mán. 19.1.2009
Já, já
Um það þarf ekki að hafa fleiri orð, eða eigum við að hengja nokkur orð við þetta?,,,,,
Aðdáendur United bíða eins og banhungraður engilsprettufaraldur á hliðarlínunni tilbúnir með drullumoksturinn ef mínir menn misstíga sig í kvöld....
Ég er alveg pollrólegur yfir þessum leik, vonandi verður hann hin mesta skemmtun og það er fyrir öllu. Að sjálfsögðu vinnur betra liðið, það er ekkert nýtt undir sólinni í þeim efnum nema með örfáum undantekningum þegar slakara liðið grísar inn sigurmarki á lokasekúndunum...
Þessháttar uppákomur eru náttúrulega óþolandi en svona er boltinn, fullt af óvæntum atburðum sem gera þetta svona spennandi...
Góðar stundir.
Endurheimtir Liverpool toppsætið? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Athugasemdir
Eins og þú segir Hallgrímur þá er svarið einfalt já. Ég ætla nú bara að minna á það að deildinni lýkur ekki fyrr en í maí og mér er alveg sama hvort Liverpool verður ekki í toppsætinu fram að síðasta leik ef það næst í lokaleiknum sem ég reyndar efast ekkert um , Liverpool verða meistarar, vinna bikarinn og CL........ púnktur og basta.
Þórarinn M Friðgeirsson, 19.1.2009 kl. 16:43
Ekki hef ég trú á því. Ég spái þessum leik 1-1 og það verður Liverpool sem jafnar á lokamínútunum. Það þýðir að sjálfsögðu að meistararnir verða áfram á toppnum á betra markahlutfalli, og eiga þar að auki einn leik til góða.
Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 17:09
Megi betra liðið vinna.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 19.1.2009 kl. 20:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.