sun. 12.4.2009
Rammvilltur í svartholi eigin hugarheims
Hvernig í ósköpunum getur þessum vafalaust ágæta manni, Jóhanni Haukssyni heimsspekingi dottið það til hugar að þetta hér sé eitthvað sem virkar og gagnast af einhverju viti á þennan stórmerkilega samansetta hóp sem kallast sjálfstæðismenn.
Ef ég ætti að leggja eitthvað til í þessa umræðu þá væri það ágætis lexía fyrir hópinn að verða settur í útlegð, til dæmis í Surtsey og það mætti hugsa sér eina ferð með þyrlu á tveggja mánaða fresti út í eyna. Þá er ég ekki endilega að hugsa þessa ferð með einhverjar nauðsynjar, nei svo rétt til að kanna hvort einhverju stjörnuljósinu hafi dottið það til hugar að strjúka.
Hannes Hólmsteinn verður ekki í vandræðum með að flytja hverja þrumuræðuna á eftir annarri um hvernig hjörðin kemst af með því að nýta það sem náttúran gefur af sér.
Góðar stundir.
Nöfn fyrirtækja ekki rædd í miðstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:05 | Facebook
Athugasemdir
Surtsey er friðlýst náttúruperla. Eigum við ekki að halda því þannig. Held að Geirfuglasker sé ekki friðað.
Víðir Benediktsson, 12.4.2009 kl. 17:45
Ég væri alveg til í að fórna rammleg afgirtum reit undir hópinn á suð - austur hluta eyjunnar.
Hallgrímur Guðmundsson, 12.4.2009 kl. 18:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.