mið. 28.1.2009
Og hvað svo, er Keane bjargvætturinn sem leitað er að?
Á Robbie Keane að redda öllu og jafnteflishrinu Liverpool lýkur í kvöld?
Ég verða að vinna og verð þar af leiðandi að treysta á félaga mína hér á blogginu um góðar og hárnákvæmar fréttir af gangi mála og hvernig leikurinn var.....
Ég veit að sumir bíða spenntari en aðrir að láta gamminn geysa hér á þessari síðu ef svo ólíklega vildi til að leikurinn tapaðist...
Rifjum þetta upp fyrir þá sem ekki hafa heyrt þessa frábæra lag, og þið hin ég veit að þið hafið svo endalaust gaman af því að hlusta á þessa enda einstakt í sögunni þegar það hljómar á Anfield og trylltur lýðurinn syngur með...
Góðar stundir.
Keane aftur í hópinn hjá Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 15:03 | Facebook
Athugasemdir
Auðvitað Halli á að spila Keenó eins og hægt er hann skal í gang þessi drengur er stútfullur af greddu og á að vera í liðinu alltaf að mínu mati, ég sakna þess að og krefst þess að miðjumennirnir fái skotleyfi á helv. markið þegar þeir komast nálægt markinu, bæði Torress og Keenó eru snillingar að hirða boltann í frákasti ef markmaðurinn missir tuðruna eða skotið dettur inní boxið. Ég get ekki skilið afhverju að Benni Áttavilti getur ekki fattað þetta afhverju þarf alltaf að hnoðast í gegn. Ps við töpum þessu í kvöld ekki spurning en maður spyr sig samt hvort þessi spádómur minn sé ekki það sem þarf góðar stundir við að þykjast ekki horfa , ég ætla að fylgjast með hverri mín..........LIVERPOOOOOOLLLLLL
Þórarinn M Friðgeirsson, 28.1.2009 kl. 17:49
Hvaða samkynhneigða garg er á þessu bandi hjá þér? Sama orgið og í fræsaranun í Verkmenntaskólanum.
Víðir Benediktsson, 28.1.2009 kl. 21:20
Til hamingju með ykkar menn,púllarar.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 28.1.2009 kl. 21:43
Andskotinn............tómir AULAR. Gengur vonandi betur í næsta leik.
Sverrir Einarsson, 28.1.2009 kl. 21:48
Hellstu fréttir kvöldsins eru að Benítes var fluttur með vælubílnum á sjúkrahús þar sem hann hljóp af JJB leikvanginum og tætti í sig skoskt haggis og sturtaði í sig viskí eins og enginn væri morgundagurinn.
Ólafur Tryggvason, 28.1.2009 kl. 22:01
Benítez?... mér fannst þetta vera Houllier... er hann hættur? til hamingju með stigið... kemur sér vel í vor...
Brattur, 28.1.2009 kl. 22:18
Ég vísa á nýjustu færslu...
Hallgrímur Guðmundsson, 28.1.2009 kl. 23:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.