Hvað er að gerast með þessa síðustu leiki?

Ég missti af þessum leik líka, þetta fer að flokkast undir algjört kæruleysi að minni hálfu..Shocking AnnarsHermann og Benayoun ver ég þetta í dag með glæsilegum hætti. Sko ég var búinn að koma mér hagaleg til með allar fjarstýringarnar í sófanum, poppið klárt og kaffikannan innan seilingar. Dýrin á heimilinu voru róuð með hæfilegri matargjöf, sem sagt allt klárt og nú skyldi maður sko njóta dýrðarinnar. Leikurinn flautaður á og ég aleinn í mínum draumaheimi og hlutirnir litu vel út.Wizard ( HALLI, HALLI, þetta hlýtur að vera vitleysa hugsa ég, HALLGRÍMUR, HALLGRÍMUR GUÐMUNDSSON. Ég leit upp og við mér blasir mín ekta frú í ham. Devil) Hvað nú hugsa ég, HVAÐ NÚ bergmálar í stofunni, hva hvernig getur hún séð hvað ég hugsa.Woundering Já hvað nú segi ég er ekki allt í fína í Kína, þessu hefði ég betur sleppt svona aulahúmor virkar ekki á mína þegar hún er kominn á ham.W00t

Ég leit vandræðalega undan og á hetjurnar mínar í imbanum sem voru bara nokkuð sprækir að sjá, já hvað segirðu get ég eitthvað gert fyrir þig elska með hugann við leikinn og þoldi enga truflun. VIÐ ERUM AÐ FARA AÐ KLÁRA JÓLAINNKAUPIN NÚNA. Núna!! má það ekki bíða aðeins, tvisvar sinnum þrjú korter með pissuhléi það hlýtur að sleppa og nú var ég sko öruggur með mig þetta hljómað hreint ekki illa fannst mér. VIÐ KLÁRUM ÞETTA NÚNA ÉG ÆTLA EKKI AÐ LENDA Í ALLRI TRAFFÍKINNI TAKK. Fyrir mér er tíminn frekar afstæður þannig að ég legg til að við drífum okkur bara í fyrramálið.

Hefur maður ekkert lært, núna þíðir sko núna hjá minni?Whistling Eftir að ég var afvopnaðu, það er fjarstýringarnar teknar og birtan sem lýsti svo skært frá 40 tommu imbanum mínum slokknaði og mín ekta frú gerði sig líklega sem aldrei fyrr að lýsa því hvað það væri mikilvægt að klára málin akkúrat núna, stóð ég upp og hundarnir mínir fengu frábæra sýnikennslu í því hvernig hlíða skuli þegar yfirvaldið tjáir sig.Blush Ég er enn að hugsa þetta, af hverju ekki á morgun það var nóg til og litlar líkur á því að það yrði uppselt í búðunum sem við fórum í.Shocking Er ekki örugglega allar sjoppur lokaðar þegar næsti leikur verður?Wink


mbl.is Liverpool sigraði Portsmouth, 4:1 - Ívar skoraði fyrir Reading
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þú átt alla mína samúð Hallgrímur, vegna búðarferðanna meina ég. Hamingjuóskir með úrslitin hinsvegar, þau hljóta að hafa bætt upp sorgina vegna þess að missa af leiknum...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 22.12.2007 kl. 19:06

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Takk fyrir það félagi. Ertu enn í Norge?

Hallgrímur Guðmundsson, 22.12.2007 kl. 19:24

3 Smámynd: Mummi Guð

Ég held að það sé meira svekkjandi að missa af leiknum vegna þess að hann vannst.

Halli það er greinilegt að þú ert vel uppalinn og komir af góðu heimili, þar sem þú ert tilbúinn að fórna Liverpool-leik fyrir búðarferð.

Mummi Guð, 22.12.2007 kl. 20:11

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Svona er þetta Mummi maður gerir allt fyrir þessar elskur, ekki satt? Og þegar hátíð ljóss og friðar er að ganga í garð er maður bara mjúkur.

Hallgrímur Guðmundsson, 22.12.2007 kl. 20:35

5 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Já Halli, hérna verð ég til 6. janúar í svartamyrkri og í góðu yfirlæti. Vantar alveg snjóinn, Þeir Norar segja að þetta sé Íslenskt veður .....

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 23.12.2007 kl. 13:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband