Brandari desembermánaðar

Hversu aumt á þetta að verða áður en eigendur og stjórn Liverpool gerir þær breytingar sem þarf að gera?

Nú kjöldregnir af botnliðinu.

Leika í öðrum styrkleikaflokki í Evrópukeppni B liða.

Góðar stundir.


mbl.is Portsmouth skellti Liverpool á Fratton Park
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Er ekki kominn tími fyrir Senjor Benítez að pakka niður og flytja suður til Spánar?

Guðmundur St Ragnarsson, 19.12.2009 kl. 16:20

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég hef nokkuð lengi haldið því fram að tími Benítez sé liðinn...

Hallgrímur Guðmundsson, 19.12.2009 kl. 16:26

3 identicon

Já, herra fiskikóngur, þeir fljúga laugardagsbrandararnir hver á eftir öðrum. Fyrst þínir menn í hádegisleiknum og þar næst voru mínir menn teknir í þurrt af miðlungsliði Fullham. Lið sem stillir upp 6 miðjumönnum í leik, þarf að hugsa sinn gang. Fletcher og Carrick í miðverðinum létu sullufót eins og Bobby Samora líta út eins og Lionel Messi. Maður siglir bara inn í jólahátíðina með það mottó að nú hljóti botninum hafi verið náð.

Kveðja í fiskibúðina. 

Mjólkursölumaðurinn (IP-tala skráð) 19.12.2009 kl. 17:01

4 Smámynd: Hjörtur Herbertsson

Já og Villa og Tottenham stefna hraðbyri á eitt af topp fjögur, ætli það verði þá ekki Utd og Liverpool sem detta út af þeim lista?

Hjörtur Herbertsson, 19.12.2009 kl. 17:26

5 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það verður mun auðveldara að hitta ykkur MS gaura á mánudagsmorguninn eftir þennan stórleik United...

Ég geri mitt besta og fer mjúkum orðum um þessi mál við brytann....

Hjörtur við tökum þetta í næsta leik, spanjólinn sagði það þá hlýtur það að gerast ekki satt????....

Hallgrímur Guðmundsson, 19.12.2009 kl. 17:55

6 Smámynd: Sverrir Einarsson

Það mætti halda að Liverpool ætti næst leik við utandeildar lið, fyrst brosmildi ritarinn á von á sigri í næsta leik.

Sverrir Einarsson, 20.12.2009 kl. 02:04

7 identicon

Liverpool eru bara búnir að vera slakir þetta tímabil, væntanlega verða einverjar manabreytingar í jan í liðinu.

En ARSENAL ERU BARA LANG BESTIR........enda mættu þeir á heimavöll Liverpool um dagin og unnu leikin verðskuldað 2-1.....STAÐREIND.

Júlíus Örnn Arnarson (IP-tala skráð) 29.12.2009 kl. 12:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband