Er alveg sama hvaða bjálfi

er kosinn forseti Bandaríkjanna?

Þeir virðast allir eiga það sameiginlegt að vera stríðsóðir vitleysingar...

Er það í alvörunni þannig að efnahagur Bandaríkjanna ræðst af stríðsrekstri vítt og breytt um plánetuna með tilheyrandi hörmungum óbreyttra borgara sem óhjákvæmilega falla blásaklausir í hrönnum?

Góðar stundir.


mbl.is Obama: Þolinmæðin á þrotum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rispaðir í andlitinu eftir brotlendingu

á brúnni.

Þetta var alveg fyrirsjáanlegt, það var nákvæmlega ekkert í kortunum sem gaf það til kynna að United færi með sigur af hólmi.

Sjáum hér hvernig greiningardeild síðunnar spáði þessum leik.

Nú bíður maður rólegur eftir útskýringum frá skoska hrokatittinum.

Ég verð illa svikinn ef þetta er ekki einhverjum allt öðrum en þeim sjálfum að kenna hvernig fór að hans mati.

Djöfull fer lítið fyrir aðdáendum United, farið að venja ykkur við því svona uppákomum fer fjölgandi og fjölgar hraðar en margan grunar....Whistling 

Góðar stundir.


mbl.is Terry tryggði Chelsea sigur á meisturunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flottur árangur, þetta er alveg að koma strákar !!!!

Er ekki búið að vera með stórfelldan niðurskurð í fiskveiðum í áraraðir til þess að við getum veitt meira seinna?

Árangurinn er frekar rýr, ég handviss um að margir eru mér sammála um það...

Hvenær og er einhver von til þess að við fáum sjávarútvegsráðherra sem þorir að standa í lappirnar og gera það sem þarf að gera?

Það er að stórauka veiðar á flestum tegundum en láta ætið í friði, þar er ég að tala um loðnu fyrst og fremst.

Góðar stundir.


mbl.is Slakur árgangur þorsks og ýsu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er að verða ágætt.

Spurning hver verður arftaki Benna brosmilda....

Góðar stundir.


mbl.is Liverpool í vondum málum - Arsenal stendur vel að vígi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nokkur orð um þetta ævintýri

Hér væri hægt að skrifa langa ritgerð, sleppum því og gefum þessu réttnefni í fáum orðum.

Kjöldregnir á ofurlaunum með gjörsamlega vonlausan yfirmann.

Það sem ég sé gott við þetta er að hugleiðalega les maður á morgun í fjölmiðlum.

Benítez rekinn frá Liverpool og verðu þá fyrsti í sögunni sem rekinn er frá klúbbnum.

Mörgum hefur sjálfsagt ekki dulist það að ég hef frekar litar mætur á spanjólanum og efast stórlega um hæfni hans.

Góðar stundir.


mbl.is Níu Liverpool-menn lágu gegn Fulham
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík heppni

Það þarf þá ekki að kalla til rándýran iðnaðarmann til að smíða skáp undir þessa dollu...Cool

Góðar stundir.


mbl.is Arsenal hafði betur gegn Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þvílík sjálfsblekking

Ætli það láti ekki nærri ef við margföldum þessa tölu Hafró með 18 að við séum að nálgast raunveruleikann.

Allt annað er afneitun og sjálfsblekking af verri endanum.

Þjóðfélagið hefur ekki efni á þessum skrípaleik og hefur aldrei haft.

Góðar stundir.


mbl.is Fiski fyrir hundruð milljóna króna hent í sjóinn í fyrra?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

United hefur hvorki getu né

hæfileika til að vinna Liverpool svo einfalt er það...Cool

Það er líka alveg kristaltært að rauðnefur er hugmyndafræðilega steingeldur þegar kemur að því að ráða fram úr þessum vanda...Cool

Þetta gerist jú fyrir flest alla eldgamla og úrsérgengna hrúta...Whistling

Njótum dýrðarinnar fyrir svefninn, það hafa allir gaman að þessu trúi ég....Smile

Góðar stundir.
mbl.is Sanngjarn sigur Liverpool á Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta segir meira um United

en mörg orð og margir leikir...Cool

Góðar stundir.


mbl.is Benítez: Frábær liðsheild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höldum áfram að grínast

Þetta er að verða svo andskoti hlægilegt. Grínarinn og heimspekingurinn Benni brosmildi er alltaf með það á hreinu hvað fór úrskeiðis.

Hvernig væri að spanjólatitturinn eyddi aðeins minni tíma í að segja okkur hvað klikkaði og einhenti sér í að lagfæra vandamálið.

Ég er reyndar þeirra skoðunar að hans tími sé löngu liðinn.

Góðar stundir.


mbl.is Benítez: Lékum ekki vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það hentar betur

að setja fram svona dauðans dellu. Brottkast hefur ekkert minnkað, og á ekki eftir að minnka neitt. Með stjörnuvitlausum ráðleggingum Hafró um síendurtekinn niðurskurð á aflaheimildum getur brottkast ekkert annað en aukist. Er eitthvað flókið að skilja...

One way ticket to Norway

Þá er ég að tala um framsókn í heild sinn og smella síðan á þá endurkomubanni for lifetime... Góðar stundir.

Greinilega að farast á taugum

þessi aldna hetja... Vertu velkominn á leikvöll ævintýranna, það verður örugglega tekið á móti honum að hætti heimamanna... Góðar stundir.

Pjúff ég hélt að Davíð

hefði skroppið í smá ferðalag... Sem betur fer fyrir umheiminn þá fór hann ekki neitt.... Góðar stundir.

Já góðan daginn...........

Við erum ekkert að tjá okkur mikið um þetta afhroð strákanna frá bítlaborginni. Ritstjórnarstefna síðuritara hefur ekkert breyst fá fyrri færslu og ég ítreka að óvíst er hversu lengi þessi stefna varir. Eitt má þó segja að lokum sem er algjörlega óháð og...

Klikkar ekki á því

frekar en venjulega... Góðar stundir.

Þetta hafðist hjá strákunum

eins og venjulega. Nú með aðstoð mótherjanna. Í þetta skiptið sleppi ég hárnákvæmri lýsingu á stráktittunum frá Manchester sem er alveg glæný stefna hjá síðuritar. Spurning hversu lengi ég held þessari stefnu... Góðar

Skotarnir töpuðu líka !!!

Rangers - Sevilla 1:4 Nacho Novo 88. - Abdoulay Konko 50., Adriano 64., Luis Fabiano 72., Frédéric Kanouté 74. Nákvæmlega ekkert meira um þetta að segja... Góðar stundir.

Skynsamur prins sem veit hverjir eru bestir....

Prinsinn heimskunni og vinsæli Faisal bin Fahd bin Abdullah al-Saud veit hvað klukkan slær. Hann gerir sér fullkomna grein fyrir því að Liverpool er eitt af bestu og frægustu liðum í Englandi, ekki nóg með það þá er Liverpool eitt sigursælasta lið allra...

"Þið fáið að njóta mín áfram"

Var Össur fullur??? Bara spyr ég er ekki alveg nógu kunnugur drykkjuhefðum Samfylkingarþingmanna. Ég flokka það undir embættismanna afglöp að sleppa gaurnum lausum inn í svona partý. Af alkunnum hroka, klaufagang og snilld trúi ég honum til að vinna...

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband