mið. 3.12.2008
Auðvitað á að mótmæla hvalveiðum
Það væri hreint með ólíkindum ábyrgðarlaust að hella sér í hamlausar hvalveiðar. Hvalirnir eru okkur Íslendingum bráðnauðsynlegir og þá má alls ekki eins og staðan er í dag veiða.
Miskunnarlaust dráp á sárasaklausum hvölum er óðsmanns æði. það vita það allir að það þarf að grisja fiskistofnana svo náttúruleg uppbygging geti átt sér stað í helstu nytjastofnum Íslendinga. Ekki megum við Íslendingar sjá um þessa bráðnauðsynlegu grisjun, því stjórnar náttúru og dýraverndunarstofnunin Hafró + veruleikaskertur ráðherra, þá kemur að mikilvægu hlutverki hvalanna til verksins.
Já hreykinn geta Íslendingar horft til alþjóðasamfélagsins barið á brjóst sér og montað sig af spikfeitum heilögum og alfriðum hvölum sem sjá um verk okkar mannanna frítt. Þetta telst alvöru hagkvæmni með nákvæmlega engum tilkostnaði...
Góðar stundir.
Ætla að trufla hvalveiðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
...en, hvalur bragðast bara svo vel ef hann er rétt eldaður!
Ekki myndi ég þó éta Watson þótt hvalslegur sé.
J. Einar Valur Bjarnason Maack , 3.12.2008 kl. 11:54
Halli skoðaðu þetta, annars veit ég ekki nema ég sé að upphefja mig á þinn kostnað.
Jóhann Elíasson, 3.12.2008 kl. 21:06
Sammála Einar Valur.
Jói þessi færsla er er skrifuð til höfuðs ákveðnum aðilum. Auðvitað á að plaffa þessi kvikindi niður í massavís hvar sem til þeirra næst áður en þeir éta okkur endanlega út á gaddinn.
Þetta með upphífinguna var ansi merkilegt sem ég hef eiginlega enga skoðun á, sitt sýnist hverjum eins og stendur einhversstaðar á prenti og þannig verður það bara...
Hallgrímur Guðmundsson, 3.12.2008 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.