Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ég sem hélt að þetta væri

raeningjar.jpgfréttatilkynning frá Líú!!!! Nei þá er það einhver leiklistarkofi sem er í bobba með sínar skuldir. Mín faglega ráðgjöf í þessari smá krísu sem þessi leiklistakofi er í er einföld, hringið á Árna Vestmanneying hann verður ekki lengi að redda þessu, með smávægilegum tæknimistökum má afskrifa ótrúlegar upphæðir og er Vestmanneyingurinn sagður nokkuð lunkinn í tæknilegum mistökum.

Góðar stundir.


mbl.is Litlar líkur á að takist að greiða niður uppsafnaðar skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk afleyðing

væri réttnefni á þetta fyrirbrygði og nýjasta gælukompaní töffaranna. Ég bara spyr er allt hægt í þessu bananalýðveldi?

Góðar stundir.


mbl.is 365 verður Íslensk afþreying
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það muna öllu að vera hundvanur og

rjupa_733014.jpgvel útbúinn. Þá villist maður á mun öruggari hátt og ekki skemmir fyrir að vera svo vel útbúinn að búnaðurinn þvælist fyrir öllu sem heitir heilbrigð skynsemi. Annars kemur þetta á óvart og ætti að flokkast sem stórfrétt, þetta gerist svo sjaldan...W00t

Það er svona svipað með þetta og brottkastið, hvorutveggja er nánast óþekkt...Whistling

Góðar stundir.


mbl.is Rjúpnaskyttu leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Byrjað á því að hengja sveitarstjóra fyrir örfáar millur

og alvöru bófum er sleppt enda eins og oft er sagt þá borgar sig ekki að vera með eitthvað helvítis hálfkák, það á að gera hlutina almennilega og ekkert helvítis rugl. Taka nokkra milljarða það er málið og allir eru svo sáttir að fjölmiðlar sjá ekki nokkra ástæðu til að fjalla ýtarlega um málið.

Nei þá er það meira atriði að fjalla vel og vandlega um mannlegan harmleik sem átti sér stað á lítilli eyju lengst norður í ballarahafi yfir örfáum millum. 

Frétt af visir.is er hér fyrir neðan.

Glitnir þarf að afskrifa 13 milljarða vegna Stíms.

mynd

Kvótakóngurinn Jakob Valgeir Flosason er skráður sem eigandi og eini stjórnarmaður Stím ehf sem fjárfesti fyrir tæpa 25 milljarða í Glitni og FL Group í nóvember á síðasta ári. Nú, rúmu ári seinna, hefur félagið tapað 13 milljörðum, milljörðum sem Glitnir þarf að afskrifa.

Stím keypti fyrir 16 milljarða í Glitni í nóvember á síðasta ári og átta milljarða í FL Group. Heimildir Vísis herma að Stím hafi keypt bréfin í báðum félögum að stærstum hluta af Glitni sem hafi á móti lánað félaginu tæpa 25 milljarða.

Stím seldi bréf sín í Glitni seinni hluta marsmánaðar á þessu ári með um fimm milljarða tapi. Kaupendur voru eftir því sem Vísir kemst næst Danske Bank og Glitnir. Jafnframt skipti Stím bréfum sínum í FL Group fyrir 0,87% hlut í Glitni þegar FL Group varð einkahlutafélag. Sá hlutur tapaðist þegar Glitnir var þjóðnýttur.

Heimildir Vísis herma að bankinn hafi ekki farið fram á neinar persónulegar ábyrgðir gegn þessu gríðarstóra láni heldur hafi aðeins verið tekið veð í bréfunum í Glitni og FL Group. Bankinn mun því væntanlega þurfa að afskrifa 13 milljarða vegna Stíms-ævintýrisins.

Jakob Valgeir, sem rekur útgerðarfyrirtækið Jakob Valgeir á Bolungarvík, hefur þráfaldlega neitað að tjá sig um málefni Stím þegar eftir því hefur verið leitað. Þórleifur Stefán Björnsson, forstöðumaður fjárstýringar Saga Capital, var í stjórn Stíms með Jakobi Valgeiri þar til í lok ágúst á þessu ári þegar hann sagði sig úr stjórn. Þórleifur Stefán, sem var jafnframt prókúruhafi, vildi ekkert tjá sig um Stím þegar samband var haft við hann. Þórleifur Stefán sagðist vera bundinn trúnaði við viðskiptavini.

Már Másson, upplýsingafulltrúi Glitnis, sagði í samtali við Vísi að hann gæti ekki tjáð ekki tjáð sig um málið þar sem það væri ekki á færi bankans að tjá sig um viðskiptavini hans á hverjum tíma. Frétt lýkur. Svo er aðeins meira um þetta einkennilega mál eða eigum við að segja rán hér.

Dæmi nú hver fyrir sig.

Góðar stundir.

 


mbl.is Fyrstu skrefin stigin út úr kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er okkur ekki sagt, hverju er verið að leyna?

Ef við skoðum bréfið til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins þá kemur það í ljós að fjárþörfin er gríðarleg, um þetta hefur aldrei verið talað, hvers vegna? Hér fyrir neðan er lesning úr þessu bréfi.

Utanaðkomandi fjármögnun.

    24.      Hrun bankakerfisins hefur leitt af sér talsverða þörf fyrir erlent lánsfé. Við gerum ráð fyrir að þessi þörf sé 24 milljarðar Bandaríkjadala á tímabilinu til loka ársins 2010. Þar af eru um 19 milljarðar vanskil vegna skulda yfirteknu bankanna þriggja, svo og fjármagn til að gera upp nauðsynlegar greiðslur tengdar erlendum innstæðum, en afgangurinn er sjóðsþörf að fjárhæð 5 milljarðar Bandaríkjadala. Við gerum ráð fyrir að 2 milljarðar Bandaríkjadala fáist með láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum sem skilur eftir afgangsfjárþörf er nemur 3 milljörðum Bandaríkjadala. Við gerum ráð fyrir að þetta bil verði brúað með tvíhliða lánssamningum og munum ljúka viðræðum þess efnis áður en stjórn sjóðsins tekur mál okkar fyrir. Mat á því hvernig gengur að mæta fjárþörf okkar verður hluti af ársfjórðungslegum endurskoðunum okkar og sjóðsins.

Góðar stundir.


mbl.is IMF samþykkir lán til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafró getur tæplega skrifað upp á þetta

_orskar_731826.jpgog Líú hlýtur að fordæma svona vinnubrögð með stjörnuljósið sitt Kristján Þórarinsson stofnvistfræðing í farabroddi.

Góðar stundir.


mbl.is Samkomulag um vernd þorskstofnsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nafnið á þessum fjárfestingarsjóð er

mjög athyglivert. Til hvers voru menn að breyta fyrsta stafnum í nafninu í A, af hverju töldu menn nauðsynlegt að taka E í burtu og setja A í staðinn? Setjum E í staðinn og þá erum við komin með réttnefni Excel, það virðist vera svo að Excel forritið hafi verið notað til að blekkja almenning til að leggja sparifé sitt í hítina sem nú er brunnið til ösku og enginn kannast við neitt hvað þá heldur að einhver beri á þessu nokkra ábyrgð.

Góðar stundir.


mbl.is Danskur fjárfestingarsjóður að kaupa Sterling
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður Frjálslynda flokksins að

vakna, hann hefði að ósekju mátt berja mikið fyrr, oftar og fastar í borðið.

Ríkisstjórnin á að segja af sér

mynd
Guðjón A. Kristjánsson.

„Ef þetta er satt ætti ríkisstjórnin að segja af sér. Þá hefur hún logið bæði að þingi og þjóð," segir Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjálslyndra, um þau orð Davíðs Oddssonar að hann hafi varað ríkisstjórnina við stöðunni í efnahagsmálum í febrúar.

Guðjón segir merkilegt að skýrslan hafi verið haldið leyndri fyrir stjórnarandstöðunni. „ Það er líka merkilegt að þeir í Seðlabankanum líti bara á sig sem Seðlabanka ríkisstjórnarinnar en ekki þjóðarinnar. Þetta er skrítin stjórnsýsla," segir Guðjón.

Frétt, Fréttablaðið, 19. nóv. 2008 04:45

Góðar stundir.


Til hamingju Guðjón

gu_jon.jpgÞú ert hetja sem sýnir það og sannar að það er allt hægt ef viljinn er til staðar. Það þarf enginn að efast um það að þú verður frábær formaður MND.

Gangi þér allt í haginn í nýja starfinu, þú ert frábær fyrirmynd sem hefur lagt þessu málefni til ómetanlegt framlag með æðruleysi, óeigingirni og dugnaði.

Góðar stundir.


mbl.is Formaður Alþjóðasamtaka MND
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mr. Gissurarson is a board member of Iceland's central bank and a professor of political philosophy at the University of Iceland.

Vil einhver þarna fyrir sunnan gera mér smávægilegan greiða? Taka tölvuna, prentar og faxtæki af þessum preláta og gefa honum gamla ritvél. Það er ekki hægt að nettengja þær og þá segir sig sjálft að hann veldur minni skaða í framtíðinni.

Ég sakna þess reyndar svolítið að heyra ekkert frá Hannesi um það sem hann kallaði frábæra uppsprettu á dauðu fjármagni sem íhaldið náði að vekja duglega upp af dauðadáinu. Þeir vöktu það reyndar svo duglega upp að það er nánast búið að éta heilt þjóðfélag upp til agna.

Dauða fjármagnið hans Hannesar var einfaldlega óveðsettar aflaheimildi sem eru sameign þjóðarinnar, nú þegar Líú nota bene flokksfélagar Hannesar æða á hvern neyðarfundinn á fætur öðrum betlandi um aðstoð vegna þess að dauða fjármagnið sem blásið var svo duglega til lífsins er að hakkar þá í sig eins og hungraðir þorskar á þurru landi steinheldur Hannes kjafti um þessa frábæru uppgötun.

Heitir þetta ekki að taka sjálfan sig í ósmurðan afturendann og hagræða sér á hausinn?

Góðar stundir.


mbl.is Seðlabanki á hryðjuverkalista
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband