendur góðir að svara þeirri spurningu en hlustum á hágrenjandi beibí feisið hér. Ég fæ hroll ég þykist vita að þetta sé bara byrjunin á grátklökkum kórstjórnandanum biðjandi um náð sér og sínum til handa eftir eigið drullumall með sameign þjóðarinnar.

Góðar stundir.


Fyrst var sameiginlegri auðlynd landsmanna rænt

og ofan í kaupið er tekið af skattpeningum okkar til að borga með heimsins bestu fiskveiðistjórnun í heimi. Var í alvöru ekki nóg að ræna sameign landsmanna? Nei verkið skal fullkomnað með því að seilast í skattfé almennings og borga svo með öllu þessu andskotans klúðri...Devil

Góðar stundir.


mbl.is 250 milljónum deilt til sveitarfélaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband