Færsluflokkur: Spaugilegt

Herjólfi seinkaði vegna hálku.

Ég hélt að ég væri að lesa vitlaust, skipi seinkar vegna hálku. Það flugu margar skemmtilega hugsanir í gegnum hugmyndabankann hjá mér. Ég sá dallinn fyrir mér á hliðarskrensi og spólandi með tilheyrandi fjöri fyrir farþega og áhöfn á leiðinni til eyja. En svo var þetta bara hálka í Þrengslunum og Hellisheiði eins og lesa má hér, sem betur fer hitt hefði verið frekar óheppilegt.Wink

Getur einhver lánað mér skammbyssu?

Konan var að biðja mig um að hengja upp nokkrar myndir. Shocking
mbl.is Ætlaði að setja upp gervihnattadisk en skaut konuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Réttarkerfið er magnað.

Vísir, 14. mar. 2008 07:38

Skógarbjörn sektaður fyrir stuld úr býflugnabúi

mynd

Skógarbjörn í Makedóníu hefur verið fundinn sekur fyrir dómstóli um að stela reglulega hunangi úr býflugnabúi bónda nokkurs í grennd við borgina Bitola.

Eftir að björninn fór að gera sér dælt við býflugnabúið á hverjum degi greip bóndinn til þess ráðs að láta ljós loga alla nóttina við búið og spila serbnesk þjóðlög af töluverðum krafti. Hélt það birninum í burtu.

Síðan þvarr olían af díselrafstöð hans og þá ákvað hann að fara í mál við björninn. Þar sem björninn telst til verndraðra tegunda verða stjórnvöld að greiða sekt hans sem nemur um 250.000 krónum.

Þetta er frekar fyndið.

 

 


Getur nef breyst í brjóst?

Það væri haugalygi að segja annað en að konan mín hefur frábært hugmyndaflug.Whistling Í gær var lögð fyrir mig lævís gildra með þessum frægu orðum " ég er með ljótuna " sem mér tókst að verjast fimlega með frægu heyrnarleysi og slapp fyrir horn. Í dag voru notaðir glænýir taktar sem ég hef1102852259 ekki heyrt áður.

Í sakleysi mínu þegar ég kom heim í dag og var að fá mér kaffi, kemur fárveika eimreiðin mín inn í eldhús  (konan) grænni sem aldrei fyrr hnerrandi, með kolstíflað nef og snýtandi sér í klút eins og gamall tóbakskarl. Svo dettur allt í einu upp úr henni, "nefið á mér breytist pottþétt í brjóst". Af fenginni reynslu brást ég frekar rólegur við þessu og spurði ( að drepast úr forvitni ) af hverju segir þú það elskan mín?InLove Á milli hnerra og hóstakasta segir mín, sko ég er orðin svo aum í nefinu að ég er farin að nota græðandi brjóstakrem á nefið á mér.Woundering

Ég missti mig alveg úr hlátri, og hugmyndaflugið æddi á stað og stíflan brast. Ég stóð argandi að hlátri fyrir framan mína og leitaði dauðaleit að bólu á nefinu á henni sem ég gæti skýrt geirvörtu.LoL Ég sef í stofunni í nótt...Shocking


Konan mín er komin með ljótuna !!!

Hvað svo sem það nú þíðir.Woundering Ég skyldi ekkert í því þegar hún kom niður af efrihæðinni áðan þessi elska, hóstandi og 4hnerrandi eins og gömul eimreið og lýsti því fyrir mér að hún væri komin með ljótuna.Errm Ég náttúrulega leit frekar spekingslega á hana og sá akkúrat enga breytingu á henni.Frown Hún leit nákvæmlega eins út og þegar ég sá hana síðast, eða hvað jú ég var nokkuð viss.Woundering

Hvað á maður að segja þegar konan kemur með svona yfirlýsingu?Blush Ekki dettur mér til hugar að segja, já elskan mín það er hroðalegt að sjá hvað þú ert orðin ljót, nei minn veit betur. Ég lét sem ég hefði ekki heyrt nokkurn skapaðan hlut og hélt áfram að fikta í fjarstýringunni. Merkilegt nokk ég komst upp með það.. pjúff..Cool 


Svona gerir maður ekki eða hvað?

Sama hvað maður verður pirraður á dúllunni sinni þá gerir maður ekki svona.Whistling Sjá hér

Dónó ekki fyrir alla, eða hvað?

Svona kemur fyrir suma.

 


 

Ha ha ha ha ha

Hvað hélst þú að væri þarna? Wizard


Óheppnin eltir einfaldlega suma.

Þetta er drepfyndið, sumir eiga bara heima í vernduðu umhverfi...Whistling

 


Konan með hausverk??????

Þá er það næst gripið sem gæti lyktað svipað..Wink En þar fyrir utan, djö.... er þetta sikk..Shocking
mbl.is Hafði mök við dömureiðhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjálfstæðismenn vaða reyk og !!!!!!!!!!!!!

Þetta skýrir helling. Það má lesa um það hér

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband