Já góðan daginn...........

Við erum ekkert að tjá okkur mikið um þetta afhroð strákanna frá bítlaborginni.

Ritstjórnarstefna síðuritara hefur ekkert breyst fá fyrri færslu og ég ítreka að óvíst er hversu lengi þessi stefna varir.

Eitt má þó segja að lokum sem er algjörlega óháð og óþvingað mat.

Tími Benna brosmilda er liðinn, fyrst karluglan gat ekki landað nothæfum titlum á síðustu leiktíð gerir hann ekki neitt meira fyrir klúbbinn.

Góðar stundir.


mbl.is Chelsea efst eftir sigur á Liverpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Bara að heilsa upp á þig Halli minn, þetta lagast, er það ekki?

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.10.2009 kl. 13:33

2 Smámynd: S. Lúther Gestsson

Hérna...ég er að spá...Er einhver ritstjórnarstefna á þessari síðu?

S. Lúther Gestsson, 5.10.2009 kl. 16:16

3 identicon

Sæll fisksali.

Manstu hvað ákveðinn fisksali í Eyjum var kallaður á sínum tíma og er kannski enn? 

,,Slorríkur'' var nafngiftin og líklega veistu hver gaf honum þetta nafn, það var ákveðinn vélstjóri með skrítin áhugamál.

Annars er langt síðan ég hef farið á bloggið þitt Halli minn, leitt hvernig gengur hjá púllurunum en bara reka spánverjann þá lagast allt. Knattspyrna er dóp almúgans og ber að taka henni þannig. Hvernig gengur að selja Akureyringum fisk? Sá að Jónas ritstjóri fór förgum orðum um búðina þína og sagði hana einu boðlegu fiskbúðina á stór Akureyrarsvæðinu.

Annars er allt gott að frétta héðan úr Eyjum, er kominn í land og tekinn við Jötni, orðinn hálfgildings blók eins og það er kallað.

Kv. Valmundur

Valmundur Valmundsson (IP-tala skráð) 6.10.2009 kl. 16:01

4 Smámynd: Víðir Benediktsson

Meiri aumingjarnir í þessu Liverpolliði, geta ekki afgreitt þessa kórdrengi í Chelsea. Ég myndi skammast mín ef ég væri LFC fan.

Víðir Benediktsson, 6.10.2009 kl. 23:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband