Ég hélt sem snöggvast að ég væri óléttur.

Þegar ég labbað framhjá speglinum áðan dauðbrá mér, hver andskotinn hugsaði ég getur þetta verið?Óléttur Er ég í alvöru óléttur?Shocking Kúlan var vegin og metin á alla kanta.Woundering Síðan rann það náttúrulega upp fyrir mér að sáttasemjarinn og gleðigjafinn sem hangir á milli læranna er alvöru.Wink Hann er sko engin tilbúningur lýtalækna.Cool Spurning um að fækka ferðunum í ísskápinn.W00t

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ísskápinn segirðu ummhm ég ætla að prófa það.

Dótturdóttir mín uppgötvaði að það er barn í maga móðursystur sinnar og var ekki lengi að tengja og trúir því staðfastlega að svo sé einnig hjá afa.

Heyriði! svo getur hundur orðið "smeikur" að kötturinn sé notaður til að fela sig á bak við.

Það kom vörubíll hér og þegar hann sturtaði kom svo mikill hávaði að Birta hljóp hálfa dagleið til að komast inn, bíllinn var sko á milli hennar og hússins, svo kom þessi bíll aftur 8 dögum seinna þá kom hún hlaupandi inn, þó svo að kattarlúgan sé að verða of lítil kom hún á nýju stúlknameti í gegnum lúguna og á bak við köttinn.

Við vorum lengi að fatta tenginguna við bílinn.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 28.3.2008 kl. 22:47

2 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Nei ekki er það nú svo alvarlegt félagi. Mér finnst þetta bara drepfyndið.

Hallgrímur Guðmundsson, 28.3.2008 kl. 22:48

3 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Krakkarnir finna lausn og tengingar á öllum hlutum..   Þvílík hetja Högni en sniðug er hún að nota köttinn sem skjöld, honum skyldi fórnað..

Hallgrímur Guðmundsson, 28.3.2008 kl. 22:53

4 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Ég sé það núna að tengingin við fréttina sem ég er að fíflast með klikkaði.. En auðvitað er ég að fíflast með fréttina um ólétta karlinn, þessa hér.

Hallgrímur Guðmundsson, 28.3.2008 kl. 23:38

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég ætla að panta ómskoðun  

Högni Jóhann Sigurjónsson, 29.3.2008 kl. 00:08

6 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þú ert náttúrulega ekki léttur Halli, þannig að þú ert óléttur. Veit ekki með óskoðun,kannski óþarfi...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.3.2008 kl. 18:40

7 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta átti nú auðvitað að vera ÓMSKOÐUN, en endilega látið mig samt ekki draga úr ykkur við það...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.3.2008 kl. 19:12

8 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Já, nei nei ég fer ekkert í óskoðun (ómskoðum ) Högni má fara, ég veit allt um mína kúlu og hvernig hún er til komin. Það er nú ekkert skrítið maður að ég skuli vigta 100 og eitthvað, það er nú ekki alveg þannig að ég sé dvergvaxinn.Í það minnsta passa ég illa í brjóstvasa...

Hallgrímur Guðmundsson, 29.3.2008 kl. 19:29

9 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

...Góður. Nei Högni fer í skoðun og lofar okkur að fylgjast með...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 29.3.2008 kl. 22:20

10 Smámynd: Hallgrímur Guðmundsson

Það er alveg brilljant lausn, Högni í sónarinn og við fylgjumst með...

Hallgrímur Guðmundsson, 29.3.2008 kl. 23:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband