mán. 26.1.2009
Og hvað nú?
Tekur eitthvað skárra við, það er ekki að heyra því miður?
Góðar stundir.
Stjórnarsamstarfi lokið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 25.1.2009
Alltaf hækkar reikningurinn
sem við megum borga fyrir sofandahátt margra sem áttu að standa vaktina og sinna vinnunni sinni. Þessi hér fær þokkalega borgað fyrir að hafa verið með buxurnar stútfullar af meðvitundarleysi og steinsofið í vinnunni. Þvílík silkimeðferð sem þessir gaura fá, manninn á að reka fyrir afglöp af sverustu sort í starfi og endurgreiða í það minnsta eitt ár af launagreiðslum sínum, það hefði verið skítsæmileg refsing og öðrum sem á eftir koma þokkaleg áminning.
Að sjálfsögðu pössuð sumir upp á að gera helst engar breytinga á eftirlaunaólaga ósómanum. Eftir áratuga setu á fáránlega háum launum fyrir ekki neitt eins og komið hefur í ljós, er svo sest í helgan stein á enn fáránlegri launum bara fyrir það að sofa á verðinum og rústa samfélaginu með sofandahætti.
Auðvitað vona ég að maðurinn nái fullri heilsu aftur ég er ekki algjör óþveri að hugsa eða vona eitthvað annað, höfum það samt í huga að nánast allan hans tíma í stjórnmálum var hann við hesta heilsu. Þetta verður ekki afsakað á neinn hátt því miður þó heppilegt hefði verið að geta borðið einhverju öðru við en sofandahætti og meðvirkni með vitleysunni.
Góðar stundir.
Útilokum ekki breytingar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.1.2009 kl. 10:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 25.1.2009
Fyrirfram ákveðin úrslit
Mér var sagt þetta í morgun af mjög áræðalegum heimildarmanni og var þar af leiðandi ekkert að eyða dýrmætum tíma í að horfa á leikinn.
Ástæðan fyrir þessu er sögð sú að hroðaleg fjárhagsstaða Everton spili þarna stórt hlutverk og Liverpool hafi gert þetta að góðmennsku einni saman og Everton fær heimaleik fyrir vikið og fleiri aura í kassann...
Þessu get ég vel trúað enda er Liverpool þekkt fyrir góðmennsku til handa þeim er minna mega sín.
Góðar stundir.
Aftur jafntefli Liverpool og Everton | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 25.1.2009
Ragnheiður Ríkharðsdóttir segir af sér þingmennsku?
Ragnheiður hlýtur að teljast til hryðjuverkamanna/kvenna sjálfstæðismann með þessu endalausa gaspri um að Davíð eigi að víkja sjá hér. Það er búið að hundskamma Röggu fyrir ábyrgðalaust blaður í fjölmiðla um þetta mál áður og næsta sem gerist verður væntanlega úrsögn úr flokknum. Á ómenguðu máli REKIN úr flokknum.
Ragga er eitthvað að misskilja hlutverk sitt, hún hefur ekki málflutningsleyfi forustunnar og Davíðs við fjölmiðla um málefni íhaldsins, pakk sem ekki virðir kúgun íhaldsins er sett á hóld og síðan látið víkja.
Ástæðan verður hefðbundin, af fjölskylduástæðum sé ég mér ekki fært að sinna starfi mínu af fullum krafti og hef því ákveðið að stíga til hliðar og segja af mér. Svona sé ég tilkynninguna fyrir mér.
Já maður ræðst ekki á foringja sinn án afleiðinga.
Góðar stundir.
Vill nýja bankastjórn í Seðlabankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 25.1.2009
Pólitískar rottur vaða nú fram eins og
hroðalegasta plága og allir virðast vera tilbúnir til að stinga alla í bakið.
Þær eru djöfull slægar þessar rottur.
Á mannamáli heitir þetta að löðrunga samstarfsaðila sinn. Það fer ekkert á milli mála að Solla slóg Geir algjörlega út af laginu.
Góðar stundir.
Samfylkingin hefur náð frumkvæði | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 25.1.2009
Oddný Sturludóttir, borgarfulltrúi síhaldsfylkingarflokksins
er pólitísk reykbomba og reykskýið virðist byrgja alla sýn og blokka allt sem heitir heilbrigð skynsemi. Oddný er með síðu á Eyjan.is og þar tjáir hún sig um að varaformaður Síhaldsfylkingarflokksins verði væntanlega og vonandi næsti viðskiptaráðherra.
Þetta gengur alls ekki upp hjá þessari pólitísku reykbombu enda er Össur Skarphéðinsson nú þegar ráðherra, bara svona ef það hefði farið framhjá henni....
Í síðustu færslu minni segir að Ingibjörg Sólrún og Össur Skarphéðinsson reki saman fyrirtæki sem nefnist Síhaldsfylkingarflokkurinn. Ég hvika hvergi frá þessari skoðun enda fara þau ekki að vilja meirihluta samfylkingarinnar sem er að slíta stjórninni strax og boða til kosninga...
Góðar stundir.
Geir: Má ekki missa dampinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
sun. 25.1.2009
Er Össur Skarphéðinsson varaformaður
Síhaldsfylkingarflokksins eða er Síhaldsfylkingarflokkurinn fjölskyldu fyrirtæki Ingibjargar Sólrúnar og Össurar Skarphéðinssonar?
Athygli vekur að varaformaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson kemur hvergi nærri svona stóru máli sem stjórnarsamstarfið er og ræða á í dag. Er Ágúst Ólafur kannski að vinna í lokuðu bakherbergi ekki ólíkt því sem sagt var þegar stjórnin var mynduð?
Í hnotskurn virðist svo vera að Síhaldsfylkingarflokkurinn sé ekki fyrir Samfylkingarfólk hann er fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og Össur Skarphéðinsson og spurning hvort þau tvö séu hreinlega að einangrast frá Samfylkingarflokknum.
Góðar stundir.
Ingibjörg og Geir hittast í dag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 25.1.2009
Hefjum hvalveiðar ekki seinna en á þessu ári
Mikið er rætt um hvalveiðar og afleiðingar þeirra, ég sé fátt annað en gott við það að hefja hvalveiðar og það má hugsa þetta út frá mörgum kostum.
Við hvern skotinn hval má til dæmis gefa út auknar aflaheimildir. Gaman væri að sjá útreikning á því hvað einn hvalur étur mikið af fiski, síðan mætti setja þetta dæmi upp og skoða hvað margir smábátar gætu fengið að veiða mikið við hvern skotinn hval.
Það mætti einnig hugsa þetta þannig að aflaheimildunum væri ráðstafað á hvert byggðarlag sem einum potti og bæjaryfirvöld úthlutuðu síðan á jafnt á alla báta innan sveitarfélagsins.
Ég held að einhverjum myndi bregða töluvert ef tölurnar yfir fiskát hvala yrðu birtar og þær síðan reiknað út í verðmætaaukningu fyrir samfélagið.
Er ekki betra að við veiðum þennan fisk okkur til framdráttar frekan en láta hvalina gera úr honum saurúrgang engum til gagns?
Góðar stundir.
Samkomulag um hvalveiðar? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 24.1.2009
Rauðnefja rótarinn og lærisveinar hans
dröttuðust áfram í bikarkeppninni í dag. Nú get ég afskaplega lítið sagt um þennan leik enda sá ég hann ekki, ég varði tímanum í skemmtilega hluti í dag...
Dagurinn byrjaði ókristilega snemma eins og allir aðrir dagar vikunnar, sem sagt vinna. Eftir hádegi var skoppað í kaffi og spjall til stórsnillingsins, það er þessi hér.
Síðan var stormað á móti mótmælagöngunni (það gera það ekki allir, ég gerði það) og stefnan sett á KEA Hótel án frávika. Þar var setið eins og þægur sunnudagaskóladrengur á kynningu til kl.17 Það er hreint ekkert auðvelt að sitja kyrr svona lengi en það hafðist, út af þessari kynningu kom ég útlýtandi eins og ég hefði hrapað óheppilega í gegnum pökkunarlínu í plástursverksmiðju... með öðrum orðum plástraður frá skósólum og uppúr...
Ekki veit ég nákvæmlega hvað var í þessum plástrum en strákurinn er eins og nýsleginn túkall verkjalaus og stútfullur af orku, sumum fannst reyndar alveg nóg um orkuna áður en ég var plástraður en það er svo annað mál...
Til hamingju United aðdáendur.
Góðar stundir.
Man. Utd áfram eftir sigur á Tottenham | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt 25.1.2009 kl. 00:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 24.1.2009
Hvað er forustan að gera og hverjir eru
í flokknum? Þegar stórt er spurt verður oftar en ekki frekar fátt um svör. Skoðanakönnun Frjálslynda flokksins um aðildarviðræður að ESB sjá hér, er um margt merkileg og spurning um trúverðugleika hennar og hvort þetta sé raunverulegur vilji flokksmanna.
Ef þessi könnun á að hafa farið fram á meðal flokksmanna Frjálslynda flokksins verð ég að spyrja hverjir eru í flokknum og hvernig stóð á því að margir flokksmenn sem ég þekki fengu akkúrat engan póst sendan um þessa könnun hvað þá heldur tækifæri til að taka þátt í könnunni.
Ég er einn af þeim sem hef ekki séð blaðsnifsi um þessa könnun og alls enga tilkynningu fengið frá flokknum um þetta mál. Ég sem hélt að skráning mín hefði tekist eftir í það minnsta fjórar tilraunir í gegnum heimasíðu flokksins.
Fyrir rétt að verða ári síðan var svo stofnað félag Frjálslyndra í Eyjafirði og þar var ég kosinn í stjórn, við það tækifæri kom ég því á framfæri við formann og varaformann flokksins sem voru á stofnfundinum að þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að skrá mig í flokkinn hefði engin staðfesting borist og mig var hvergi að finna í félagaskrá flokksins.
Nú spyr ég, er stjórn eða hluti stjórnar Frjálslyndra í Eyjafirði utanflokkastjórn?
Telst ég í alvöru svo lélegur pappír að Frjálslyndi flokkurinn hafni inngöngu minni í flokkinn?
Ef það er ekki ástæðan þá veltir maður því fyrir sér við hvað launaðir starfsmenn flokksins eru svona uppteknir að félagaskrá og skráningar í flokkinn ganga fyrir sig með þessum hætti?
Góðar stundir.
Geir með fullt starfsþrek | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2009 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 24.1.2009
Ríkisstjórnina burt og hennar náhjörð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
fös. 23.1.2009
Gerrard ekki forhertur ofbeldismaður
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 13:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
fim. 22.1.2009
Er Gay Pride gangan byrjuð strax?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
fim. 22.1.2009
Össur samfylkingin er ekki þín einkaeign
fim. 22.1.2009
Í hnotskurn þá lítur þetta svona út.
fim. 22.1.2009
Nú verður allt vitlaust
mið. 21.1.2009
Þetta toppaði delluna hjá Samfylkingunni
mið. 21.1.2009
Ég fer aldrei aftur í framboð með þessu helvítis fífli
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.1.2009 kl. 02:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
mið. 21.1.2009