sun. 14.6.2009
Þetta er bara byrjunin
á þessari tegund af herlegheitunum.
Af hverju hefur ekkert verið talað um þá sem fengu afgreiðslu og aðstoð hjá byggðarstofnun við að halda í sér lífinu tímabundið?
Sú stofnun er að mér skilst á hnjánum í dag og handónýtt fyrirbrygði sem þjónar ekki á nokkurn hátt því hlutverki sem hún ætti að gera.
Það eru því miður til svakalega dökkar hliðar á þvælunni sem skekið hefur sjávarútveginn á liðnum árum og öllu eftirlitsapparatinu í heild sinni.
Undantekningalaust skal það svo vera sárasaklaus almenningur sem er látinn borga brúsann.
Það væri gaman að heyra hvernig ákveðinn ráðherra Samfylkingarinnar útskýrir hans þátt í því að byggðarstofnun var skipað að afgreiða fyrirgreiðslur til dauðvona útgerða.
Ég hélt að regla númer eitt væri haldbært veð fyrir lánafyrirgreiðslu, var það svo í þessum tilfellum?
Hver var að tala um að smávægilegar breytingar kæmu öllu á hausinn í hvelli?
Því miður þá þurftu þessir gæðingar enga aðstoð, meira og minna gerðu þeir þetta hjálpalaust staurblindaðir af gróðafíkn sem á sér engin takmörk.
Góðar stundir...
Skip og veiðiheimildir í nýtt félag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
lau. 13.6.2009
Á að vorkenna samviskulausum?
Fyrir nokkru skrifaði ég færslu þar sem enginn var nafngreindur og ekkert fyrirtæki nafngreint sjá hér.
Fljótlega kom í ljós að nokkuð margir könnuðust við málið sem fór svo eins og eldur í sinu um veraldarvefinn.
Ég get svo sem ekki sagt að það hafi komið mér verulega á óvart þar sem ansi margir áttu um sárt að binda eftir það sem þeim var gert á vægt til orða tekið svínslegan hátt.
Nú nýlega var sett athugasemd inn á síðu hjá einum af þeim einstaklingum (konunni minni) sem lentu í þessu drullumalli hjá vinnuveitanda sínum.
Þessa athugasemd ætla ég að birta hér fyrir neðan með öllum upplýsingum sem athugasemdinni fylgdi, þið sem eruð á annað borð með síður hér vitið nákvæmlega hverjar þær eru.
Guðbjörg Ásgeirsdóttir gerðu þér grein fyrir því að ef þú setur eitthvað inn á veraldarvefinn þá má finna á einfaldan hátt hver þú ert, hvar þú býrð og málpípa hvers þú ert.
Guðbjörg: Sæl Huld
Ég er sammála þér í því að það er leiðinlegt hvernig fór fyrir ZikZak, að það skyldi ekki vera hægt að borga út laun síðasta mánuðinn. Berglindar sök er að mestu leyti sú að hún reyndi of lengi að halda þessu á floti eins og margir gera í hennar sporum. Þú segir að þú fáir jafnvel ekki atvinnuleysisbætur um næstu mánaðarmót, það þykir mér meira en lítið skrítið, það er nóg að vera atvinnulaus til þess, fyrirtækið sem þú vannst hjá, þarf ekki að vera gjaldþrota. Hins vegar færð þú ekki uppsagnarfrestinn, síðasta mánuðinn og orlofið fyrr en fyrirtækið verður gjaldþrota, það er allt annar handleggur. Þú ætlar að berjast fyrir því hlutirnir verða ekki gefnir eftir. Þú þarft ekki að berjast fyrir neinu, það er verið að gera Zik Zak gjaldþrota og þú munt fá þinn rétt, svona hlutir taka tíma, en það veist þú manna best sjálf. Berglind þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort hún missi húsið sitt eða ekki, því að hún veit að hún gerir það. Hitt er verra og það er að mannorðið hefur hún misst og það á hún þér og þínum líkum að þakka. Þú og þínir vinir hafið fengið að ata hana aur óáreitt í Dv, stöð 2 og á barnalandi og ykkar eigin bloggsíðum, þú sjálf komst fram í sjónvarpi og sagðir að maðurinn hennar hefði komið eins og þjófur að nóttu og sótt fötin úr búðinni. Af hverju reyndirðu ekki að afla þér smá upplýsinga áður en þú gerðir það, þú eða fréttakonan hefðuð t.d. getað hringt í leigusalann. Leigusalinn bað um að fötin og dótið yrði sótt, því að hann væri kominn með annan leigjanda, en það hefði nú ekki hljómað vel í sjónvarpinu eða hvað. Dóttir hennar hefur heldur ekki fengið að vera í friði fyrir látunum í ykkur, hennar sök er að setja upp búð og vilja nota Zik Zak nafnið sem hún hélt að hefði góðan orðstír, sem það hafði fyrir þessa aðför. Þið hafið látið að því liggja að um kennitöluflakk sé að ræða, þetta er bara bull, engar eignir eru frá gömlu búðinni í þeirri nýju, þar er bara skiltið og búðarborðið. Gamli lagerinn sem þér er svo annt um Huld mín er allur saman kominn niðri í Mörk ásamt öllu því sem fylgdi rekstrinum og bíður gjaldþrotaskiptanna. Gangi þér vel með fiskbúðina.
Sigurjón lánaði sjálfum sér fé | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.6.2009 kl. 10:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fim. 11.6.2009
Þetta er gróf mismunun og brot
jafnrétti, já gott ef ef ekki mölbrot á kynjakvótakjaftæði öfgafemínistans.
Góðar stundir.
Konur í meirihluta í bæjarstjórn Snæfellsbæjar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 11.6.2009
Hvaða skíthausar skyldu þetta vera?
Við erum að tala um tilræði gegn almenningi og fjárhagslegum stöðugleika heillar þjóðar, sjá allt um það hér.
Ég er með tillögu, fiðrum kvikindin áður en þeim er varpað í svartholið...
Góðar stundir.
Spá kreppu allt til 2015 | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
lau. 6.6.2009
Eru menn algjörlega geggjaðir?
Þennan skuldaklafa berum við akkúrat enga ábyrgð á.
Hvar eru gaurarnir sem stofnuðu til herlegheitanna?
Af hverju ganga þeir lausir?
Það er búið að hneppa okkur í skuldafangelsi, börnin okkar og afkomendur þeirra.
Hvað með kvikindin sem gerðu okkur þetta?
Þarf í alvöru blóðuga byltingu?
Góðar stundir.
Bretar fagna Icesave-samningi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fös. 5.6.2009
Þegar maður er skítblankur
slær maður þá um sig og heldur fund á rándýru hóteli?
Jafnvel þó maður eigi að nafninu til fína fundaraðstöðu sjálfur...
Góðar stundir.
Landsvirkjun fái fé frá lífeyrissjóðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
fim. 4.6.2009
Farðúr bænum Tobbi
Já ef ekki bara úr landi.
Við höfum ekkert við þig að gera, það verður að teljast mjög líklegt að þú og þitt kompaní hafi stundað það í áraraðir að falsa aflaheimildir sem eign sjávarútvegsfyrirtækja.
Það er náttúrulega hreint ekki í lagi þar sem aflaheimildir eru samkvæmt lögum sameign þjóðarinnar.
Hvað eigum við þá að kalla þig og þitt kompaní kúturinn minn?
Góðar stundir.
Hendið þessari hugmynd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 3.6.2009
Endurskrifið helvítis reikningana og sendið mér
þá svo.
Ég krefst einnig leiðréttinga á öllum reikningum eitt og hálft ár aftur í tímann.
Þessir töffarar sjá hér eiga ekki að hafa nein forréttindi fram yfir aðra.
Hvernig stendur á því að þeir sem bera ábyrgð á því að heil þjóð sé nánast gjaldþrota geti sjálfir ákveðið á hvaða kjörum þeir gera upp sinn ósóma?
Á maður þá nokkuð að borga krónu í vexti og verðbætur framar?
Hvað með bílalánið, er þá ekki samgjarnt að það sé borgað eftir gengisvísitölunni eins og hún var þegar lánið var tekið?
Á ekki jafnt yfir alla ganga?
Góðar stundir.
Niðurfelling þýðir kollsteypu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2009 kl. 06:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
sun. 31.5.2009
Því miður þá er þetta bara rétt að byrja
Það er margt sem á eftir að koma upp á yfirborðið.
Eigum við að segja, þetta dæmi er bara lítill dropi af því sem búið er að framkvæma því miður.
Á þetta hefur verið bent lengi, því miður þá hafa margir valið þann kostinn að troða hausnum á bólakaf í sandinn og tjá sig svo með rassgatinu.
Það er ekki nóg með að sumir hafi talað með afturendanum, afturendablaðrararnir leyfðu sér þann munað að slökkva á öllum skilningarvitum og heilbrigðri skynsemi. Blaðrað var eins og enginn væri morgundagurinn og allt í svona helvíti góðu lagi.
Hefur einhver í alvöru tekið þessa útreikninga sjá Excel skjal og pælt í því hvað þetta þýðir? Þetta var reiknað út fyrir einu og hálfu ári síðan, staðan hefur bara versnað síðan og raunvirði aflaheimilda lækkað talsvert og þykir mörgum sjálfsagt nóg um hvað þetta sýnir okkur.
Góðar stundir.
Milljarða skuldir umfram eignir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
sun. 31.5.2009
Hún hlýtur að vera illa soðinn á puttunum
og ekki kæmi mér á óvart að eitthvað beri á skinnflögnun...
Ég sem hélt að kaninn væri einn um að vera svona klikkaður...
Góðar stundir.
222 sinnum á átta tímum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
fös. 29.5.2009
Já sæll Arthur
fös. 29.5.2009
Er í alvörunni endalaus uppspretta
fös. 29.5.2009
Þetta vildi fólk
fim. 28.5.2009
Gjaldþrota Íslenskir víkingar drulla með
fim. 28.5.2009
Hefur þessum bjálfum
mið. 27.5.2009
Gargandi gleði á bænum
sun. 24.5.2009
Eru fljúgandi Tyrknesk teppi smituð
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
lau. 23.5.2009
Ég er með verk í (helgidómnum) eistunum.
lau. 23.5.2009
Hvað eiga þessir töffarar?
lau. 23.5.2009
Hvað dettur ykkur í hug?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
matthias@isholf.is | IP-tala: 217.28.177.57