Færsluflokkur: Enski boltinn

Auðvitað var þessu

hafnað. Ef Liverpool ætlar að blanda sér í baráttu hinna bestu þá væri það glapræði að selja Torres.Torres að skora Ekki þori ég að hugsa þá hugsun til enda ef þessi drengur hefði ekki verið með Liverpool á síðustu leiktíð.Wink
mbl.is Segja Liverpool hafi hafnað risatilboði frá Chelsea í Torres
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýtt met sem verður seint

ef þá nokkurn tímann slegið...Wink Enn ein sönnunin á því hverslags snillingur þessi drengur er og hannTorres og meðallúðinn á bara eftir að eflast...Smile Hræðileg tilhugsun fyrir önnur lið í enska boltanum að Liverpool hafi þennan markmanns skelfir í sínum röðum...Frown Þessi mynd var með fréttinni og getur einhver sagt mér hvaða miðlungs gaur þetta er sem troðið var inn á myndina með Torres?Whistling
mbl.is Torres setti met en Ronaldo markakóngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er við hæfi

að kveðja þetta tímabil með ægifögru lagi sem sungið er á Anfield af aðdáendum Liverpool og myndar einstaka stemmingu á þessum frábæra leikvangi. Þangað til á næsta tímabili. Góðar stundir og takk fyrir skemmtileg samskipti um boltann. Og King verður Fram Íslandsmeistari?

Nú tekur við barátta um önnur mál sem ég að sjálfsögðu vona að fari vel...Wink


mbl.is Fulham sigraði, Reading og Birmingham féllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru bara tveir

leikir í Ensku deildinni í dag? United, Chelsea hvað? það vissu allir hvernig þetta færi og ekkertliverpool_2 merkilegt við það,,,Shocking það er nú ekki eins og þeir hafi orðið heimsmeistarar eða hvað???Wink Þetta er fjölmiðlaskandall...Shocking Sko leikur dagsins var leikur Liverpool og Tottenham. Liverpool sýndi afburðarskemmtilega takta og prúðmennsku,,,Halo sem kemur best í ljós að þeir vildu alls ekki niðurlægja leikmenn Tottenham meira en ástæða var til 2 - 0 er vel ásættanlegur sigur og mótherjarnir þurfa ekki að leita sér áfallahjálpar...Cool

Já lesendur góðir Liverpool það er liðið og um það verður ekki deilt á þessari síðu, þið getið haugast til að gera það annarstaðar, punktur...Cool Þras og rugl um fótbolta er ekki liðið hér enda eigandi síðunnar annálað prúðmenni og einstaklega samgjarn í allri umræðu um fótbolta, það er að segja þegar allir eru sammála mér...Tounge Þið sem þurfið að hrauna einhverjum viðbjóði út úr ykkur er bent á dásamlega aðferð, takið stóran svartan ruslapoka og röflið í hann, lokið og hendist eftir notkun...Wink Eftir það eruð þið velkomin hingað með dásamleg lof um hið frábæra lið LIVERPOOL....Cool 

Eftir mikla leit fann ég viðeigandi og risastóra mynd sem tengist meisturunum eitthvað og set ég hana hér inn...Whistling Og þar sem ég er svo glaður í dag enda frábær dagur, Liverpool vann sinn leik,Meistarar Ferrari no 1 og 3 í formúlunni, konan leyfði mér (dró mig nauðugan) á einhverja andskotans myndlistasýningu, og eftir það á kaffihús að þamba einhvern djöf...... viðbjóð sem heitir Cappu eitthvað sem er enn furðulegra nafn og bragðið enn furðulegra en nafnið,,Bjakk þá er nú togarakaffið betra, soðið á hellunni í 10 tíma ummmm það er málið, þá er ekki hægt að sleppa því að óska United aðdáendum til hamingju með þennan stórkostulega árangur. UTD er svo sannarlega verðugur handhafi þessa titils....Cool Ok, UTD aðdáendur mega líka koma með auðmjúkar þakkir hér fyrir mikil skrif og lof um þeirra lið...Wink


mbl.is Manchester United er enskur meistari 2008
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slúðrið og taugastríðið

í hámarki fyrir lokaumferðina. Ekki er ég alveg tilbúinn til að trúa því að liðin sem UTD og Chelsea spilaFréttamynd við láti kaupa sig þannig að úrslitin verði hagstæð og kemur til með að hafa áhrif á hvort liðið verður Englandsmeistari. Menn hljóta að mæta í leikina með því hugarfari að sigur og ekkert annað komi til greina, ég í það minnsta neita að trúa öðru. En á meðan beðið er eftir boltanum er horft á Formúluna á þessum heimili...Smile
mbl.is Úrslitin ráðast í Englandi í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki spurning

næsta tímabil verður tímabil gleði og sigra...Wizard Önnur lið verða einfaldlega að sætta sig við að berjastGoðin um annað sætið...Cool Þið þarna UTD, Arsenal og Chelsea strigastórkjaftar, notið sumarið til að uppfæra frasana þið þurfið á því að halda...Wink
mbl.is Steven Gerrard: Í titilbaráttu á næsta tímabili
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það á greinilega að ljúka

Gargandi Norður Íritímabilinu með talsverðum hvelli. Norður- Íri og Spánverji að rífast,_gimmeakiss það er hroðaleg blanda sem færir menn örugglega ekki nær vitlegri niðurstöðu.

Áður en eitthvað vitlegt kemur út úr þessari deilu verða Ísraelar búnir að bjóða öllum sínum óvinum í grillpartí...Wink


mbl.is Benítez og O'Neill í hár saman
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki veitir af að styrkja

vörnina, gamli ljóshærði jaxlinn frá Finnlandi er farinn að láta á sjá og orðinn frekar hægur. Þá erNæsti varnarjaxl ágætt að fá einn ungan í vörnina og láta gömlu brýnin skóla guttann til áður en þeir hætta. Ég sé það í hendi mér að Liverpool búningurinn fer stráknum mikið betur en þessi sem hann er í...Cool
mbl.is Liverpool með Behrami í sigtinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimsendir ekki á næsta leyti

þótt ég þurfi að leita annað segir Peter Crouch. Það er vel skiljanlegt að sláninn sé orðinn leiður á þvíPeter Crouch að sitja á tréverkinu. Það fer alveg ferlega illa með rassgatið á manni að sitja endalaust á einhverjum andskotans tréfjölum, svo ekki sé nú talað um allan aukatímann sem fer í að hreinsa flísar úr afturendanum.Whistling Vonandi tekur þetta mál enda áður en langt um líður. Þótt karltuskan sé ekkert sérlega íþróttamannslegur í laginu þá má hann nú eiga það að hann er býsna seigur að pota inn mörkum á ögurstundi fyrir Liverpool.Wink
mbl.is Crouch vill fá málin á hreint
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dirk Kuyt og Ryan Babel eru eina raunhæfa

Ryan Babelvon Hollenska landliðsins um að ná langt á Evrópumeistaramótinu í sumar...Cool Þarna sannaði MarcoDirk Kuyt Van Basten hversu stórkostulegur þjálfari hann er með því að velja þessa afburðar leikmenn í hópinn. Enda hefur hann sjálfsagt gert sér grein fyrir því að dagar hans sem landsliðsþjálfara væru taldir ef þessir yfirburðarleikmenn hefðu ekki verið valdir.Wink
mbl.is Marco Van Basten valdi Dirk Kuyt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband