Konan mín er komin með ljótuna !!!

Hvað svo sem það nú þíðir.Woundering Ég skyldi ekkert í því þegar hún kom niður af efrihæðinni áðan þessi elska, hóstandi og 4hnerrandi eins og gömul eimreið og lýsti því fyrir mér að hún væri komin með ljótuna.Errm Ég náttúrulega leit frekar spekingslega á hana og sá akkúrat enga breytingu á henni.Frown Hún leit nákvæmlega eins út og þegar ég sá hana síðast, eða hvað jú ég var nokkuð viss.Woundering

Hvað á maður að segja þegar konan kemur með svona yfirlýsingu?Blush Ekki dettur mér til hugar að segja, já elskan mín það er hroðalegt að sjá hvað þú ert orðin ljót, nei minn veit betur. Ég lét sem ég hefði ekki heyrt nokkurn skapaðan hlut og hélt áfram að fikta í fjarstýringunni. Merkilegt nokk ég komst upp með það.. pjúff..Cool 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég mundi ætla að þarna hafir þú tekið mjög röggsamlega og áreiðanlega ákvörðun, því að eins og þú veltir fyrir þér hvað segir maður í svona tilfelli, það er nákvæmlega sama hvað sagt er við þessar aðstæður það er rangt svo þá er að nota karlmannlega eiginleika, heyra ílla og halda bara áfram að eiga við fjarstýringuna

Högni Jóhann Sigurjónsson, 10.3.2008 kl. 23:38

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sko eftir nokkra ára hjónaband er maður búinn að læra ýmislegt. Svo halda þessar elskur að maður detti í hvaða gildru sem er, nei ó nei ég læt sko ekki plata mig svona auðveldlega. Smá þögn er vænlegri kostur en reyna að segja eitthvað gáfulegt við svona aðstæður. Til dæmis í mínu tilfelli væri það algjört glapræði að tjá sig um málið, sjóara málið er ekki best til þess fallið að hætta sér út í komment á svona yfirlýsingu og svo á ég engan bílskúr til að sofa í.

Hallgrímur Guðmundsson, 11.3.2008 kl. 00:21

3 Smámynd: Jóhann Kristjánsson

Ef ég hefði lent í svona tilfelli þá hefði ég sagt "Já elskan ég sé að þú hefur skánað mikið" ;)

Jóhann Kristjánsson, 11.3.2008 kl. 01:16

4 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Já maður segir ekki hvað sem er hvorki með svalir með grilli né bílskúr. Jóhann, ef þú værir ég, þá myndirðu ekki segja þetta þó svo að ég sé bæði með bílskur, húsbíl og tvö heimili, nema ætla að aðskilja heimilin alfarið

Högni Jóhann Sigurjónsson, 11.3.2008 kl. 09:10

5 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég sé það að ég þarf á því að halda að fara í nokkrar "kennslustundir" hjá þér Halli, í að umgangast kvenfólk, maður þarf þó að geta siglt á milli skers og báru í þessum efnum líka.

Jóhann Elíasson, 11.3.2008 kl. 09:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband