Færsluflokkur: Bloggar
Að það skuli duga að troða sokk eða einhverju drasli í naríurnar til að slökkva á allri rökrænni og heilbrigðri hugsun kvenna er ótrúlegt.... Svo gera þær óspart grín að okkur þessa elskur þegar við gægjumst aðeins á það sem við vorum vandir á í uppeldinu, það er brjóstin. Á því bera konur alla ábyrgð og ekki við okkur að sakast....
Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
fös. 12.9.2008
Þessar myndir er þokkalega táknrænar fyrir þessa frétt.
Er Íslenska viðskiptamótelið að brenna upp?
Góðar stundir.
Forstjóri XL tárvotur í viðtali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 10.9.2008
Ég fékk klukku á kaf í ...........
frá Jóa bloggvini mínum. Þá er bara að byrja og þetta er allt saman hárrétt sem stendur hér fyrir neðan, ég sverða.
Fjögur störf sem ég hef unnið um ævina:
Sjómennska, kokkur, háseti, II vélstjóri, bátsmaður, stýrimaður, skipstjóri.
Sjómennska, kokkur, háseti, II vélstjóri, bátsmaður, stýrimaður, skipstjóri.
Sjómennska, kokkur, háseti, II vélstjóri, bátsmaður, stýrimaður, skipstjóri.
Ræstitæknir.
Fjórar bíómyndir sem eru í uppáhaldi:
Ég fer svakaleg sjaldan í bíó og oftast dotta ég yfir dásemdinni sem er verið að sýna.
Dalalíf
Nýtt líf
Mama Mia
Funny People, þetta eru þær sem myndir sem koma upp í hugann.
Fjórir sjónvarpsþættir sem eru í uppáhaldi:
Deadliest catch á Discovery
Allir dýralífs þættir sem eru í boði.
Fréttir á öllum tiltækum sjónvarpsstöðvum, ég er fréttasjúklingur.
Enski boltinn, leikir með Liverpool, hinir mæta afgangi ef ég hef nákvæmleg ekkert að gera.
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
Stafafell í Lóni
Höfn í Hornafirði
Vestmannaeyjar
Breiðdalsvík
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum:
Þýskaland
Frakkland
Spánn
Búlgaría
Fjórar síður sem ég skoða daglega fyrir utan blogg:
sigling.is
mbl.is
visir.is
dv.is
Fernt sem ég held upp á matarkyns:
Súrar Selshreifar, þessi matur slær allt annað út
Íslenska lambið er ómissandi á þessum lista
Humar að hætti tilraunakokksins Halla
Flest allur fiskur, ekki soðinn það jafnast nánast á við eyðileggingu á hráefninu að mínu mati.
Fjórar bækur sem ég hef lesið oft:
Þrautgóðir á Raunastund, allar bækurnar
Útkalls bækurnar, öll bindin
Stjórnkerfi fiskveiða í nærmynd Eftir Guðbjörn Jónsson
Sven Hazel, allar bækurnar þær eru hrein snilld
Fjórir bloggar sem ég ætla að klukka
King, ég er agalega forvitinn um þennan orðahák
Vilmundur Aðalsteinn Árnason
Páll Guðmundur Ásgeirsson
Hafsteinn Viðar Ásgeirsson
Fjórir staðir sem ég vildi helst vera á núna:
Sá sem er efstur á lista, ég er á honum sem sagt heima hjá konunni.
Spánn
Vestmannaeyjar
Placentia Nýfundnalandi
Góðar stundir.
Bloggar | Breytt 11.9.2008 kl. 00:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
mið. 10.9.2008
Hvar eru náttúruverndarsinnar og allir hvalavinirnir ?
Þetta er nú aldeilis verkefni fyrir þann hóp, það getur ekki talist á nokkurn hátt ásættanlegt að hvalaskömmin valdi þarna meiriháttar umhverfisspjöllum og hroðalegri sjónmengun með þessari sjálfsmorðsáætlun sinni...
Hvalavinirnir gætu sem best mætt á svæðið og talað um fyrir kvikindinu sem hlýtur að vera alvarlega þjakað af þunglyndi eftir mannanna verk, það er að ausa svívirðilega miklu magni af fæðu ræfilsins upp í bræðslu, sem aftur neyðir glorhungrað kvikindið út í þessar sjálfseyðingar aðgerðir...
Góðar stundir.
Hvalur strandaður í Þernuvík | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mið. 10.9.2008
Það er skítalykt af þessu
En hefur það komið fram úr hverju brækurnar eru, það skyldi þó aldrei vera að þær væru meira og minna úr plasti og bótox eins og eigandinn?????... Þið fyrirgefið mér en ég hef ekki geð í mér að setja mynd af þessu Jackson fríki inn á þessa gullfallegu og vönduðu síðu....
Góðar stundir.
Nærbrækur Jacksons til sölu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
þri. 9.9.2008
Hvað er í gangi á Íslandi
Er virkilega ekkert svigrúm til að lækka verð á olíu hér? Hvernig má það vera að heimsmarkaðsverð á olíu hefur hrunið og er komið undir 100 dollara á tunnu og ekkert gerist? Er þetta ekki að verða ágætis rannsóknarefni?
Góðar stundir.
Olíuverð komið undir 100 dali | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
þri. 9.9.2008
Söfnun fyrir Ellu Dís
Hvar er samkennd þjóðarinnar núna? Það ætti að hrinda af stað söfnun fyrir Þær mæðgur, ef einhver á það skilið þá eru það þessar hetjur.
Það stóð ekkert á landanum að safna fyrir atvinnublaðrarann og talsmann íhaldsins Hannes Hólmstein af því að hann átti svo agalega bágt eftir að hafa misnotað aðstöðu sína til persónuárásar á mann út í bæ.
Góðar stundir.
Milljónaskuld eftir læknisferðir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
mán. 8.9.2008
Guð sé lof að ekki fór ver
og stelpu skottið slapp með skrekkinn. En heitir þetta ekki að sturta sjálfum sér niður á fagmáli???...
Góðar stundir.
Sogaðist niður um niðurfall | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
mán. 8.9.2008
Þeir stórslasa einhvern á
endanum með þessu andskotans fikti. Það vantar ekkert upp á flottheitin, tveimur áratugum og 473 þúsund milljörðum seinna nálgast sú stund að 5000 vísindamenn sjá gæluverkefni sitt hugsanlega bombast þráðbeint á bólakaf í afturendann á sjálfum sér.... Við skulum rétt vona að þeir slasi ekki fjölda manns með þessu fikti...
Góðar stundir.
Merkisdagur í vísindunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
sun. 7.9.2008
Náfölar, grindhoraðar og ræfilslegar
grænmetis og grasætur fá heldur betur vopn upp í kríthvítar drullumáttlausar og beinaberar krumlurnar með þessari frétt. Svo er bara spurning hvor einhver kraftur er eftir í grænmetisjórturdýrunum til að þenja sig eitthvað um þetta.
Eitthvað segir mér að dýraverndunarsinnar tvíeflist í ruglinu um að öll dýr skuli vera vinir og vini sína drepur maður ekki sér til matar.
Það er aldeilis með eindæmum hvernig hægt er að röfla, rugla og finna upp hverja delluna á fætur annarri sem heilaga skýringu á hlýnun andrúmsloftsins. Hefur engum af þessu vitringum dottið til hugar að skoða söguna? þá kemur einfaldlega í ljós að jörðin hefur farið í gegnum ísaldar og hlýnunar skeið algjörlega óháð því hvað mannskepna var að gera. Jafnvel löngu áður en Homo Sapiens uppgötvaði eldinn.
Nei takk, kjöt á diskinn minn þegar mig langar og ekki spillir fyrir ef það er hlítt og notalegt veður, þá verður einfaldlega slegið upp garðpartý.
Góðar stundir.
Minni kjötneysla dregur úr hlýnun andrúmsloftsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)