Hvað keypti Glitnir?

Gamlar hálfónýtar innkaupakerrur í Bónus og gömlu sætin sem skipt var út í flugflota FL. Ekki hafa þessir snillingar farið að láta einhver raunveruleg verðmæti af hendi í þessum viðskiptum, það væri andstætt viðskipta og siðareglum þessara manna.

Góðar stundir.


mbl.is Glitnir keypti hluti í verslanakeðjum af Baugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auðvitað skilur fólk þetta mæta vel Halldór!

Fólk er nefnilega ekkert fífl, það skilur mæta vel þegar það á að borga meira þótt það skilji ekki nokkurn skapaðan djöf...... hlut þegar það stendur í kjörklefunum og skýs ykkur ónytjungana ár eftir ár eftir vel heppnaðan heilaþvott vikurnar á undan kosningum.

Eina spurningin sem þú þarft að fá svar við Dóri minn er hvort fólkið sem þú vilt endilega pína meira með þessu skattabrjálæði þínu vilji búa með þér í sveitarfélaginu. Ríkið er með áform um skattahækkanir, sveitarfélögin fylgja eins og hundur í bandi á eftir og vilja meira, en hvað gerir fólkið?

Ég hef trú á því að fólkið sem þú Dóri minn og Geir vinur þinn vilja með öllum tiltækum ráðum pína meira með skattahækkununum, bregði undir sig betri fætinum og yfirgefi deyjandi partíið enda mun betri þynnkumeðul á betra verði í boði hjá nágrannaþjóðum okkar.

Góðar stundir.


mbl.is Þyngri álögur á íbúa?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er Steingrímur J. að rífa kjaft?

Sjá hér. Veit Steingrímur J. ekkert af því að menn mega ekkert vera að því að hugsa um svona smotterí? Það þarf að bjarga nokkrum smáatriðum áður en menn fara að hugsa um þetta skitna smáræði sem Steingrímur J. er að reyna að blása upp sem eitthvað stórmál og nefnist eftirlaunafrumvarp.

Það náttúrulega segir sig sjálft að sjálftökuhjörðin verður að fá eitthvað fyrir sinn snúð þegar að starfslokum kemur eftir mjög svo erfiða og ábyrgðarmikla vinnu fyrir okkur almenning. Ekki getum við verið svo miklir hræsnarar að ætlast til þess að sjálftökuhjörðin verði að sæta sultarkjörum í ellinni eins og hver annar sótsvartur kengboginn gjaldþrota þræll?

Nei þannig þegnar erum við hreint ekki, við hugsum vel um sjálftökuhjörðina sem svo sannarlega á allt gott skilið fyrir frábær störf í þágu þjóðarinnar. Að koma okkur aftur á torfkofatímabilið í hvelli er sko ekkert smá afrek og ber að launa ríkulega með í það minnsta fjórföldum meðallaunum torfkofahyskisins sem kann ekkert gott að meta.

Steingrímur J. ætti að skammast sín, aðför að sjálftökuliðinu sem staðið hefur sig svona einstaklega vel að það jaðrar við heimsmet (klárlega heimsmet miða við sauðhausatölu) er smánarlegt skítatrykk örflokksins í vinsældaraukningu á kostnað sjálftökuflokksins.tala_me_afturendanum_721849.jpg

En þetta er svo sem alþekkt hjá Langanesundrinu, flauta með afturendanum og hugsa svo mörgum vikum seinna ef það er þá yfir höfuð gert.

Góðar stundir.


Hafa þeir ekki efni á

kiss_my_ass.jpgað láta prenta úr uppgjörið? Kreppan fer sannarlega illa með marga, ímeilið mitt er á síðunni og ég á smá blek og nokkur blöð eftir í prentaranum, koma svo sendu mér bara draslið Gummi og ég prenta þetta út for nothing.

Þetta er aumasta afsökun sem ég hef heyrt lengi, hvað þarf að fela núna?

Góðar stundir.


mbl.is SPRON frestar birtingu uppgjörs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjan gjaldmiðil STRAX. Mynd af nýja gjaldmiðlinum

gjaldmi_ill.jpgÞað er ekkert svo fráleitt að notast við þennan gjaldmiðil þar sem búið er að dúndra okkur út af landakortinu. Allar helvítis áhyggjur af krónu, evru og dollar verða einfaldlega fyrir einhvern annan.ullartaefan.jpg

Greiningardeildir bankanna verða til dæmis rúningsdeildir. Þar getur til dæmis rophænan Edda Rós verið yfirrúningskjella. Henni líkar í það minnsta vel við ullina.

Góðar stundir.


mbl.is Ný bankaráð skipuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skíturinn heldur áfram að birtast og

skiturinn.jpgþað virðist enginn endir vera á þessu. Eru menn svo hissa að Bretar séu brjálaðir SJÁ HÉR?

Mín skoðun er sú að menn séu búnir að drulla djöfull stórt og styggja því miður aðeins fleiri en margan grunar.

Góðar stundir.


mbl.is Geir staðfestir pólska aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Klæðnaður stjórnar VR á fundum

klani.jpger væntanlega svona. Við vitum núna hverjum er fórnað á fundum klansins. Því miður þá hef ég ekki enn fengið mynd af búningi yfir foringjans.

Góðar stundir.


mbl.is Klanið burt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hollendingar ríða eins og vitleysingar

um leið og ljósin slokkna. Ef eitthvað er að marka þetta þá er eins gott að menn vandi sig betur í fluginu þarna. Nokkur svona slys og Kínverjar verða ekki lengur fjölmennasta þjóð heims.W00t

Góðar stundir.


Haldið á sjóinn með fullan poka af ljósaperum.

nedansjavarmynd_af_ljosatrollinu_721020.jpgTækninni fleytir stöðug fram og takmörkin er nánast engin. Nú er verðið að gera tilraunir með áhrif ljóssins á hegðun fisks. Er hægt að smala fiskinum með ljósi eins og sauðahjörð inn í rétt, sjá hér?

Nú vitum við það að fiskurinn bregst við náttúrulegri birtu og hegðar sér oft í samræmi við ljósið sem að ofan kemur, en þrátt fyrir það virðist fiskurinn haga sér mun meira í takt við straumskilyrði og velja sér svæði eftir botngerð frekar en einhverju öðru.

Hvað það er nákvæmlega sem hefur áhrif á hegðun fisksins sem veiddur er á grængolandi dýpi þar sem myrkrið er algjört allan sólahringinn er ekki gott að segja en þar virðist straumur, tími og tunglstaða hafa mikið að segja. Á grynnra vatni bregst fiskurinn klárlega við birtu og stórkostulegar breytingar á hegðun hans eftir mismunandi birtu eru oft á tíðum óþolandi ráðgáta og í rauninni ótrúlegt samspil náttúrunnar, sem er eins og margt annað eitt af því sem gerir þetta að þrælspennandi dulheimum.

Það er reyndar nánast vonlaust að lýsa þessum dulheimum og háttarlagi íbúa hafdjúpanna hér í nokkrum orðum, þetta var svona smávægileg útskýring á annars stórbrotnu umhverfi sem við eigum langt í land með að þekkja með einhverri vissu .

En að fréttinni aftur, ef hægt er að smala fiskinum svona saman þá er komin fram ótrúlegt sparnaðar tækifæri í veiðarfærakostnaði. Í stað þess að skrapa botninn með tilheyrandi áhættu á að hengil rífa drusluna, er einfaldlega mokað ljósum á fótreipið eins og höfuðlínuna og trollið látið svífa hljóðlega yfir botninum.halfrafvirki.jpg

Þetta leiðir svo af sér annan sparnað hjá útgerðinni, ekki þarf að borga aukahluti fyrir netamenn. Netamenn eru sem sagt deyjandi stétt og í stað þeirra koma harðduglegir hálf rafvirkjar þrautþjálfaðir í peruskiptum þegar þær springa með tilheyrandi útleiðsluáhættu.

sparperur_721025.jpgÍ stað þess að vera með netageymslur yfirfullar af glæpsamlega dýrum netastykkjum og trollgarni af öllum heimsins gerðum og sverleika þá er haldið á sjóinn með fullan poka af sparljósaperum...Wink

Góðar stundir.


Þjóðernishreinsanir á Íslandi

Í mannkynssögunni má lesa um stórfelldar þjóðernishreinsanir og nánast undantekningalaust er þetta gert í baráttu sem rekin er áfram af græðgi og valdafíkn. Heilu þjóðarbrotin og ættbálkar eru settir á listann sem ekki þykir þóknanlegur samfélaginu. Lagt er af stað og útrýmingin hefst með smávægilegum og lævísum brögðum sem lítt eru áberandi á alþjóðavísu.

Undantekningarlaust enda svo þessar hreinsanir með ógeðfelldu blóðbaði, heilu samfélögin rekin á vergang reynandi með öllum mætti að flýja, einnig eru margir teknir og hnepptir í þrælkun, konur teknar og notaðar sem útrásartæki fyrir vitfirrta brjálæðinga í formi nauðgana og barneigna svo viðhalda megi viðbjóðnum með nýjum og betri genablönduðum brjálæðingum.

Þetta þekkjum við vel og nánast árlega berast fréttir af svona aðförum og nánast undantekningalaust er það blásaklaust fólk sem lendir í þessu. Á Íslandi er þjóðernishreinsun búin að vera við lýði nánast allan þann tíma sem kvótakerfið hefur verið við lýði. Eins og í öðrum ríkjum sem þessa iðju hafa stundað byrjar þetta með smávægilegu og lævísum brögðum, kvótinn er fluttur í skömmtum frá byggðarlögunum þangað til að ekkert er eftir og fólkið situr eftir skuldum vafið í verðlausum eignum.

Gjaldþrota kengbeygðir þegnarnir steinhalda kjafti í skömm sem þeir áttu engan þátt í vonandi að í næstu viku komi betri tíð eftir loforðaræður þeirra sem hreinsuninni standa fyrir. Nú ber svo við nýjan tón í þessum hreinsunum, við getum notað þetta í fleirtölu og talað um þjóðernishreinsanir. Hér búa fleiri en bara Íslendingar, við höfum hin ýmsu þjóðarbrot sem hafa reynst þessu landi frábærlega vel í flestum tilfellum og unnið fyrir okkur þau störf sem landinn telur fyrir neðan sína virðingu svo sem fiskvinnslu og ræstingar svo eitthvað sé nefnt.

Erlent vinnuafl er lagt á stað í stórflótta frá landinu og fátt virðist geta komið í veg fyrir stórkostulegan landflótta Íslendinga frá landinu. Og ástæðan er í sjálfum sér ekkert svo flókin, vaxtastefna stjórnvalda er af þeim toga að nánast ekkert lifir af sama hvort talað er um einstaklinga eða fyrirtæki, verðbólga og verðtrygging lána sér svo um að fullkomna verkið.

Hvor þessu á svo eftir að fylgja blóðbað er ekki gott að segja, en einlægur vilji stjórnarinnar er fyrir því að stofnaður verði einkaher sem verja á auðvaldsstefnuna og græðgiguttana sem henni stjórna. Það er alþekkt í ríkjum sem þjóðernishreinsanir stunda að halda uppi einkaher sem sér um að verja sig og sína nánustu fyrir æstum almúganum, sem í sakleysi sínu vil fá þann sjálfsagða og stjórnarskrárvarinn rétt sinn sem er að lifa sómasamlegu og friðsælu lífi í landinu sem það var svo stolt af.

Nú mætti spyrja sig hvernig Björn hershöfðingi hefur hugsað sér að beita einkahernum. Sjáum við til dæmis fyrirmynd Austur - Þýskalands sáluga, þar voru þegnarnir skotnir á færi í sakleysislegri viðleitni sinn fyrir betra lífi með því að reyna flótta yfir landamæragirðinga og vegginn fræga. Stórskotalið Björns við Leifsstöð, á öllum bryggjum og flugvöllum landsins er ekki heillandi framtíðarsýn þeirra sem flóttann velja fyrir betra lífi.

Góðar stundir.


mbl.is VG krefst afnáms eftirlaunalaga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkalýðsforustan er ekki fyrir verkafólk

Það undirstrikar Gunnar Páll duglega með gjörðum sínum. Verkalýðsforustan hefur fyrir löngu síðan steingleymt hlutverki sínu og lætur það yfir sig ganga að lámarkslaun á Íslandi séu undir hungurmörkum. Eina sem gæti komið verkalýðsforustunni aftur inn í...

Amma íhaldsins er fundin

og ver að sjálfsögðu hjörðina sína með kjafti og klóm sjá hér . Góðar stundir.

Fálkaorðuna á snillinginn sem

skipti seðlinum og flengja fábjánann sem tók við seðlinum með hálfvitaorðunni. Góðar stundir.

Ég bara einfaldlega

nenni ekki að tjá mig um þennan leik, góða nótt. Góðar stundir.

Það hriktir víða, myndband af heimatilbúnum skjálfta

Er nema von að eitt stykki skjálfti skuli ríða yfir þegar allt leikur á reyðaskjálfi í þjóðfélaginu. Svona gengu menn um og komu að stað risavöxnum skjálfta. Skoðum seinni hlutann líka. Góðar stundir.

Nú hafa rúmlega 200 þúsund einstaklingar heimsótt

þessa síðu og færslurnar eru rétt tæplega ellefu hundruð. 10 Apríl á síðasta ári byrjaði ég með þessa síðu og það er ekki úr vegi að setja hlekk á fyrstu færsluna, það kemur kannski ekki á óvart um hvað hún fjallaði en hana má lesa hér . Það er ótrúlegt...

Brot á Íslenska

fiskveiðistjórnunarkerfinu eru framin daglega allt árið og nánast um borð í hverju einasta skipi. Fiskveiðistjórnunarkerfi Færeyinga er sennilega eitt það skilvirkasta kerfi sem fyrir finnst í Norðurhöfum. Góðar

Prinsessan á bauninni fær sérmeðferð að hætti

íhaldsins. Inga Jóna Þórðardóttir eiginkona Geirs Haarde trónir í hásæti íhaldsins og situr ekki auðum höndum. Íhaldið sér skratti vel um sig og sína, Inga Jóna tók á fimmtudaginn var við stjórnarformennsku Listahátíðar og eitthvað eru menn ekki alveg...

Hannes Hólmsteinn klappstýra íhaldsins

sér á einhvern undurfurðulegan hátt fulla ástæðu til að uppnefna forseta Íslands og líkja honum við klappstýru SJÁ HÉR . Hvað Hannesi gengur til er ekki gott að segja en sennilega dettur Hannesi það eitt í hug að þetta mætti nota sem útpælda...

Stjórn og framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

hljóta að vera himinlifandi yfir fréttum á borð við ÞETTA og þessa FRÉTT HÉR og meira HÉR . Þetta eru sjálfsagt bara brot af því sem gert hefur verið. Aðrir hugsanlegir lánveitendur hljóta einnig að hugsa sinn gang í framhaldi af þessum fréttum. Hver...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband