Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ríkisstjórnin sprungin eftir yfirlýsingu

Undirgefin SlæðudrottningIngibjargar Sólrúnar Gísladóttir um hrefnuveiðar. Við skulum átta okkur á því aðHvalur að koma upp Ingibjörg Sólrún er ekki bara einhver Imba út í bæ. Nei hér talar næst valdamesti ráðamaður (kona) þjóðarinnar. Ekki getur Ingibjörg Sólrún unað við það að einhver valdlítill landsbyggðarplebbi (Einar K) framkvæmi eitthvað sem er henni algjörlega á móti skapi.  Ekki get ég trúað öðru en Ingibjörg framkvæmi það eina sem er í stöðunni, slíti samstarfi við þessa óþekktaranga sem engu hlýða og ganga gersamlega á skjön við hennar hugarheim um sjávarútvegsmál, þótt sá hugarheimur sé engum öðrum skiljanlegur. 

Þreifingar um nýja stjórn eru að sögn heimildarmanna byrjaðar og heyrst hefur að Guðjón Arnar verði næsti sjávarútvegsráðherra og Magnús Þór Hafsteinsson félagsmálaráðherra í nýrri stjórn...Whistling 


mbl.is Hagsmunum fórnað með veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Magnús Þór Hafsteinsson RASISTI...?

Eða erum við ekki einfaldlega að sjá eina þá ömurlegustu aðferð annarra flokka sem hægt er að hugsa sér til aðMagnús Þór Hafsteinsson upphefja sig yfir aumingjaskapinn í sjálfum sér, með útúrsnúningum á málefni sem verður fyrr eða síðar að ræða af fullri alvöru áður en í óefni er komið? Eða eru aðrir flokkar að breiða yfir rasistann í sjálfum sér á kostnað Frjálslynda Flokksins?

Hvað er að því að flytja mál um innflytjendur og hvernig best sé að standa að þeim málum og hvort við séum nægilega vel undir það búin? Eiga þeir innflytjendur sem hingað koma og við tökum á móti ekki skilið að við vöndum okkur og séum undir það búin og tökum vel á móti þeim?


Árni Finnsson er veruleikaskert

Huglaus kjúllirophænsni sem á að taka og varpa í fangelsi nú þegar. Maður sem veður um heimsbyggðina og boðar ekkert nema hörmungar um framtíð Íslands ef við framfylgjum ekki hans arfabrjáluðu hugmyndum um alfriðum á hvölum hefur ekki tilverurétt sem frjáls einstaklingur. Þetta flokkast undir hryðjuverk gegn íslenskuHrefnuveiðar þjóðinni og ber að meðhöndla sem slíkt.

Hörmungarnar sem áttu að ganga yfir hvalaskoðunar fyrirtækin sýndu sig í þeirri mynd að aðsóknin jókst sem aldrei fyrr á síðasta ári, efnahagsþvinganirnar hafa ekki látið á sér kræla, hvalurinn er að éta okkur út á gaddinn og vöntun á hrefnukjöti á markaði hér innanlands er staðreynd. Í steininn með gaurinn áður en hann nær að vinna íslensku þjóðfélagi óbætanlegt tjón...


mbl.is Hrefnuveiðar tilgangslausar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ekki nein áhrif á afstöðu annarra þjóða

til framboðs Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna segir Stefán Ásmundsson" Það má vel vera aðNjörður rétt sé, en ég er samt á því að við eigum að veiða mikið meira af hval og hætta óttast þessar umsagnaryfirlýsingar og hótanir frá einhverjum helvítis Náttúruverndar-Ayatolla samtökum. Við eigum fyrst og fremst að nýta það sem er í boði í okkar sjávarauðlind burt séð frá því hvað aðrar þjóðir segja.

En hinsvegar er ég á því að afstaða íslenskra stjórnvalda til álits mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna um kvótakerfið, gæti komi til með að hafa áhrif á afstöðu annarra þjóða til framboðs Íslands til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.  


mbl.is Hrefnukvóti gefinn út í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig gat þetta gerst?

Sandsili.Ef einhverjir muna eitt ár aftur í tímann þá á þetta hreint ekki að geta átt sér stað. Fyrir ári síðan var allt vaðandi vitlaust í fréttaflutningi af algjöru hruni á sandsílisstofninum. Ekki dró vísindaflóran neitt úr og boðaði hörmungarnar sem aldrei fyrr.

Fuglafræðingar gengu af göflunum og boðuðu friðun á öllu semLundi hefði vængi, fiskifræðingar misstu þvagið og boðuðu friðun á fiski sem aldrei fyrr. Svo bara kom sílið og lét engan vita hvert það fór, þvílík ósvífni og óþægð í þessu helvítis síli að vera ekki þar sem vísindaakademían vil að það sé. Og meira en það, Sandsílisstofninn sem var jú hruninn tók upp á því að hrygna og það svona líka hressilega. Svona er Ísland í dag.

Sjá frétt hér fyrir neðan. 

 Góðar stundir.

Víða vart við sandsíli

Skip.is  16.5.2008

 

Vísbendingar eru um að hrygning sandsíla hafi tekist vel í fyrra en ekki fæst úr því skorið fyrr en eftir sandsílaleiðangur í sumar, að því er fram kemur í nýjustu Fiskifréttum. 

 

 

Sjómenn sem stunda veiðar við suðurströndina hafa tekið eftir því að óvenjumikið er um sandsíli efÞorskar miðað er við tvö til þrjú síðastliðin ár. Bæði lóðar á sílið og það finnst nú í þorskmögum í meira mæli en undanfarin ár. Ennfremur hefur fuglinn sótt í sílið sem aldrei fyrr. ,,Við höfum fengið jákvæðar fréttir af sílinu frá sjómönnum og þeir hafa einnig sent okkur sýnishorn af því. Það er vísbending um að hrygningin hafi tekist betur í fyrra en árin þar á undan en við getum ekkert fullyrt í þeim efnum fyrr en eftir árlegan sandsílaleiðangur í sumar,“ sagði Valur Bogason, útibússtjóri hjá Hafrannsóknastofnun í Vestmannaeyjum, í samtali við Fiskifréttir en Valur hefur stjórnað rannsókn á sandsílum undanfarin ár.

 


Eining og samstaða sjálfstæðismanna

er einstök. Sumir Þeirra vita nákvæmlega allt um það að rétt sé að sækja um inngöngu í ESB á meðanFundur hinir eru með algjörlega á hreinu að það sé hin mesta þvæla...Whistling Það er ekki nóg með að sjálfstæðisflokkurinn sé klofinn og í henglum í borgarstjórn, heldur er hann líka klofinn á alþingi...Shocking Er ekki tímabært að gefa þessum einkavinavæðingarklúbbi pásu og henda honum út í horn...Cool
mbl.is Geir: Ég vil ekki ganga í ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú er sérlega heppilegt

að við höfum gríðarlega öflugt, stórt og trúverðugt fjármálakerfi. Það er jú það sem átti að vega upp áAflaverðmæti í mínus móti niðurskurðinum á þorskkvótanum. Það er nokkuð öruggt að aflaverðmætið heldur áfram að lækka og ef fjármálamarkaðurinn er skoðaður í dag þá dregst aflaverðmætið enn hraðar saman með styrkingu gengisins.

Stórútgerðin er vælandi eins og stunginn grís, hvernig í ósköpunum stendur á því? Við erum jú einu sinni með besta og flottasta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi sem er svo hagkvæmt og arðsemin einstök, svo ekki sé nú talað um hvað þessi dásemd er einstaklega sjálfbær. Svona er Ísland í dag.

Góðar stundir. 


mbl.is Mjög dregur úr aflaverðmæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og hvað með það.

Eigum við að vorkenna einhverjum hér? Einnig er varla hægt að vorkenna leigutökum laxveiðiánna,Laxveiði verðlagningin er fyrir löngu síðan komin upp fyrir allt sem kallast getur meðalhóf.
mbl.is Stórlaxar Glitnis hætta við laxveiðina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Björn Bjarnason gengin í Vinstri Græna?

Það er engu líkara en Björn Bjarna og Steingrímur J séu loksins orðnir sammála. Í það minnsta er BjörnBjörn Bjarna á móti því að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um breytingar á stjórnarskránni. Það vita það allir að Steingrímur J er á móti öllu, sama hver andskotinn það er, þá bara er hann á móti því. Það kemur sjálfsagt sá dagur að Steingrímur J verður á móti sjálfum sér.

Björn Bjarna er að nálgast vin sinn Steingrím J á mjög skemmtilegan hátt, það er að segja að vera á móti málefninu. En nú vaknar spurning hjá mér. Er hægt að breyta stjórnarskránni bara sí svona eftir geðþótta ríkisstjórnarinnar? 

Valgerður Lómatjarnartrukkur talaði um það á alþingi í dag að ef það þyrfti að breyta stjórnarskránni þá væri það bara ekkert mál þá yrði það bara gert. Þarf ekki að samþykkja breytingar á stjórnarskránni á alþingi og síðan eftir næstu kosningar þá þarf aftur ákveðinn meirihluta á þinginu til að breyting geti átt sér stað á stjórnarskránni?

Reyndar kemur það ekkert á óvart að Björn Bjarna og hans flokksmenn sú á móti þjóðaratkvæðagreiðslu. Það eru allt of lýðræðisleg vinnubrögð sem eru algjörlega óþekkt í þeim flokki.


mbl.is Á móti þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaninn í ruglinu.

Hvalur að koma uppFrétt á mbl.is

Hópur þingmanna í fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur lagt fram ályktunartillögu þar sem segir að Bandaríkin eigi að beita öllum viðeigandi aðferðum til að binda enda á hverskonar hvalveiðar í atvinnuskyni, þar á meðal hvalveiðar í vísindaskyni, til aðHvalskjaftur tryggja verndun hvalastofna. Frétt lýkur.

Kaninn stundar og hefur alltaf stunda hvalveiðar og er sú þjóð sem veiðir hvað mest af hvölum. En auðvitað eiga allir aðrir en þeir að hætta hvalveiðum, þvílík helvítis hræsni í þessu alheimsdrottnurum. Að hætta hvalveiðum þíðir einfaldlega eitt, hvalurinn étur okkur út á gaddinn. Hvað gera bændur þá, ekki fáum við vinnu í bönkunum...Wink


mbl.is Ályktun gegn hvalveiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband