Dæmi eru um að skip

sem er í Landssambandi íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) hendir margfalt meira magni af fiski í hafið en það sem þeir eru að vitna í að nokkrir strandveiðibátar fiskuðu umfram og komu þó með í land.

Ég er að tala um brottkast per klukkustund hér ekki yfir árið og komast upp með það frítt, litli trillukarlinn fær nokkuð örugglega að borga sína sekt.

Sekt sem hann fær fyrir að fara að lögum um umgengni nytjastofna á íslandsmiðum.

Brottkast skipa LÍÚ nýtur aftur verndar elítunnar og fá að stunda sína iðju óáreitt og þurfa ekki að borga krónu fyrir að brjóta sömu lög sem aftur litli trillukarlinn virðir eins og sönnum heiðarlegum samfélagsþegnum sæmir.

Góðar stundir.


mbl.is Dæmi um 14 brot sama strandveiðibáts
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki hægt að hneppa

þennan vindhana í farbann svo hann valdi ekki meira tjóni ?

Góðar stundir.


mbl.is Utanríkisráðherra bjartsýnn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fer ekkert dult með það

að hér hefði ég alveg verið maður í að sjá sigur hjá Aston Villa...Wink

Það er ekkert breytt útaf vananum og öll umfjöllun um Liverpool verður áfram í dvala...Cool

Að sjálfsögðu óska ég aðdáendum United til hamingju með dolluna...Wizard

Eitt þó að lokum, United er hrikalega háð því að strákarnir frá bítlaborginni dragi vagninn fyrir þá...LoL

Góðar stundir.


mbl.is Rooney hetja United - Torres tryggði Liverpool sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lítillátur snillingur

Ég er ekki viss um að allir hafi gert sér fullkomlega grein fyrir því en þetta á líka við um aðdáendur liðsins...Cool

Góðar stundir.


mbl.is Gerrard orðinn sá markahæsti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað dettur ykkur í hug (myndir)

þegar þið sjáið þessar myndir?

Svo þennan hér.

Að lokum þennan hér.

Hugleiðið málið eftir lestur á þessari frétt.

Góðar stundir.


Kom ekkert á óvart

og það kemur heldur ekkert á óvart að grafarþögn lagðist yfir nánast alla aðdáendur United...

Góðar stundir.


mbl.is Everton lagði Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB viðurkennir meingallað regluverk.

Ef það vottaði fyrir smávægilegum dug, þor og lítilræði af sómatilfinningu hjá íslenskum stjórnvöldum myndi eftirtalið gerast strax.

Allar viðræður um Icesave slegnar út af borðinu og neitað að borga fyrir einkafyrirtæki.

Farið í mál við bresk stjórnvöld vegna setningu hryðjuverkalaganna.

Svo í framhaldi.

Núverandi ríkisstjórn lýsti sjálfviljug yfir algjöru vanhæfni og segði af sér með skömm.

Það segir sig sjálft að hjörð sem getur ekki einu sinni stjórnað sjálfum sér er afleitasti valkostur sem nokkur þjóð getur yfir sig fengið og á að stjórna heilu þjóðfélagi.

Orðið hjörð er hér notað yfir ríkisstjórnina í heild sinni.

Góðar stundir. 

 


mbl.is Stofna sameiginlegan sjóð innistæðutryggjenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir telja að hitt og þetta

muni gerast ef hlutirnir eru gerðir svona en ekki hinsegin.

Reynslan sýnir okkur allt annað því miður og þessir sprenglærðu fábjánar bera ekki nokkra ábyrgð á orðum og spám sem út úr þeim ruglast.

Hvernig væri að fjölmiðlar létu þá svara einni nettri spurningu!

Af hverju er Barentshafið ekki eyðimörk eins og þeir spáðu ef ekki yrði farið að þeirra tillögum?

Skoðum söguna sjá töflu, smella á mynd fyrir stærri. ra_gjof_i_barentshafi.jpg

Eins og sjá má fór (ICES) að elta raunveruleikann og af hverju skildi það hafa verið?

Jú það leit betur út á alþjóðavísu og sjálfsagt lemur elítan á brjóst sér í dag og þakkar sér sjálfri fyrir vönduð og vel ígrunduð vinnubrögð.

Góðar stundir. 


mbl.is Telja að þorskstofninn muni vaxa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haldið þið helvítis fundina

í þeim byggðarlögum sem voru svipt viðurværi sínu og íbúanna í leiðinn með dyggri aðstoð handónýtrar og gjörspilltrar stjórnunnar í sjávarútvegsmálum.

Það væri fróðlegt að sjá hvað margir í þessum fjölmörgu byggðarlögum myndu klappa fyrir varðhundum kvótakerfisins

Góðar stundir.


mbl.is Baráttufundur í Ólafsvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glæsilegur listi

Ég óska L - listamönnum til hamingju með þennan lista.

Vel mannaður og líklegur til stórvinninga í komandi bæjarstjórnarkosningum.

Góðar stundir.


mbl.is Geir Kristinn í 1. sæti á L-lista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Af hverju velja þeir ekki Breiðdalsvík

sem fundarstað? Er það það kannski vegna þess að afleiðingar kvótakerfisins birtist þeim með fremur óþægilegum hætti þar? Það mætti reyndar stinga uppá fjölmörgum öðrum stöðum fyrir fundinn þar sem afleiðingar kvótakerfisins öskra á gesti og gangandi svo...

Mikill meirihluti íslendinga afneitaði

Frjálslynda flokknum í síðustu kosningum til alþingis. Nú spyr maður sig, hver er að afneita hverjum hér? Góðar stundir.

Er setið á svikráðum við íslendska þjóð, - ég bara spyr ?

Manni er svo sannarlega spurn, - eru þarna virkilega einhverjir þingmenn sem sitja á svikráðum við þjóðina ? Almenningur á skýlausa heimtingu á hreinum og skýrum svörum. Hvað er verið að fara, - hvað er verið að fela ? Þingmenn eru "ráðnir" af almenningi...

Kristján Möller, hvað varð um loforðin?

Gjaldfrjáls Hvalfjarðargöng, gjaldfrjáls hvalfjarðargöng, gjaldfrjáls hvalfjarðargöng ómaði hvar sem frambjóðendur samfylkingarinnar opnuðu á sé þverrifuna. Staðreyndin talar öðru máli sjá hér. Allt hjal um að Þegar horft er til verðlagsþróunar hafi...

Í alvöru senjor Benítez

Ef ég og Benítez vorum að horfa á sama leikinn þá er sjónin rosalega löskuð hjá senjor Benítez. Hafi Liverpool einhvern tímann verið lélegt á þeim 37 árum sem ég hef haldið með þessu liði þá var það akkúrat í þessum leik. Það er átakanlegt að horfa uppá...

Þetta er ekki gott mál

Ég sé fyrir mér að bestu leikmenn liðsins yfirgefi partýið og það sem verra er, stuðningsmenn liðsins gætu snúið við því baki í stórum stíl. Graham Souness var hroðalega lélegur sem stjóri Liverpool. Ég hallast að því að Benítez sé enn verri. Góðar...

Jóhann Hauksson er góður penni.

Það á enginn neitt inni hjá kappanum, ekki einu sinni Friðrik J. Arngrímsson sem hótar samborgurum sínum með sameiginlegri eign þjóðarinnar. Sjáum hér fyrir neðan hvernig þetta er tæklað. HAGSMUNAEINBLÍNI SÆGREIFANNA Jóhann Hauksson Nú hótar Landssamband...

Það verður fróðlegt

að sjá hvernig Benni brosmildi réttlætir þetta klúður.... Í alvöru hvað þarf að gerast til að spanjólinn verður settur í að flokka póstinn??? Góðar stundir.

Við erum með öðrum orðum

hreint út sagt frábær... Látum ekki einhverja tjallatitti vaða yfir okkur á grútskítugum skónum sem anga af táfýlu heimsálfa á milli... Góðar stundir.

Hneppa ríkisstjórnina í heild sinni

í far og fjölmiðlabann. Það er sorglegt að sjá hvernig þeir sem eiga að standa grjótharðir í framlínunni eru í raun mestu svartsýnis og úrtölukindur samfélagsins. Ég er ekki frá því að ég skammast mín fyrir þessa handónýtu undirlægjur. Góðar...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband