Auðvitað á að mótmæla hvalveiðum

hvalvei_ar_742440.jpgÞað væri hreint með ólíkindum ábyrgðarlaust að hella sér í hamlausar hvalveiðar. Hvalirnir eru okkur Íslendingum bráðnauðsynlegir og þá má alls ekki eins og staðan er í dag veiða.

Miskunnarlaust dráp á sárasaklausum hvölum er óðsmanns æði. það vita það allirhrefnuvei_ar_742441.jpg að það þarf að grisja fiskistofnana svo náttúruleg uppbygging geti átt sér stað í helstu nytjastofnum Íslendinga. Ekki megum við Íslendingar sjá um þessa bráðnauðsynlegu grisjun, því stjórnar náttúru og dýraverndunarstofnunin Hafró + veruleikaskertur ráðherra, þá kemur að mikilvægu hlutverki hvalanna til verksins.

Já hreykinn geta Íslendingar horft til alþjóðasamfélagsins barið á brjóst sér og montað sig af spikfeitum heilögum og alfriðum hvölum sem sjá um verk okkar mannanna frítt. Þetta telst alvöru hagkvæmni með nákvæmlega engum tilkostnaði...W00t

Góðar stundir.


mbl.is Ætla að trufla hvalveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

...en, hvalur bragðast bara svo vel ef hann er rétt eldaður!

Ekki myndi ég þó éta Watson þótt hvalslegur sé.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 3.12.2008 kl. 11:54

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Halli skoðaðu þetta, annars veit ég ekki nema ég sé að upphefja mig á þinn kostnað.

Jóhann Elíasson, 3.12.2008 kl. 21:06

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Sammála Einar Valur.

Jói þessi færsla er er skrifuð til höfuðs ákveðnum aðilum. Auðvitað á að plaffa þessi kvikindi niður í massavís hvar sem til þeirra næst áður en þeir éta okkur endanlega út á gaddinn.

Þetta með upphífinguna var ansi merkilegt sem ég hef eiginlega enga skoðun á, sitt sýnist hverjum eins og stendur einhversstaðar á prenti og þannig verður það bara...

Hallgrímur Guðmundsson, 3.12.2008 kl. 21:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband