mið. 18.3.2009
Benni bensínlausi !!!
Nei hvaða helvítis rugl er þetta, auðvitað samdi karlinn við besta klúbb veraldar. Benni brosmildi sýndi af sé ótrúlega fágæta takta eftir leikinn góða við United um liðna helgi (sem sumir vilja gleyma eins og skot,,,) enda hin svakalegasta martröð í hugskotum aðdáenda United, Benni karlinn hreinlega brosti svo mikið að færustu lýtalækna standa frammi fyrir nánast vonlausu djobbi sem er að tjasla saman haugrifnu steingerðu og svipausu andlitinu á hetjunni.
En þar fyrir utan þá sé ég það fyrir mér að United tapar þremur stigum um helgina og allt í uppnámi í deildinni, sem að vísu verður bara smotterí á móti hugaræsingi aðdáenda United.
Góðar stundir.
Benítez samdi við Liverpool | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Athugasemdir
Haldið þið Pollarar að þið eigið eftir að vinna rest?? Nei svo gott er það ekki, ef það er eitthvað lið sem getur skákað Man Utd er það Chelsea. Ég er nokkuð viss um að það er einhver tilbúinn að taka við skuldum Man Utd á tombóluverði, en því miður fyrir ykkur Poolara er víst enginn sem vill kaupa ykkur eins og sínt hefur sig í vetur.
I´ll rather walk alone.
Kveðja Benni
Benedikt Kaster (IP-tala skráð) 18.3.2009 kl. 23:27
Átti þessi færsla ekki að vera tengd við fréttina um kanabisræktunina. Menn eitthvað verulega skakkir.
Víðir Benediktsson, 19.3.2009 kl. 00:02
Málningarpestin að gera vart við sig....
Hallgrímur Guðmundsson, 19.3.2009 kl. 00:05
27 stig í pottinum. Nú er að bíta í skjaldarrendur!
Páll Geir Bjarnason, 19.3.2009 kl. 00:53
Ég óska ykkur til hamingju með þennan árangur, þetta var erfið fæðing.
En svo má spyrja sig hvort þetta eru gleðifréttir eða ekki, löngum stundum hefur maður heyrt og lesið púllara bölva benna baunaheila í sand og ösku.
Ps. Hallgrímur - ég er ekki búin að gleima þér.
Ólafur Tryggvason, 19.3.2009 kl. 16:08
Svo sjaldan vinna sumir að það er hægt að skrifa undir hvað sem er á eftir.Gleymdi kallin svo kröfunum í sigurvímunni?
Högni Jóhann Sigurjónsson, 19.3.2009 kl. 23:22
ég vona þar sem benites er eini maðurinn sem að sér eitthvað við lucas aumingja að hann geri samning við hann til 2012.
assi (IP-tala skráð) 21.3.2009 kl. 11:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.