Færsluflokkur: Enski boltinn
fös. 7.3.2008
Hva var það ekki augljóst?
Auðvitað kom enginn annar til greina, Torres er einfaldlega frábær leikmaður. Spurnin hvort það
þurfi nokkuð að velta þessu lengur fyrir sér og titillinn er hans það sem eftirlíður þessu tímabili... 


![]() |
Torres og Moyes bestir í febrúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mið. 5.3.2008
Frábær leikur hjá Liverpool og West Ham
sá aldrei til sólar í leiknum. Torres er svo sannarlega að sanna sig, í kvöld var hann með sína þriðju
þrennu fyrir Liverpool. Ekki veit ég hvar Liverpool væri statt ef þessi drengur hefði ekki komið til liðsins. Annars var liðið í heild sinni nokkuð gott og gaman að sjá flæðið á leikmönnum, Carragher er greinilega ákveðinn í því að bæta fyrir sjálfsmörkin sín það kemur bara í næsta leik...


![]() |
Torres með þrennu gegn West Ham |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 2.3.2008
Liverpool vonandi komið á sigurbraut og
miða við myndina er Babel gjaldgengur í hvaða fimleikafélag sem er.



![]() |
Öruggur sigur hjá Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
lau. 1.3.2008
Ég fæ gæsahúð af vellíðan.
Mér finnst þetta einfaldlega með betri lögum sem ég hlusta á. Það er svo sem ekkert skrítið, það skilja þeir sem upplifað hafa stemminguna á Anfield.
fös. 29.2.2008
Gott að þetta skuli vera frágengið.
Enda er hér á ferðinni frábær leikmaður. Mascherano er búinn að sína hversu megnugur hann er og
vonandi á hann eftir að koma enn öflugri inn í Liverpool liðið.

![]() |
Mascherano gerði fjögurra ára samning við Liverpool |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
mán. 25.2.2008
Ég er og hef alltaf verið...
stoltur af því að halda með Liverpool. Bara svona ef það hefði óvart farið fram hjá einhverjum.
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 00:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
lau. 23.2.2008
Hver andsk.....
Ég missti af þessum leik líka.
það verður einhver að taka það að sér að láta mig vita þegar það eru
leikir hjá mínum mönnum...



![]() |
Þrenna hjá Torres og Liverpool í fjórða sætið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
sun. 10.2.2008
Skárra að gera jafntefli en að tapa!!!!!!!
Benítez á aldrei í neinum vandræðum með að útskýra hlutina með þvílíku kjaftæði að leitun er að öðru
eins. Hvernig væri að hann fari að breyta hugsuninni og krefjast sigurs af sínum mönnum. Með þessu áframhaldi verður sett glæsilegt heimsmet í jafnteflum, það verður kannski einn daginn veitt dolla fyrir það hver veit?

![]() |
Benítez: Tvö töpuð stig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Enski boltinn | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
fim. 31.1.2008
Benítez viss um Evrópusæti...
Auðvitað er karlinn viss um hvað sem er. Bjuggust menn virkilega við því að hann segði eitthvað
annað? Eitthvað er stórkostulega mikið að hjá Liverpool, hvort það snúi að Benítez eða eigendunum veit ég ekki, en leikmennirnir hafa engar afsakanir fyrir hroðalegu áhugaleysi fyrir vinnunni sinni. Það er orðið pínlegt að horfa á leiki með mínum mönnum, enda missi ég af mörgum leikjum það sem tímanum er einfaldlega betur varið í eitthvað allt annað...


![]() |
Benítez viss um Evrópusæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
þri. 22.1.2008
Hver fjandinn er í gangi?
Leikur í kvöld og ég missti af honum, er þetta ekki farið að flokkast undir ábyrgðarleysi hjá
aðdáendum Liverpool að láta mig ekki vita?
Ég hreinlega krefst þess að ég sé látinn vita, vegna áhugaleysis gagnvart dagskrá sjónvarpsstöðvanna fer hver leikurinn af öðrum framhjá mér og þið gerið ekkert í málinu piff...
En hvað um það upp með gamla ungmenningarfélagsandann og koma svo, það gengur bara betur næst...




![]() |
Jafntefli hjá Liverpool og Aston Villa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |