Okkur er borgið og ekkert að óttast.

skjaldamerki.jpgVið eigum bestu fræðimennina ( Hannes Hólmstein) við eigum bestu hagfræðingana ( sjá hér ) Við eigum besta fiskveiðistjórnunarkerfi í heimi ( kvótakerfið).

Við erum best, við er ómótstæðileg, við erum ríkust allra, við erum öfundsverð.

Við erum Íslendingar, og öðrum ber að hneigja sig fyrir okkur.

Verið góð hvert við annað.

Góðar stundir.


mbl.is Bankaskýrsla undir stól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

Ekki gleyma að við erum hamingjusömust

Hólmdís Hjartardóttir, 15.10.2008 kl. 00:05

2 identicon

og stórasta land í heimi

g (IP-tala skráð) 15.10.2008 kl. 00:13

3 Smámynd: Johann Trast Palmason

"Aðstoðarforstjóri Nordea í Finnlandi, Markku Pohojla, gefur til dæmis opinberlega í skyn að íslensku bankarnir munu fljótlega lenda í miklum vandræðum. Hann gengur jafnvel svo langt að gera því skóna að íslensku bankarnir verði ekki til staðar eftir nokkra mánuði.

Þessi stóru orð finnska bankamannsins byggja ekki á neinni greiningu á íslenskum bönkum. Nýleg ítarleg úttekt á stöðu þeirra og íslenska fjármálakerfisins alls, eftir þá Friðrik Má Baldursson og Richard Portes, gefur til að minnta ástæðu til að ætla að staðan sé tiltölulega góð í alþjóðlegu tilliti.

Ásakanir þessar eru alvarlegar þar sem

þær beinast einnig að íslenskum eftirlitsaðilum. Sérstaklega Fjármálaeftirlitinu en einnig að hluta Seðlabankanum.

Ítarleg greining þessara tveggja lykilstofnanna gefa ekkert annað til kynna en að íslenska bankakerfið sé mjög stöndugt."

Skrifað af og tekið af vef Hæstvirts Viðskiptaráðherra hr Björgvin G Sigurðssonar.

Vefurinn liggur niðri vegna "viðgerða"

Johann Trast Palmason, 20.10.2008 kl. 18:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband