Já sko labbakútar rauðnefja rótarans

rétt mörðu áhugamannalið Derby á eigin heimavelli. Þetta verður að teljast með merkari afrekum labbakútanna í Manchester að ná þessum frábæra árangri og óska ég aðdáendum United til hamingju með sigurinn...Cool

Sýnið stillingu og gætið orða ykkar á þessari vönduð og vel skrifuðu síðu.....W00t Eins og öllum er löngu ljóst þá er ritstjóri síðunnar með afbrigðum orðvar, nærgætin og séntilmaður mikill sem ber einstaka og óbilandi trú á stjórnvöldum og að sjálfsögðu Liverpool....Cool

Góðar stundir.


mbl.is Manchester United áfram í úrslitaleikinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og með veði í hverju?

Ekki kæmi mér á óvart að veðið sem lagt er fram sé í bréfinu sjálfu. Það verður að stoppa þetta andskotans rugl, DeCODE hefur ekki gert neitt annað en tapa þannig að vonlaust er að haldbær trygging sé fyrir þessu lánsfé.

Góðar stundir.


mbl.is deCODE semur við Landsbanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er ekki þjóðin, þetta er skríll

sem er með heilabú á við meðal páfagauk og bleyju á rassgatinu enda algjörlega vanhæfur í að halda þvagi frekar en að það séu einhverjir vitsmunir á páfslaga kollinum.

Geir Haarde öflugur leiðtogi okkar sómakæru þjóðar sem nýtur trausts virðingar og horft er til með öfund af alþjóðasamfélaginu, situr skíthræddur á bak við fulltrúa og æðsta strump í byggingarnefnd fyrir gæluverkefni sitt Háskólasjúkrahúsið og skilur ekki neitt í þessum andskotans skríl.

Hann sem færið þessum auma skríl frábært góðæri og ótrúleg lífsgæði að annað eins hefur enga hliðstæðu í sólkerfinu. Dauðhneykslaður og drulluhræddur Geir horfir ráðalaus á þessa uppákomu hjá vanþakklátum skrílnum sem ekkert er hægt að gera til hæfis.

Það er vandlifað á landinu bláa þar sem enginn getur gert neinum neitt til hæfis að mati nokkra veruleikafyrrtra manna.

Góðar stundir.


mbl.is Mannfjöldi á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er illa fyrir okkur komið

landi_a_sokkva.jpgog hugmyndageld ríkisstjórn situr sem fastast í alvarlegri sjálfsblekkingu og algerri afneitun. Hver hefði geta ímyndað sér fyrirfram að fólkið í landinu teljist hreint ekki sem almenningur landsins? Hroki og fyrirlitning er versti óvinur hvers manns, það er nákvæmlega það sem stjórnvöld sína þegnum sínum.

Virkt lýðræði hefur ekki verið til staðar í áraraðir á Íslandi og stjórnvöld hafa kappkostað við að brjóta á þegnum sínum í áratugi og þykir það bara hið eðlilegasta mál. Já illa er fyrir okkur komið, örfáir fjárglæframenn hafa komið landinu á hausinn og nánast öllum þegnum þess með og stjórnvöld mærðu brjálæðið fram á síðasta dag.

Nú er það eina sem maður getur vonað og það er að hér brjótist ekki út blóðug átök með tilheyrandi hörmungum, allar forsendur eru að skapast fyrir gríðarlegum átökum og jafnvel uppreisn af svipuðum toga og við höfum séð í fréttum erlendis frá.

Þegar fólk sér í alvörunni að það á ekki fyrir nauðþurftum og hefur misst allt sitt, sem sagt borið sársvangt og stórskuldugt út á götu skulum við ekki gleyma af hverjum við erum komin. Íslendingasögurnar eru ekki bara skáldsögur og reyfarakennd fortíð, þetta er eðlið sem í okkur blundar og guð hjálpi okkur ef það verður vakið upp.

Að gefnu tilefni vil ég vekja eftirtekt á þessu og svo þessu hér.

Góðar stundir.


mbl.is Allt á suðupunkti við Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skuggalegir tímar framundan

Það er mjög líklegt að skuggalegir tímar séu framundan og fátt sem bendir til að úr rætist. Krafan um hátt verð skýrist að stórum hluta af óraunverulega háu verði aflaheimilda og fáránlega háu verði á leigumarkaði aflaheimilda.

Yfirskuldsettur sjávarútvegur hefur akkúrat ekkert svigrúm til að lækka verð sjávarafurða og fólk hefur ekki fjármagn til að kaupa á þessu verði. 

Svo virðist sem gróðabrask undanfarinna ára hafi snúist upp í andhverfu sína og hitti gerendurnar af fullum þunga með afleiðingum sem eru svo hrikalega að þær verða ekki setta á prent hér.

Við skulum gera okkur grein fyrir því í leiðinni að allur þessi óseldi fiskur hefur meira og minna verðið veðsettur í formi afurðarlána. Eitthvað segir mér að menn hafi lítið slegið af þegar söluverð afurðanna var fundið út svo lánin gætu orðið duglegri. Það sér það hvert barn hvað gerist þótt stíflan brysti og afurðirnar myndu seljast einn daginn á margfalt lægra verði en hugmyndfræðin gerði ráð fyrir. 

Menn geta séð það sjálfir hvernig staðan verður ef heimsmarkaðsverð sjávarafurða hrynur sem flest bendir til að gerist. Á samdráttartímum leitar fólk eftir ódýrum mat og samdrátturinn er rétt að byrja samber nýjustu spá um ESB svæðið, þetta á reyndar við um nánast alla heimsbyggðina.

Góðar stundir.


mbl.is Frystigeymslur stútfullar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru þetta ekki bara sanngjörn úrslit?

Ég sá ekki leikinn en leikir þessara liða eru oftar líkari slagsmálum en fótbolta, ég geri ráð fyrir því að þetta hafi verið sanngjörn úrslit.

Hvað um það þá tek ég á móti samúðarskeytum og kommentum fram að miðnætti,,,,Grin koma svo kútarnir mínir ég veit að þið bíðið spenntir með fótboltadónalegar athugasemdir....Wink

Góðar stundir.


Hroðaleg örlög sem Sif Friðleifsdóttir má sætta sig við

Sif hefur elti gömlu forustuna eins og vel tamin !!! og hvergi slegið af í baráttunni um völd í ræningjabandalagi helvítis til margra ára, það vildu jú allir vera með ekki satt?

Nú hefur henni verið hent í ruslið eins og restinni af gömlu forustunni, aumingja Sif má byrja á öllu upp á nýtt. Það verður þó ekki annað sagt en nýtt og spennandi verkefni sé framundan hjá Sif, það eru þó huggun gegn harmi að afturendarnir sem hún þarf að sleikja og pússa í þetta skiptið eru nýir og lítið sleiktir í það minnsta pólitískt séð...Whistling

Góðar stundir. 


mbl.is Flokknum bjargað, segir Siv
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Já, já

Um það þarf ekki að hafa fleiri orð, eða eigum við að hengja nokkur orð við þetta?,,,,,Cool

Aðdáendur United bíða eins og banhungraður engilsprettufaraldur á hliðarlínunni tilbúnir með drullumoksturinn ef mínir menn misstíga sig í kvöld....W00t

Ég er alveg pollrólegur yfir þessum leik, vonandi verður hann hin mesta skemmtun og það er fyrir öllu. Að sjálfsögðu vinnur betra liðið, það er ekkert nýtt undir sólinni í þeim efnum nema með örfáum undantekningum þegar slakara liðið grísar inn sigurmarki á lokasekúndunum...Whistling

Þessháttar uppákomur eru náttúrulega óþolandi en svona er boltinn, fullt af óvæntum atburðum sem gera þetta svona spennandi...Wink

Góðar stundir.


mbl.is Endurheimtir Liverpool toppsætið?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svín með gleraugu !!!

Svín með gleraugu og hraðlýið í ofanárlag. Hvað annað getur manni dottið til hugar?   Þetta er ekkert óeðlilegt, dæmi nú hver fyrir sig.svin_me_gleraugu.jpg

Siggi sögumaður á ekkert inni hjá okkur og maður getur ekki annað en grátbeðið fjölmiðla að hætta að tala við þessa menn. Því miður þá eru allar líkur á því að mogginn sé að fara þráðbeint í hendurnar á þeim sem sukkað hafa duglega og við megum borga slóðina sem skilin er eftir.

Hvaða lýkur teljið þið lesendur góðir á að umfjöllun moggans verði óháð og óvægin um náhjörðina sem eyðilagið Íslenskan efnahag, orðspor, trúverðugleika, virðingu og traust Íslendinga á erlendum vettvangi ef hann dettur í hendurnar á þeim sem talað er um í dag?

Góðar stundir.


mbl.is Ekkert óeðlilegt við viðskiptin við Al-Thani
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorrý Palli verkin felldu þig

Gullfiskaminni kjósenda er sem betur fer á undanhaldi, en sorrý Palli þáttur þinn í skítverkunum felldi þig og fólk man þetta ennþá.

Nýjasti skandallinn sem á borðinu liggur er ekkert smáræði um það má lesa hér. En auðvitað berð þú enga ábyrgð á þessu frekar en öðru sem framsóknarflokkurinn hefur gert fyrir vildarvini sína.

Ég rakst á athyglisverða grein í netheimum um smotterí af sendlastörfum Palla, skoðum það hér. Svo er Palli bara steinhissa á þessu öllu, spurning með gullfiskaminnið hjá gaurnum það virðist ekkert vera á undanhaldi.

Góðar stundir.


mbl.is Páll: Niðurstaðan kom á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brunabjöllurnar hafa glumið lengi á Framsókn

Framsóknarflokkurinn sat í þeirri ríkisstjórn sem til dæmis gaf bankana vildarvinum sínum. Það var gert í skjóli framsóknar og gerandinn heitir Valgerður Sverrisdóttir, stundum kölluð Lómatjarnar drottningin (tröllið) Í skjóli framsóknar spratt fram á...

Besti staðurinn að vera á, bla bla bla,,,,

Það er mikið betri staður til sem eftirsótt er að vera á..... Honum Kát leiðist ekki þegar maður fær sé smá kríu í sófanum. Hann hefur einstakt lag á því að koma sér hagalega fyrir þar sem nánast ekkert pláss er. Hélduð þið að ég væri að skrifa um...

Spilað með rassgatinu og rétt mörðu

arfaslakt lið Bolton. Það var kúnstugt að fylgjast með aðdáendum United á Allanum í dag. Gargandi brjálaðir yfir klaufaskap sinna manna æddi hópurinn stjórnlaust horn úr horni svo stórhætta skapaðist af fyrir aðra og dannaðri áhorfendur. Ég kalla þetta...

Það verður að slíta stjórninni og kjósa

„Ég harma það, og er eiginlega miður mín yfir því, að kerfið skuli ekki opnað og heimildirnar settar á markað. Í því ástandi sem nú ríkir hefði það verið sérstaklega mikilvægt,“ segir Karl V. Matthíasson, varaformaður sjávarútvegsnefndar...

Óttaslegnir United aðdáendur sjá fram á

skelfileg úrslit í leiknum á morgun og ekki að ástæðulausu. Maður spyr sig, missti rauðnefja rótarinn sig á æfingu og stórslasaði megnið af liðinu? Þetta var nú ekki alveg það sem ég var að vonast eftir, það hefði nefnilega verði lúmskt gaman að sjá...

Það er verið að lagfæra veðin hjá yfirskuldsettum

sjávarútvegi og þessi viðbót dugar hvergi til. Að reikna þetta sem tekjur fyrir þjóðarbúið er dæmalaust rugl. Sölutregða, lækkun á heimsmarkaði og tapaðir markaðir sjá til þess að aukning á gjaldeyristekjum verður hverfandi ef þá nokkur. Að sjálfsögðu...

Þessi aukning á aflaverðmæti gufaði upp

og mikið meira en það í stóraukinni skuldasöfnun sjávarútvegsins. Það væri til eftirbreytni ef fjölmiðlar segðu alla söguna og hver raunveruleg staða er. 10,7 milljarða hækkun er í raun ansi döpur ef horft er til skuldaaukningar á móti. Hvað er verið að...

Skítverkin eru víða

Í kastljósinu í kvöld sáum við gott dæmi um hvernig hið opinbera er gjörspillt og í rauninni vanhæft í verkum sínum. Haldi einhver að þetta sé eitthvað einsdæmi þá er sá hinn sami hroðalega illa upplýstur. Hér voru menn teknir í bólinu það verður...

United á toppinn, nei nei það er ekkert

svoleiðis bull í spilunum. Þeir klúðra þessu algjörlega, taugabilun og stjörnustælar verður þeim að falli. Þessi leikur var hroðalega lélegur og er nettur fyrirboði á því sem koma skal, jafntefli í næsta leik ég ætla nú samt að spá tapi í þessu leik sem...

Þetta er ekki rétt og ég á ekki til orð yfir þessari frétt, sagði Telma í samtali við fréttastofu.

Telma Halldórsdóttir, stjórnarmaður í fjárfestingarfélaginu Q Iceland Finance segist þurfa að ræða málið við umbjóðendur sína þar sem um alvarlegan hlut sé að ræða áður en hún tjái frekar. Hún telur líklegt að send verði út tilkynning vegna málsins...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband